30.05.1985
Sameinað þing: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5757 í B-deild Alþingistíðinda. (5081)
497. mál, náttúrufræðisafn á höfuðborgarsvæðinu
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Hér liggur fyrir till. sem víðtæk samstaða er um meðal þm. úr öllum flokkum. Ég vil sérstaklega taka það fram að það er mikill áhugi á þessu máli í menntmrn. Það var nú á áliðnum vetri sem hópur manna, er áhuga hafa á þessu máli, kom til viðtals í menntmrn. um það, bæði forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar og aðrir áhugamenn og einnig fulltrúar foreldra- og kennarafélaga úr grunnskólum.
Þetta mál er nú í vinnslu í rn. undir forustu Árna Gunnarssonar skrifstofustjóra menntmrn. Það sem unnið er að er þetta: Hvernig er skynsamlegt að standa að fyrstu undirbúningsaðgerðum. Það hafa komið fram afar áhugaverðar till. eða hugmyndir um það hvernig hugsanlegt væri að koma fyrir náttúrufræðisafni á þann veg að það þjónaði þeim víðtæka tilgangi sem vikið er að hér í grg. og fylgiskjali.
Ég vil skýra frá því að ég tel að fyrsti áfanginn sem vinna ætti að væri sá hluti safnsins sem fyrst og fremst þjónaði almenningi, sem yrði til þess að opna augu manna fyrir því sem sérstætt er og merkilegt í íslenskri náttúru á þann veg að það auðveldi bæði ungum og eldri að nálgast hlutina og þekkingu og fræðslu um þá. Það sem ég sé fyrir mér er safn sem auðveldar foreldrum að ræða við börn sín um ýmislegt í náttúrunnar ríki og skýra fyrir þeim það sem fyrir augu ber um leið og rifjað er upp fyrir hinum fullorðnu svo margt sem við höfum ekki fyrir augum daglega eða þá í huga en er vissulega þess vert.
Hér í fskj. er það nefnt að þegar menn tali um safn eða sýningu þá sjái margir fyrir sér þögla rykfallna skápa og borð með sýningargripum í röð. Svona þöglir rykfallnir skápar geta haft alveg stórkostlega þýðingu og þeir segja svo miklu, miklu meira en fyrirferð þeirra og umhverfi á sýningarstað gefur til kynna. Góðar skýringar með innihaldi slíkra skápa, hvort sem þeir eru rykfallnir eða ekki, sýna manni það sem augað sér ekki. Þær skýra fyrir manni hvað það er sem er á bak við hvað eina sem við getum séð í slíku safni. Þegar slíkum skýringum er fylgt eftir með ferðalögum, e. t. v. bara í nánasta nágrenni, undir leiðsögn bæði þeirra sem eru sérfróðir og líka hinna sem nánust tengsl hafa við þá sem ungir eru, þá verða slík efni ungum safngestum alveg ógleymanleg.
Ég geri ráð fyrir að þeir sem slíkt hafa upplifað á ungum aldri, kannske oft og einatt, muni búa að því ævinlega. Þeir sem haft hafa náttúrufræðikennara, er hafa haft vakandi hugsun á því að leiða mönnum fyrir sjónir hvað er í kringum okkur, hvert er eðli hlutanna sem við sjáum daglega og eru hlutir náttúrunnar og hvernig við þurfum að umgangast sérstæða náttúru lands okkar, eru betur settir en ella mundi vera. Við þurfum einmitt að stilla svo til með bættri aðstöðu fyrir slíkar upplýsingar. fyrir slíka fræðslu, að sem flestum gefist kostur á því.
Þessi er einmitt ástæðan fyrir því að ég tel mjög skynsamlegt að tengja foreldrasamtök þessu átaki. Mér er það alveg ljóst að aðstaða til vísindarannsókna í náttúrufræðum og náttúruvísindum yfirleitt getur verið miklu stærra verkefni og kannske erfitt að takmarka það, erfitt að ákvarða hvað af því á heima í náttúrufræðisafni og hvað af því á heima í enn þá beinni tengslum við Háskólann en sumir þættir náttúrugripasafns mundu vera. Þetta er m. a. það sem undirbúningsnefnd þarf að taka afstöðu til. Því nefni ég þetta að Háskóli Íslands hefur fengið tilmæli um það að styðja byggingu slíks safns, kannske í Vatnsmýrinni, af sínu happdrættisfé. En Háskólinn taldi sér ekki skylt eða fært að svo stöddu að standa að því. Það má vel vera að svo megi þó skipta áföngum í þessari stofnun að þetta verði unnt að einhverju leyti en ég tel að það þurfi að koma miklu víðtækari fjárstuðningur við þetta verkefni.
