28.05.1985
Efri deild: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5698 í B-deild Alþingistíðinda. (4967)
382. mál, Sementsverksmiðja ríkisins
Valdimar Indriðason:
Virðulegi forseti. Ég ætlaði ekki að blanda mér í þessar umr. Ég heyri það mjög vel hvað það er hæstv. iðnrh. mikið kappsmál að koma þessu máli í gegn. Þegar frv. var lagt fram hér við 1. umr. óskaði ég mjög eindregið eftir því að leitað yrði álits starfsmanna fyrirtækisins og bæjarstjórnar Akraness um það hvernig þeir litu á þessi mál því að það er nú einu sinni svo að um stórt fyrirtæki eins og Sementsverksmiðju ríkisins, sem er okkar elsta stóriðjufyrirtæki og það fyrsta hér á landi og menn eru búnir að alast upp með í þennan tíma, vilja menn fá að segja hvernig fyrirhuguðum breytingum á rekstri skuli háttað.
Ég hef sagt það við hæstv. iðnrh. og get sagt það hér enn að ég er tilbúinn að líta á ýmsar breytingar í þessu sambandi. En ég tel varhugavert mjög að keyra þetta mál það hart í gegn að ekki sé tími til þess að kynna það réttum aðilum — ég á þar við starfsmenn verksmiðjunnar og bæjaryfirvöld á Akranesi.
Það er ekki jarðvegur fyrir þessari breytingu í dag. Ég hef verið mikið uppi á Akranesi og kynnt mér málin algerlega öfgalaust hjá þessum aðilum og þeir eru ekki tilbúnir til þess að fara inn á þessa braut. Þeir segja nokkuð réttilega og það stendur í manni að skýra það: Það á að selja 20% af þessu ríkisfyrirtæki. enn þá vitum við ekki á hvaða verði. Það liggur ekkert mat fyrir á því hvað við fáum út úr þessu dæmi, þ. e. hvaða breyting verður á fyrirtækinu. Ríkið ætlar sjálft að eiga áfram 80% og tryggja sig þannig sem aðalrekstraraðili að fyrirtækinu og er allt gott um það. En hverju breyta þessi 20% í rekstri fyrirtækisins?
Þá kem ég að því aðalefni sem ég taldi mig neyddan til að fara hér um nokkrum orðum. Ég harma að hæstv. iðnrh. skyldi hafa þau orð hér áðan um núv. og fráfarandi stjórnir þessa merka fyrirtækis að stjórnarmenn séu kosnir daufdumbri kosningu og sitji þar meðvitundarlitlir í fjögur ár. Þetta eru stór orð, hæstv. iðnrh., bæði við þá menn sem nú sitja í stjórn og eins þá sem setið hafa þarna í stjórn en eru nú látnir og hafa látið sig þetta fyrirtæki miklu varða. Þess vegna hlýt ég sem Akurnesingur að mæla á móti þeim orðum sem þarna voru látin falla. Ég ætla ekki að nefna hér nöfn en ég man eftir fyrrv. þm. Jóni heitnum Árnasyni og öðrum slíkum sem lögðu mikið á sig í sambandi við þetta fyrirtæki.
Ég er ekki að vanþakka það sem Framkvæmdastofnun hefur gert fyrir fyrirtækið. Það er allt gott um það og það skal þakkað en það má ekki jafnframt kasta rýrð á þá sem eru gengnir í þessum efnum. Samskipti mín við þetta fyrirtæki sem bæjarfulltrúi á Akranesi og forseti bæjarstjórnar um langan tíma hafa oft verið góð. Auðvitað hefur komið til átaka í þessum málum við stjórnir fyrirtækisins. En ég fullyrði að stjórnirnar hafa reynt að hrinda þar málum áfram eins og mögulegt er. Þeir menn, sem núna sitja í stjórn verksmiðjunnar eða eru framkvæmdastjórar, hafa ekki verið dragbítar á rekstri þessa fyrirtækis. Þess vegna ítreka ég þær óskir mínar að þetta frv. fái örlitla hvíld og betri skoðun áður en það er lagt hér fram til endanlegrar afgreiðslu. Hvort það er líf eða dauði skal ég ekki segja um, en ég legg til að það verði betur skoðað heima í héraði og af stjórnvöldum.
Sem sjálfstæðismaður er ég fylgjandi því að við gerum sem mest að því að hafa frjálsan rekstur. En við verðum alltaf að nema staðar og skoða hvernig staðan er á hverjum tíma. Ég tek það ekki til mín þó að það sé sagt hér að margyfirlýst stefna Sjálfstfl. sé sú að selja öll fyrirtæki í ríkiseign. Það hlýtur að verða að skoðast á hverjum tíma og ég ligg ekki á skoðun minni í því að þessu frv. í þessu formi er ég á móti. Ég sé enga breytingu við það enn þá, að bæjarsjóður Akraness sé leiðréttur með þá tölu sem er í frv. með 1% aðstöðugjaldsstofn sem þar á að greiða. Hann hefur haft 2% fram að þessu. Það á að rýra það. Þetta fyrirtæki á ekki að bera sömu skatta og önnur hlutafélög t. d. til Akranesbæjar þó að það verði hlutafélag.