05.11.1984
Efri deild: 9. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í B-deild Alþingistíðinda. (496)
129. mál, umferðarlög
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Þar sem ég er einn af meðflm. þessa frv. hefði ég kannske ekki þurft að koma hér í stólinn, en það var kannske vegna orða hv. 2. þm. Austurl. þar sem hann minnti á að ég hefði verið annar þeirra þm. í þessari hv. deild sem sat hjá við atkvgr. þegar frv. um lögleiðingu bílbelta var afgreitt héðan úr hv. Ed. á sínum tíma að ég taldi rétt og skylt að staðfesta það og jafnframt einu sinni enn að skýra frá því að ástæðan fyrir minni hjásetu á þeim tíma var fyrst og fremst sú að mér fannst ég ekki hafa kynnt mér málin nógu vel til þess að taka þá afstöðu til lögleiðingar. Ég fór hins vegar sjálf að nota bílbeltin um leið og frv. var lagt hér fram í þinginu og umr. fór hér fram og það hef ég gert síðan og betur og betur sannfærst um þýðingu þess að bílbeltanotkun var lögleidd.
Hv. 5. landsk. þm. nefndi að við ættum ekki að vera að taka dæmi um hvort notkun bílbelta bjargaði mannslífum í einstaka tilfellum eða ekki. Ég get tekið undir það með honum. Það er áreiðanlega erfitt að dæma um slíkt. Þó getum við nefnt mörg dæmi um það að ef fólk sem lendir í aftanákeyrslu hefði ekki svikist um að fara að lögum og nota bílbelti hefði það sloppið við meiðsli, ýmist á hálsi eða skurði í andliti: Tvö slík dæmi þekki ég frá s.l. sumri um tvær konur sem einmitt lentu í slíkum árekstri. Hvorug þeirra notaði bílbeltin illu heilli og hafa báðar sagt mér að síðan þetta gerðist að sjálfsögðu setjist þær ekki undir stýri án þess að setja á sig belti. En það má segja að það hafi verið nokkuð seint að gert.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta. Ég vil aðeins taka undir það að deildin afgreiði þetta mál snarlega frá sér til Nd. og ég vænti þess að hv. Nd. sjái nú að sér og afgreiði þetta mál einnig frá sér svo að sektarákvæðin verði lögleidd, en eins og kemur fram í grg. var það skoðun m.a. Umferðarráðs að lögum um skyldunotkun verði að fylgja refsiákvæði eins og reyndar umferðarlaganefnd lagði til árið 1981. En eins og við munum sem hér áttum sæti á hv. Alþingi þegar það frv. var afgreitt var einmitt þetta ákvæði fellt niður. Það má segja að ekki hafi verið óeðlilegt að veita þarna vissan aðlögunartíma, en ég held að þeim aðlögunartíma sé nú lokið og orðið tímabært að lögleiða refsiákvæðin.
Það er ánægjulegt að heyra frá hæstv. dómsmrh. að endurskoðun umferðarlaga sé nú senn að ljúka. Þetta er orðinn nokkuð langur tími. Þessi endurskoðun laganna hefur tekið 4 ár a.m.k. En ég vil samt bæta því við í lokin að ég hef fyrirhugað að endurflytja það frv., sem ég flutti hér ásamt fleiri hv. þdm. á síðasta þingi, um notkun ökuljósanna og varðandi merkingu skólabifreiða, nú á næstunni. Ég vænti þess að það fái jákvæða afgreiðslu úr þessari hv. deild þegar þar að kemur, en bæði þessi frumvörp eru liður í því að vinna fyrirbyggjandi starf varðandi umferðarmálin.