30.05.1985
Sameinað þing: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5760 í B-deild Alþingistíðinda. (5083)
497. mál, náttúrufræðisafn á höfuðborgarsvæðinu
Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að þakka hæstv. menntmrh. þann áhuga er hún hefur sýnt þessu máli og fram kom í orðum hennar hér af tilefni þessarar till. Ég er sammála ráðh. um það — og raunar kom að því í minni ræðu hér áðan — að eðlilegt er að reynt sé að samfylkja sveitarfélögum helst í fleirtölu um þetta mál hér á höfuðborgarsvæðinu. Það væri ekki nema í lágmarkssamræmi við þann stuðning sem sveitarfélög úti um land hafa veitt náttúrugripasöfnum á sínum svæðum. Ég held að það sé af hinu góða að látið sé á það reyna strax nú á undirbúningsstigi þessa máls hvort svo geti ekki orðið.
Ég er einnig þeirrar skoðunar —- og þar erum við ráðh. sammála — ef við gerum ráð fyrir að þetta safn yrði innan ramma Náttúrufræðistofnunar Íslands, þó vissulega mætti hugsa sér einhverja breytingu á því frá gildandi lögum, þá sé skynsamlegt að andlitið, sem að almenningi snýr, sýningarsafn, verði fyrsti áfangi. Þegar gert er ráð fyrir því í till. að unnt verði að opna slíkt sýningarsafn að tæpum fimm árum liðnum þá er einmitt haft í huga að unnt verði að áfangaskipta slíkri byggingu. Ég vænti þess að samþykkt þessarar till. geti orðið verulegur stuðningur fyrir hæstv. menntmrh., þann er nú situr og þá sem á eftir koma og þurfa að sinna þessu máli. Því treysti ég því að till. fái hraða ferð í gegnum þingið og unnt reynist að samþykkja hana fyrir þinglok þar sem hér er um að ræða samkomulagsmál allra þingflokka eins og sést af þeim sem eru aðstandendur og flm. þessarar till.
Ég vil þakka hv. 1. þm. Vesturl. fyrir hvatningarorð í þessu sambandi. Það voru vissulega orð í tíma töluð sem hann sagði um bók náttúrunnar sem þörf væri á að gera Íslendinga læsari á en tekist hefur til þessa. Menn leita oft langt yfir skammt að hugsvölun og dægrastyttingu sem í rauninni er að finna í umhverfinu hið næsta okkur. En til þess að fá notið þess til fullnustu þurfum við að vera læs á bók náttúrunnar eins og hv. þm. Friðjón Þórðarson orðaði það svo vel hér áðan.