28.05.1985
Neðri deild: 76. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5711 í B-deild Alþingistíðinda. (4991)

342. mál, verslunaratvinna

Frsm. 1. minni hl. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Það er greinilega full ástæða til að ræða þetta mál mjög ítarlega og setja hæstv. menntmrh. inn í málið sem ég hélt þó að hefði átt að fylgjast með því dálítið. Þegar við tveir hv. þm. flytjum till. um að þessi málaflokkur verði látinn heyra undir menntmrh. rís hæstv. menntmrh. upp með þeim hætti sem hún gerði áðan og fullyrðir að ég væri með tillögu minni að drepa málinu á dreif, skjóta skjólshúsi yfir lögbrjóta og tefja fyrir að lögum yrði komið yfir þessa aðila. Ég veit eiginlega ekki hvaðan hæstv. ráðh. hefur þessi ósköp. En að gefnu tilefni er kannske ástæða til þess að ræða málið aðeins nánar.

Fyrir nokkrum vikum varð mikil umræða á hv. Alþingi um myndbandaleigur. Þá var bent á að þarna væri jafnvel verið að brjóta lög, einkum og sér í lagi höfundalög. Auðvitað hefði hæstv. menntmrh. þá átt að flytja frv. um breytingu á höfundalögum til að tryggja rétt höfunda í sambandi við starfsemi þessara myndbandaleiga. Það frv. er ekki flutt. Það hefði einnig verið hugsanlegt að flytja frv. til l. um breytingu á lögum um ofbeldiskvikmyndir, en það eru lög sem voru sett hér snemma á árinu 1983. Það frv. er ekki flutt. Í staðinn flytur ríkisstj. frv. um það að hvers konar leigustarfsemi með lausafjármuni verði sett inn í lögin um verslunaratvinnu. Og hvað eru lög um verslunaratvinnu? Lögin um verslunaratvinnu ganga út á það að setja reglur um lágmarksskilyrði sem þeir þurfa að uppfylla sem stunda verslun — ekki leigustarfsemi heldur verslun.

Þegar hv. Ed. fær þetta mál til meðferðar kemst Ed. að þeirri niðurstöðu að þetta sé óeðlilegt, þetta sé allt of víðtæki eins og það kemur frá hæstv. ríkisstj. Eins og ríkisstj. lagði þetta til átti að leyfisbinda hvers konar leigustarfsemi undantekningarlaust. Ed. kemst samhljóða að þeirri niðurstöðu að takmarka þetta eingöngu við myndbönd. Tilgangurinn með þessu öllu er auðvitað sá að reyna að koma lögum yfir þessa aðila og tryggja að það megi svipta þá starfsleyfi ef þeir eru, að ætla má, að brjóta reglur.

Þegar þetta mál kemur til meðferðar í hv. fjh.- og viðskn. Nd. er það rætt mjög ítarlega á tveimur eða þremur fundum n. Það er m. a. rætt við lögfræðinga eins og Jón Ögmund Þormóðsson deildarstjóra í viðskrn. og við ríkislögmanninn Gunnlaug Claessen. Eftir þá ítarlegu yfirferð verður það niðurstaða hv. þm. Guðmundar Einarssonar, eins nm., að það sé fráleitt að samþykkja þetta frv. eins og það liggur hér fyrir. Hann vill fella frv. Hins vegar flytjum við hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir frv. um að þetta mál heyri undir menntmrh., þetta sé mennta- og menningarmál og þess vegna eðlilegt að vista málið í menntmrn. en ekki í viðskrn. Í staðinn fyrir að taka því nú vel þegar það er lagt til að mál fari til menntmrn. eins og hér er lagt til lýsir hæstv. ráðh. því yfir að með þeirri till. okkar séum við að drepa málinu á dreif.

Það er ekki rétt. Það er ekki hér verið að gera tillögu um að drepa málinu á dreif. Það er ekki hér verið að gera tillögu um að skjóta skjólshúsi yfir lögbrjóta. Það er ekki hér verið að gera tillögu um að tefja það að lögum verði komið yfir aðila. Það er einfaldlega verið að leggja til að þessi mál fái meðferð eins og mennta- og menningarmál, rétt eins og kvikmyndamál almennt. Það er það sem verið er að gera tillögur um. — Og ég mótmæli harðlega á síðustu stundu umr. um stjfrv. hér á hv. Alþingi útúrsnúningum af því tagi sem hæstv. menntmrh. fór með hér áðan. Það voru hreinir og beinir útúrsnúningar og ekkert annað.

Ég er þeirrar skoðunar að í þessu efni sé langeðlilegast að málið falli undir menntmrn. með þeim hætti sem hér er lagt til með breytingu á lögunum um kvikmyndamál. Þetta á ekkert skylt við það að landbrh. eigi að gefa út leyfi fyrir verslun með landbúnaðarvörur. Þetta á heldur ekkert skylt við það að iðnrh. gefi út leyfi fyrir verslun með iðnaðarvörur. Hér er verið að tala um mjög ríkan þátt í okkar menningarstarfsemi, sem eru myndbönd og notkun þeirra. Margir mundu segja að það væri ekki allt menningarlegt sem þar kemur fram, en það er ekki okkar hlutverk hér á Alþingi að hafa skoðun á því í hverju einstöku atriði. En við teljum að alveg á sama hátt og leikhús, kvikmyndahús og kvikmyndastarfsemi falla undir menntmrn., bókmenntir og listir hvers konar, þá eigi þessi starfsemi líka að eiga þar heima, auk þess sem við leggjum svo til að tekjur af útgáfu þessara leyfa renni í Kvikmyndasjóð. Það er að vísu ekki há upphæð, en ég hélt að Kvikmyndasjóð munaði um allt. Ég veit ekki betur en að það hafi verið ákveðið við afgreiðslu fjárlaga að skera Kvikmyndasjóð niður í 8 millj. kr. í staðinn fyrir 30. Síðan hafi verið veitt einhver aukafjárveiting. En staðan hjá Kvikmyndasjóði sé mjög bágborin og verulegur hluti af því fjármagni sem Kvikmyndasjóður á fór í að borga halla af myndum sem þegar höfðu verið gerðar.

En í stað þess að taka þessum ábendingum vel snýr hæstv. menntmrh. út úr máli manna með þeim hætti sem hún gerði hér áðan og ég mótmæli því mjög harðlega.

Ég er andvígur þeirri till., sem hv. þm. Guðmundur Einarsson flytur hér. að fella þetta mál. Ég tel það óeðlilegt. Við atkvgr. um málið mun ég í fyrsta lagi styðja að málinu verði vísað til ríkisstj. og í samræmi við það, ef það yrði samþykkt, ýta á eftir því að frv. um breyt. á lögum um kvikmyndamál verði samþykkt. Verði það hins vegar fellt að vísa málinu til ríkisstj. sem mér heyrist á hæstv. menntmrh. að eigi að gera, mun ég styðja þessa undarlegu breytingu á lögunum um verslunaratvinnu vegna þess að ég vil koma lögum yfir eigendur myndbandaleiga. Þess vegna er ég andvígur þeirri till. hv. þm. Guðmundar Einarssonar, sem hann hér leggur til, að frv. verði fellt.

Ég vænti þess, herra forseti, að þetta mál sé nægilega skýrt af minni hálfu. Hér er ekki verið að skjóta skjólshúsi yfir lögbrjóta, tefja að lögum verði komið yfir aðila né heldur að drepa máli á dreif. Hér er verið að leggja til að málið fái eðlilega meðferð og eðlilegan sess í löggjöf landsins.