28.05.1985
Sameinað þing: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5682 í B-deild Alþingistíðinda. (4957)

417. mál, sjónvarpsefni frá fjarskiptahnöttum

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég hlýt að gera aths. við þau ummæli hv. 5. landsk. þm. að ekkert hafi verið reynt til að ná samkomulagi um útvarpslagafrv. Þetta er fjarri öllu lagi. Í fyrsta lagi er frv. málamiðlun, ávöxtur samstarfs manna úr öllum stjórnmálaflokkum sem þá áttu sæti á þingi og unnu að frv. Í öðru lagi er búið að vinna að málinu í allan vetur. Hins vegar veit ég að það eru margir sem hafa gjarnan viljað tefja málið af einhverjum ástæðum. E. t. v. hafa þeir viljað hugsa málið betur og það er ágætt, en þegar menn hafa hugsað málið árum saman verða menn að hrökkva eða stökkva. Þetta mál hlýtur að þurfa að fara að fá afgreiðslu. En sú ástæða sem olli því sérstaklega að ég stóð upp var sú að ég tel að nm. menntmn. í Nd., sem unnið hafa að málinu, hafi unnið mjög mikið starf við afgreiðslu þess, þeir hafi unnið mjög mikið starf og þar hefur vissulega verið reynt að samræma sjónarmið manna og þeir eiga sannarlega þakkir skildar fyrir það að frv. er þó komið til hv. Ed.

Mér var tjáð í vetur að reynt væri að ná samkomulagi um samstarf nefnda beggja deilda, eins og stundum er gert til þess að greiða fyrir afgreiðslu mála og greiða fyrir samkomulagi um mál, en þeim tilmælum mun hafa verið hafnað. Má vel vera að menn hafi þá í Ed.-nefnd verið uppteknir við annað, en óneitanlega hefði það greitt fyrir samkomulagi um málið. Ég vildi einungis taka þetta fram því að ég taldi ósanngjarnt að svara því engu ef sagt væri að nm. hefðu ekki unnið að málinu. Það hafa þeir svo sannarlega gert.