28.05.1985
Sameinað þing: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5680 í B-deild Alþingistíðinda. (4955)

417. mál, sjónvarpsefni frá fjarskiptahnöttum

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Það er nú alveg óséð mál hvað hv. Ed. þóknast að gera með það frv. til útvarpslaga sem nú liggur fyrir. Ég hef a. m. k. ýmsar efasemdir um það.

Hæstv. menntmrh. vék að þeim umr. sem urðu hér í vetur um þann hugsanlega möguleika að hér yrði sýnd og send út dagskrá norska sjónvarpsins og segir að ég hafi lagst gegn því í þeim umr., en annað hljóð sé komið í strokkinn nú. Þetta vildi ég mega leiðrétta. Ég tók þannig til orða, og ég hygg að hæstv. menntmrh. geti skoðað það í þingtíðindum, að þetta væri það mikilvægt mál að ég hefði efasemdir um að það væri mál sem tveir ráðherrar. þ. e. menntmrh. Noregs og menntmrh. Íslands, ættu að gera út um. Ég lagði áherslu á að málið fengi umræðu hér á Alþingi og í þjóðfélaginu og uppi væru efasemdir um hversu mikill áhugi væri á nákvæmlega þessari sjónvarpsdagskrá, dagskrá norska sjónvarpsins.

Það kom fram í máli hæstv. menntmrh. að hæstv. samgrh. hefði gefið hér yfirlýsingu varðandi endurskoðun fjarskiptalaga. Ég man ekki betur en hann hafi orðað það á þann veg að það yrði skipuð nefnd. Ég veit ekki hvort sú nefnd hefur verið skipuð. Mér er allsendis ókunnugt um hversu langt þessi vinna er komin eða hvernig henni miðar. En hæstv. menntmrh. sagði að um fjarskipti ættu að vera ákvæði í fjarskiptalögum. Það er alveg rétt. En þau ákvæði um boðveitur, sem hér er verið að tala um, eru einmitt um útvarp og sjónvarp og notkun slíkra kerfa, annaðhvort í jörðu eða í lofti, til þess að flytja útvarps- og sjónvarpsefni. Þau ákvæði eiga því skv. þessari röksemdafærslu alveg eins heima í útvarpslögum. En ég skal viðurkenna að það er hægt að rökstyðja þetta á hvorn veginn sem er.

Í framtíðinni, sagði hæstv. menntmrh., verður þetta svona og svona. En ég vildi leyfa mér að taka til orða á svolítið annan hátt. Framtíðin er núna. Við erum ekki að tala um neina óljósa framtíð í þessu efni. Við erum að tala um það sem þegar hefur gerst í löndunum í kringum okkur. Við erum að tala um það sem þegar getur gerst hér, en forsenda þess að þessir hlutir geti gerst hér með skipulegum og skynsamlegum hætti er að um það séu settar reglur og ég heyri að hæstv. menntmrh. er alveg sammála því.

Ég hef sett fram hér á Alþingi hugmyndir um að nýta dreifikerfi íslenska sjónvarpsins með þeim hætti að leigja innlendum aðilum það til þess að senda út sjónvarpsdagskrár sem næðu til landsins alls á fimmtudögum, á morgnana og síðdegis. Ég hef orðið var við það hjá ýmsum aðilum utan þings að þeim þykja þetta athyglisverðar hugmyndir, að nýta þá fjárfestingu sem er í dreifikerfi sjónvarpsins með þessum hætti. Ég hef ekki fengið nein svör við þessum till., ekki einu sinni nein viðbrögð, hvað hæstv. ráðh. eða þm. stjórnarliðsins þyki um þessa till., sem ég held að sé nokkur nýjung, að nýta þessa fjárfestingu til að gera öðrum aðilum en ríkisútvarpinu kleift eftir ákveðnum reglum að senda út sjónvarpsefni. Ég held að þetta væri tilraunarinnar virði.

Annað vil ég að lokum, herra forseti, leiðrétta. Það er engin höfuðkrafa eða meginforsenda af hálfu okkar Alþfl.-manna með þær tillögur sem við höfum lagt fram til breytinga á útvarpslögum að þær séu teknar upp óbreyttar. Við erum til viðræðu og samkomulags um þessa hluti að sjálfsögðu. En efnislega teljum við afar mikilvægt að um þetta séu settar reglur. Ég veit að hjá Reykjavíkurborg og hjá Seltjarnarnesbæ er áhugi á því að kanna þessi boðveitukerfi af hálfu yfirvalda og það er unnið að því á vegum þessara tveggja bæjarfélaga hér á höfuðborgarsvæðinu. Ef hv. Alþingi ætlar að skella skollaeyrum við áhuga þessara tveggja stóru bæjarfélaga og segja sem svo: Það er verið að athuga þetta mál í nefnd og það verða settar um það reglur einhvern tíma í framtíðinni, þá finnst mér það afar miður. Ég vona bara að bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi og borgarstjórinn í Reykjavík, sem er skeleggur maður og heldur sínum málum vel fram, hafi bein í nefinu til þess að gera sínum flokksbræðrum, sem stjórna og ráða ferðinni í þessum málum á Alþingi, grein fyrir því hvað er hér um að tefla fyrir bæjarfélag eins og Reykjavík. Ég vona það svo sannarlega og treysti borgarstjóranum í Reykjavík til að koma sínu flokksfólki í skilning um hvers eðlis þetta mál er og beina því inn á réttar brautir í málinu. Ég held að það sé algert meginatriði og vona sannarlega að það nái fram að ganga.

En gallinn við núverandi útvarpslagafrv. og þá vinnu sem átt hefur sér stað í sambandi við það fram að þessu er held ég í fáum orðum sá, að það hefur aldrei verið leitað leiða til að skapa samstöðu. Málið hefur bara verið keyrt áfram af einstrengingshætti og óbilgirni. Það hefur aldrei verið leitað raunverulegra leiða til að skapa breiðan samkomulagsgrundvöll, til þess að skapa frið um málið og til þess að koma þessu máli áfram þannig að það megi verða sem flestum til góðs.