30.05.1985
Sameinað þing: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5760 í B-deild Alþingistíðinda. (5085)

485. mál, málefni myndlistarmanna

Flm. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Á þskj. 874 flytjum við till. til þál. um málefni myndlistarmanna. Flm. auk mín eru hv. þm. Guðrún Helgadóttir, Hjörleifur Guttormsson og Ragnar Arnalds. Tillgr. er á þessa leið:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa í samvinnu við Samband íslenskra myndlistarmanna nefnd er vinni að till. um úrbætur í hagsmunamálum myndlistarmanna. Bendir Alþingi á eftirfarandi atriði sem rétt er að nefndin hafi til hliðsjónar:

1. Að undirbúin verði stofnun Launasjóðs myndlistarmanna með tekjum eins og bent var á í ályktun Myndlistarþings 1985.

2. Að fullgild aðild Íslands að Flórens-sáttmála varðandi flutning listaverka milli landa verði tekin til athugunar og ákveðin á næsta þingi.

3. Að samin verði drög að lagafrv. sem tryggi betur en nú er gert að myndlistarmenn fái notið réttar síns skv. höfundalögum.

4. Að ákveðið verði hvernig ríkið framvegis styður Listasafn Sigurjóns Ólafssonar.

5. Að sveitarfélög taki fullan þátt í átaki til að efla myndlistarstarfsemi.

6. Að Listskreytingasjóður fái það fjármagn sem honum er ætlað skv. lögum.

7. Að farið verði yfir tillögugerð myndlistarmanna frá síðustu árum og þær till. hagnýttar sem nefndin kemur sér saman um.

Nefndin ljúki störfum svo fljótt að unnt verði að taka álit hennar til meðferðar á næsta löggjafarþingi.“

Í grg. er vitnað til ályktunar frá Myndlistarþingi 1985, en það þing bar yfirskriftina „Myndlist sem atvinna“. Þar voru samþykktar ályktanir og ábendingar og leyfi ég mér að lesa þær hér upp:

„Myndlistarþing 1985 telur hag myndlistar standa höllum fæti miðað við aðrar listgreinar. Þrátt fyrir einstæðan áhuga almennings á myndlistum eru listasöfn enn í fjársvelti og geta því ekki framfylgt lögum sínum. Hráefni og tæki til myndlista hafa verið tolluð árum saman meðan aðrar listgreinar fá niðurfellingu gjalda. Höfundarréttur er enn ekki virtur sem skyldi og ekki tekið tillit til myndlista í gerðardómi vegna ljósritunar kennsluefnis í skólum. Þörfum fyrir vinnustofur hefur lítið sem ekki verið sinnt.

Myndlistarþing telur þó brýnast mála að stofnaður verði Launasjóður myndlistarmanna til að jafna hag þeirra svo að fleiri geti nýtt menntun sína og kunnáttu að fullu. Nú vinnur þingskipuð nefnd að heildarendurskoðun sjóða vegna lista. Bindur þingið vonir við starf hennar og væntir leiðréttinga fyrir myndlistarmenn.

Vegna kröfu um stofnun Launasjóðs myndlistarmanna vísar þingið til hliðstæðra sjóða í öðrum listgreinum og beitir sömu rökum og voru fyrir stofnun þeirra. Bendir þingið á ýmsar leiðir til fjáröflunar í slíkan sjóð, m. a. söluskatt af endursölu listaverka á uppboðum og söluskatt af efni til listiðju. Öðrum till. til tekjuöflunar í sjóðinn, svo sem ákveðnum hundraðshluta af sölu listaverka á sýningum og greiðslum fyrir höfundarrétt verka í opinberri eigu, vísar þingið til nánari umfjöllunar Sambands ísl. myndlistarmanna.

Myndlistarþing lýsir ánægju sinni vegna stofnunar menningarsjóða sveitarstjórna og fyrirtækja. Jafnframt hvetur þingið þau bæjar- og sveitarfélög, sem bolmagn hafa til, að taka upp þann hátt Reykjavíkurborgar að veita árlega starfslaun listamanns.

Þingið lýsir ánægju sinni yfir starfslaunum Reykjavíkurborgar til myndlistarmanns en mælist til að þeim verði fjölgað og um þau verði farið að lögum, varðandi launatengd gjöld.

