28.05.1985
Efri deild: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5700 í B-deild Alþingistíðinda. (4968)

382. mál, Sementsverksmiðja ríkisins

Frsm. minni hl. (Skúli Alexandersson):

Virðulegi forseti. Hæstv. iðnrh. endurtók nú mikinn hluta af þeirri ræðu sem hann flutti hér við 1. umr. þessa máls og undirstrikaði þá þætti sem hann teldi mikilsverða til hagsbóta fyrir Sementsverksmiðju ríkisins með samþykkt þess frv. sem hér er til umr. En í upphafi síns máls undirstrikaði hann það að hér væri um að ræða eitt af stefnumálum ríkisstj. og tekið væri fram í stefnuskrá ríkisstj. að að því skyldi vinna að ríkisfyrirtæki skyldu seld og lagði á þennan þátt þunga áherslu.

Í öðru lagi lagði ráðh. áherslu á það að með þessu frv. væri verið að færa ábyrgð til stjórnenda. Hann lagði mikla áherslu á það hvað þeir, sem stjórnað hefðu Sementsverksmiðju ríkisins til þessa dags, hefðu verið lélegir. Hann lýsti því að framkvæmdastjórar fyrirtækisins hefðu í ýmsum tilvikum þurft að koma til lánastofnana og biðja þar um aðstoð við rekstur þessa fyrirtækis og þar hefði lítið til komið stuðningur stjórnar.

Með ýmsum orðum lýsti hann því hvernig fyrrv. forustumenn og fyrrv. og núv. stjórnarmenn Sementsverksmiðju ríkisins hefðu staðið sig illa. Hann átti þar ekki aðeins við Skúla Alexandersson sem stendur hér heldur líka, eins og hér var nefnt áðan, Jón Árnason, Pétur Ottesen og fleiri mæta menn sem setið hafa í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins. Ég mótmæli þeim áburði sem hér var hafður í frammi við þessa mætu menn. Hæstv. iðnrh. leggur til með þessu frv. að stjórnarmenn verði kjörnir með þeirri aðgerð að þeir verði skipaðir af ráðh. Það er að mínu mati daufdumb kosning og allt annars eðlis en að vera kjörnir af löggjafarsamkomu þjóðarinnar, Alþingi Íslendinga. Hæstv. iðnrh. fór þannig orðum um þá aðgerð, eins og reyndar 3. þm. Vesturl. minnti á, að það hefði verið með daufdumbri aðferð að kjósa menn til stjórnarstarfa á Alþingi Íslendinga. Slík er virðing hæstv. ráðh. fyrir þessari stofnun.

Hæstv. ráðh. gerði mikið úr því að hann sem forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins hefði bjargað Sementsverksmiðju ríkisins allt að því frá því að fara á hausinn, þetta hefði verið næstum því greiðsluþrota eða gjaldþrota fyrirtæki. Ég mótmæli þessum fullyrðingum líka. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að hæstv. ráðh. hafi við þær aðstæður komið fram sem réttlátur bankastjóri. En hann gerði akkúrat ekkert meira. Hann lánaði þessu fyrirtæki, þessu reksturslega trygga fyrirtæki fjármagn, fjármagn sem til þess var útvegað, ekki bara af ráðh. heldur af þjóðinni.

Sverrir Hermannsson sem forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins hefur aldrei bjargað Sementsverksmiðju ríkisins á þann máta sem hann var að reyna að lýsa hér. Það er mjög langt frá því. Þó að ýmis ár hafi verið þannig í rekstri Sementsverksmiðju ríkisins að þar hafi verið erfitt um vik hefur aldrei legið við neinum greiðsluþrotum eða gjaldþrotum. Það er mjög langt frá því þó að á ýmsum tímum og einmitt fyrir svona 8–10 árum hafi setið frekar lélegar ríkisstjórnir og verið með falsaða vísitölu og gert ýmsa hluti til þess að auka erfiðleika í rekstri fyrirtækisins. Þrátt fyrir það hafa stjórnarmenn og framkvæmdastjórar fyrirtækisins séð til þess og stjórnað fyrirtækinu á þann máta að þetta fyrirtæki hefur alltaf staðið vel í hlutverki sínu.

Hæstv. ráðh. benti einnig á það að með því að fyrirtækið væri gert að hlutafélagi yrði haldinn aðalfundur, fundur til þess að spjalla um stöðu og málefni fyrirtækisins. Mikið rétt, það er af hinu góða. En það eru engir erfiðleikar, ekkert vandamál að skapa nákvæmlega svipaða stöðu með því að breyta lögum eða gera ný lög um Sementsverksmiðju ríkisins og ákvarða henni aðalfund. Einmitt sá þáttur er í því frv. sem ég ásamt fleiri þm. hef flutt hér í hv. deild. Þar er lagt til að verði aðalfundur skipaður hagsmunaaðilum, starfsmönnum, viðskiptaaðilum, iðnaðarnefndum þingsins, eigendunum. En aðalfundur sem hugsaður er út frá hlutafélaginu er skipaður fulltrúum hugsanlegra eigenda, hugsanlegra hluthafa og svo mönnum sem skipaðir eru af hæstv. iðnrh. hver sem hann verður á hverjum tíma. Mín tilfinning er sú að þessi aðalfundur hlutafélagsins væri ekki æskilegri vettvangur til umr. um starfsemi Sementsverksmiðju ríkisins en sá aðalfundur sem hægt væri að byggja upp með nýjum lögum um Sementsverksmiðju ríkisins. Þannig fer um röksemd þá.

Ég held að þessar tvær röksemdir um ábyrgð stjórnenda og um aðalfund falli algerlega um sjálfar sig. Stjórn sem skipuð er af iðnrh. er að mínu mati mun lengra frá því að vera ábyrg stjórn en stjórn sem kosin er af Alþingi Íslendinga og aðalfundur, sem er skipaður á þann máta sem hæstv. iðnrh. leggur til í frv. sínu, er miklu fjær því að geta fjallað af ábyrgð um verkefni og starfsemi Sementsverksmiðju ríkisins en fundur í slíkri mynd sem við leggjum til í frv. okkar.

Ég sé ekki ástæðu til að elta ólar frekar við það sem hæstv. ráðh. var að fetta fingur út í í áliti meiri hluta stjórnar Sementsverksmiðju ríkisins. Ég vil þó minnast á 5. liðinn, — en ráðh. gerði mjög lítið úr því að við höfum leyft okkur að setja þar í svohljóðandi klásúlu: „Frv. þetta raskar stöðu starfsmanna sem ekki er hægt að ætlast til að þeir séu ánægðir með. Fram hjá þessu atriði verður ekki gengið.“ Í fyrsta lagi vorum við að fjalla um frv. óbreytt og ekki með þeirri till. sem síðar kom fram. Í öðru lagi, þrátt fyrir þá breytingu raskar samþykkt þessa frv. stöðu starfsmanna að því leyti að þeir eru ekki lengur starfsmenn hjá hreinu ríkisfyrirtæki heldur starfsmenn hjá hlutafélagi. Ráðh. getur gert lítið úr þessari röskun en hún er samt fyrir hendi.

Ég vil svo undirstrika það að ég heyrði ekki enn neitt í ræðu ráðh. sem færði aukin rök að samþykkt þessa frv. Það er að meginhluta til endurtekning á því sem hæstv. ráðh. sagði hér við 1. umr. Jafnvel gefur málflutningur hans og ummæli um fyrrv. og núv. stjórnarmenn enn þá frekar tilefni til þess að þetta frv. verði fellt.