Það hefur verið rætt um samstarf ríkisins og Reykjavíkurborgar sem er mjög af hinu góða. En það má kannske undarlegt heita af mér sem Reykjavíkurþingmanni að nefna það að ég tel að skynsamlegt væri að tengja fleiri sveitarfélög inn í þetta verkefni. Þótt slík stofnun, slíkt höfuðsafn, sé á höfuðborgarsvæðinu þá er það auðvitað sjálfsagður hlutur að þar ættu önnur byggðarlög ekki síður að eiga aðild að. Ég er sammála 1. flm. þessa máls um það að það væri mjög eðlilegt að þar yrði eins konar miðstöð ýmissa annarra safna á landinu sem víða hafa risið upp fyrir einstaka elju og áhuga manna sem ekki hafa upphaflega verið sérfræðingar á þessu sviði, en orðið það smátt og smátt.
Við sjáum víða söfn sem eru í raun og veru eins konar perlur í sínum byggðarlögum. Dæmi er safnið í Vestmannaeyjum. Ég geri ekki ráð fyrir að margir gestir komi til Vestmannaeyja án þess að gera sér ferð á þetta safn. Það má nefna dæmi um ýmis söfn víða annars staðar. Sums staðar eru þau e. t. v. ekki í alfaraleið eða fólk veit ekki nægilega vel um þau. Það þarf að gera ráðstafanir til þess að opna slík söfn betur fyrir almenningi og kynna fólki betur það sem þar fer fram þannig að möguleikarnir sem felast í því að skoða hluti og fræðast um eðli þeirra og sögu, séu opnir sem flestum og vitað sé um þá. Þegar farið er í ferðir um landið til að sýna ungu fólki sitthvað því til ánægju og skemmta því er fleira sem hefur gildi en ýmis skemmtitæki eða pylsusala og fleira sem ungir borgarar vilja gjarnan staðnæmast við á ferðum sínum. Ef menn hefðu augun betur opin fyrir þessum þáttum held ég að það væru fleiri aðlaðandi áfangastaðir af því tagi sem fræðslu og ánægju veita sem vert væri að staðnæmast við og þeir væru þá eins konar söfn sem sýna mætti ungum og öldnum.
Nú á dögunum, þegar hinn stóri landsfundur Sjálfstfl. var haldinn inni í Laugardalshöll, var gerð ályktun um að vinda þyrfti að því bráðan bug að velja framtíðarnáttúrugripasafni landsins stað og halda áfram áætlunum á þeim grundvelli. Ég veit að það tekur tíma að undirbúa slík mál svo vel sé. Ég veit ekki hvort skynsamlegt er að ákveða í upphafi að allt eigi að verða tilbúið tiltekinn dag á tilteknu ári. Við getum vonast til að svo verði. En við verðum líka að vera raunsæ. Það er ekki mjög skynsamlegt að hefjast handa samtímis um mörg stórverkefni svo að öllu seinki.
Ég tel hins vegar að þegar byggingu Þjóðarbókhlöðu lýkur á þann veg að unnt sé að taka hana í notkun, þá sé þetta verkefni forgangsverkefni. Þá held ég að skynsamlegt sé að hafa lokið ýmiss konar tímafrekum undirbúningsráðstöfunum, teikningum, söfnun hugmynda og áætlunum ýmiss konar sem þurfa að liggja fyrir þannig að við getum unnið markvisst að því að koma áfram slíkum áformum um nýtt náttúrufræðasafn til notkunar.
Herra forseti. Þetta er orðið lengra mál en ég hafði hugsað mér. Ég stóð einungis upp til þess að skýra frá því að unnið væri að þessu máli og allir þeir sem að því eru að vinna bera það mjög fyrir brjósti. Því er það af hinu góða að fram hefur komið till. um það að hraðað verði því verki.