31.05.1985
Efri deild: 86. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5781 í B-deild Alþingistíðinda. (5111)

478. mál, tónlistarskólar

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Hæstv. forseti. Það eru stundum eins og sólskinsblettir á annasömum og þungbúnum þingdögum. Svo er einmitt nú þegar fjallað er um mál sem e. t. v. er ekki stórt í sniðum en snertir hið fagra og mikla svið, tónlistina. Það er ánægjulegt að verða þess vör hve einlægan stuðning slík mál eiga meðal þm. sem hafa ólíkar stjórnmálaskoðanir. Raunar varð ég vör við svipaða samstöðu í Sþ. í gær þegar fjallað var um aðrar listgreinar. Þessu er sannarlega ástæða til að fagna. Við vitum þó að það eru til þau tjáningarform sem verða til þess að menn með ólíkar skoðanir finna til samstöðu og skilja hver annan. Á því þurfum við vissulega að halda.

Ég vildi, hæstv. forseti, sérstaklega víkja að Tónlistarskólanum í Reykjavík, sem hv. 5. landsk. þm. vék að og hefur vissulega sérstöðu sem eins konar móðurskóli hinna og hefur í framkvæmd orðið skóli á háskólastigi. Ég vil geta þess að það hefur verið unnið að sérstakri löggjöf um þennan skóla. Ástæðan til þess að frv. hefur ekki enn verið flutt er að herslumun hefur vantað til þess að frv. væri tilbúið og það er einmitt vegna þessa atriðis að skólinn hefur verið rekinn sem sjálfseignarstofnun, en m. a. til þeirrar staðreyndar hefur hann sótt lífskraft sinn í upphafi. Á bak við Tónlistarskólann eru verðmæti sem eru sköpuð af einstaklingum sem unnu tónlistinni framar öðrum listum og vildu leggja sitt af mörkum, sína vinnu og árangur erfiðis síns til þess að standa undir þessum skóla. Ég hef af því vissar áhyggjur ef þessi andi hverfur úr skólanum. Ég vil ganga svo frá frv. um þennan skóla að tengsl við þennan bakhjarl séu áfram tryggð ef þess er nokkur kostur. Ég vona að það takist fljótlega.

Annað atriði, sem menn hafa velt fyrir sér og kann að vera að við séum ekki algjörlega sammála um, hv. 5. landsk. þm. og ég, er það hvort viðurkenna á þá staðreynd í sjálfri löggjöfinni að Tónlistarskólinn er kominn á háskólastig. Ég er þeirrar skoðunar að það sé skynsamlegt að viðurkenna þessa staðreynd og leyfa honum að vera að formi til og opinberlega tónlistarháskóla. Hann er það í raun og ég tel að það ætti að viðurkenna það einnig að lögum. Ég hygg að það muni veita nemendum hans betri möguleika í sambandi við framhaldsnám víða um heim. Ég hef engar sérstakar áhyggjur af því þó að t. d. myndlistarháskóli og tónlistarháskóli séu ekki deildir í Háskóla Íslands. Listaháskólarnir eru svo sérstæðs eðlis að ég tel að þeir gætu alveg staðið sem sjálfstæðar stofnanir en verið samt á háskólastigi. Það gefur vissulega þeim nemendum sem háskólanám vilja stunda fjölbreytilegri möguleika. Það er líka í stíl við þann sess sem verkefni þessara skóla eiga að skipa að viðurkennt sé að þeir séu svona settir og að kennarar listaháskólanna með sína menntun og sína snilligáfu njóti kjara á borð við kennara í Háskólanum. Ég sé ekki nokkurn skapaðan hlut á móti því. Ég tel það þvert á móti skynsamlegt.

Það er hins vegar hreint stjórnskipunaratriði. má segja, hvort slíkir skólar séu í heild undir hatti Háskóla Íslands. Það má vel vera að það reki að því einhvern tíma, en á þessu stigi sé ég ekki að það atriði skipti höfuðmáli. Ég tel hins vegar skipta meira máli að okkur takist að setja lög um Tónlistarskólann í Reykjavík sem yrði væntanlega Tónlistarskóli Íslands eða Tónlistarháskóli Íslands ef Alþingi sýndist svo. Ég vil geta þess nú að ég tel að það væri skynsamlegt og er fús til þess að kalla saman nú einhvern daginn. þegar um hægist. þm. úr menntamálanefndum til að kynna þeim þau drög sem þegar liggja fyrir að frv. um Tónlistarskóla Íslands þannig að þeim gefist kostur á að koma að því máli á undirbúningsstigi því að ég tel að þegar þar að kemur skipti miklu máli að samstaða náist um það.

Ég sá. hæstv. forseti, ástæðu til að víkja að þessu máli og gefa upplýsingar um hvernig það stæði, en ítreka að ég fagna viðtökum þm. við þessu litla frv. sem hér er til umr.