31.05.1985
Efri deild: 86. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5778 í B-deild Alþingistíðinda. (5107)

478. mál, tónlistarskólar

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Hæstv. forseti. Þetta er frv. sem var flutt í hv. Nd. Deildin gerði nokkrar breytingar á frv. sem öll menntmn. var sammála um. Rætt var við þá sem standa að rekstri tónlistarskóla um þessar breytingar, bæði fulltrúa sveitarfélaga, ríkis og einnig einkatónlistarskóla. Og um þessar brtt. var enginn ágreiningur. Þetta vildi ég taka fram til að byrja með.

Að öðru leyti vil ég segja um þetta frv. að það var unnið fyrir þó nokkru í menntmrn. Það var að mestu leyti unnið í tíð hæstv. forseta Nd. þegar hann var menntmrh. Tilgangur þess er fyrst og fremst sá að auðvelda faglegt eftirlit með þessu skólahaldi. Með þessu eru lögin gerð nokkru einfaldari og gleggri en áður var. Hins vegar felur það ekki í sér neinar grundvallarbreytingar eða kerfisbreytingar.

Þetta er frv. sem lætur ósköp lítið yfir sér, en verði það að lögum gerir það starfsemina auðveldari, uppgjörið gleggra og hin faglegu gæði eru betur tryggð. Í raun og veru er það þetta sem þetta mál ,nýst um. Mér er óhætt að segja að það er á engan veg ágreiningsatriði þeirra sem hlut eiga að þessum málum. Þess vegna vænti ég þess að það geti orðið til þess að styðja við þá mikilvægu starfsemi sem felst í rekstri tónlistarskólanna víða um landið og hefur svo sannarlega verið lyftistöng tónlistarlífi um land allt.

Ég legg til, hæstv. forseti, að þessu frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn. þessarar deildar.