Þingið telur að Íslandi beri nú þegar að gerast fullgildur aðili að Flórens-sáttmálanum um tollfrjálsan flutning listaverka milli landa, en tollhömlur hafa skapað mikinn vanda í sýningum íslenskra listamanna erlendis. Myndlistarþing ítrekar ályktun frá þinginu 1981 að of hægt miði til þess að myndlistarmenn fái notið réttar síns skv. höfundalögum. Enn búa myndlistarmenn við það óréttlæti, einir listamanna, að ekkert fast umsamið endurgjald er fyrir birtingu hugverka þeirra á opinberum vegum. Við slíkt verður ekki unað öllu lengur. Myndlistarþing beinir þeim tilmælum til stjórnar Sambands ísl. myndlistarmanna að könnuð verði réttarstaða myndlistarmanna varðandi greiðslur fyrir ljósritun á hugverkum þeirra í skólum í kjölfar gerðardóms sem féll 4. maí 1984.“

Síðan er í ályktunum Myndlistarþings fjallað um söfn og gallerí. Þar er sérstaklega vikið að stofnun Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og þar er skorað á stjórnvöld ríkis og borgar að styðja þetta merka framtak afdráttarlaust svo að hús Sigurjóns Ólafssonar fái að standa óhögguð á sínum stað á Laugarnesi með því safni listaverka sem hann skildi eftir sig.

Ég vek athygli á því, herra forseti, að það má kannske segja að það liggi ekki beint við að í almennri till. um málefni myndlistarmanna séu tekin upp ákvæði um eitt safn eins og hér er gert. Ég kaus þó að taka hér upp safn Sigurjóns Ólafssonar vegna þess að þar er þegar um verulegan vanda að ræða sem erfingjar hans og ábyrgðarmenn á þessu listasafni eiga erfitt með að standa undir án þess að einhver opinber stuðningur komi til. Ég held að hérna sé um að ræða mjög merkilegt safn sem á sér þann sess í Reykjavíkurborg að full ástæða væri til að sýna því fullan sóma af hendi ríkis og borgar. Af þeim ástæðum er þetta safn tekið hér út úr, eins og í viðurkenningarskyni — sem ég vona að Alþingi fallist á — við það mikla framlag sem Sigurjón Ólafsson á til listasögu Íslendinga á þessari öld.

Myndlistarþing fjallaði einnig um listskreytingar og Listskreytingasjóð og ræddi síðan um húsnæðismál myndlistarmanna þar sem vikið er að mörgum almennum og einstökum þáttum í starfsskilyrðum myndlistarmanna.

Ég taldi óhjákvæmilegt, herra forseti, að gefa Alþingi kost á því að ræða og taka afstöðu til þessara mála. Ég geri mér grein fyrir því að það lifir skammur tími eftir af þinghaldinu og þess vegna ekki víst að till. af þessum toga nái afgreiðslu. Ég tel hins vegar að það sé mjög brýnt að Alþingi taki á þessu máli sem snertir myndlistarmenn. Þeir eru að mörgu leyti afskiptari en aðrir listamenn um réttarstöðu og fjármuni og því nauðsynlegt að á þeirra máli verði tekið.

Mér er kunnugt um að það er starfandi á vegum opinberra aðila nefnd sem sinnir heildarendurskoðun sjóða hér á landi sem starfræktir eru vegna lista, bæði myndlistar og annarra listgreina. Myndlistarþing batt vonir við starf þessarar nefndar og væntir þess að það fáist leiðrétting að því er myndlistarmenn varðar. Mér er það ljóst að vandi þessarar nefndar er mikill. Hér verður auðvitað að tryggja fjármuni og það verður líka að tryggja að þeim sé sæmilega réttlátlega skipt og það er kannske ekki auðveldasta verk sem menn komast í að skipta fjármunum réttlátlega þannig að allir aðilar fallist á niðurstöðuna. Orkar þá oft flest tvímælis sem gert er.

Ég held þó að það sé mjög nauðsynlegt að þessi nefnd ljúki störfum og leggi fram hér fyrir Alþingi till. um heildarendurskoðun á þessum sjóðamálum sem

snúa að listamönnum og listastarfsemi hér í landinu. Það væri gott ef formaður nefndarinnar, hv. 2. þm. Norðurl. eystra gæti sagt okkur lítillega frá störfum þessarar nefndar ef hann hefur aðstöðu til í tilefni af þeim tillöguflutningi sem hér er uppi.

Herra forseti. Ég legg til að till. verði vísað til allshn. þegar þessum hluta umr. er lokið.