31.05.1985
Efri deild: 86. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5782 í B-deild Alþingistíðinda. (5112)
478. mál, tónlistarskólar
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Hæstv. menntmrh. fagnaði því að sjá hér eins konar sólskinsblett í heiði þegar menn eru sammála um það sem vel er gert og gott er. En það er nú svo í þessari ágætu deild að hér er yfirleitt samfellt sólskin, að það dregur sjaldan ský fyrir sólu. Það er þá í mesta lagi að það dragi aðeins fyrir, en meira verður það nú ekki.
Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar sem hún gaf. Mér er alveg fyllilega ljóst að þetta er atriði sem menn deila um. Á að vera tónlistarháskóli, á að vera myndlistarháskóli eða ætti e. t. v. að vera listaháskóli? Þó að ég hafi lýst þeirri skoðun hér að þetta gætu sem best verið deildir í Háskóla Íslands og að mér fyndist fullmikið í lagt að við, ekki fleiri en við erum, værum með marga háskóla, þá eru þetta auðvitað mál sem má ræða og verður að skoða og yfirvega í rólegheitum hvað er hagkvæmast, með íhugun og skynsemi.
Ég veit ekki hvort það breytir svo ýkjamiklu fyrir nemendur sem ljúka brottfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hvort það kallast vera á háskólastigi eða ekki. Þegar þessir nemendur fara til framhaldsnáms erlendis þreyta þeir jafnan inntökupróf í skóla. Þá er það kunnáttan, þjálfunin og leiknin sem sker úr. Það er nefnilega orðið svo að því er varðar inntöku í ýmsa æðri skóla að vandaðir skólar erlendis hafa. að ég hygg, tilhneigingu til að taka æ minna mark á prófskírteinum frá skólum sem eru neðar á skólastiginu. Þetta á sér mjög eðlilegar skýringar því að það er orðið svo sums staðar í grannlöndum okkar að stúdentspróf er ekki próf, heldur skírteini. Það er búið að fella niður prófið. Þetta skírteini gefur ákaflega litla vísbendingu um kunnáttu, ástundun eða þekkingarforða þess nemanda sem um ræðir. Það er af þeirri ástæðu sem æ fleiri háskólar hafa tekið upp inntökupróf. Ég held ég fari rétt með að í Noregi sé orðið skilyrði að nemendur taki inntökupróf í nær allar háskólagreinar nema lögfræði og þar mun vera í athugun að taka það upp líka. Ég veit því ekki hversu mikla þýðingu nafngiftin ein hefur. Sjálfsagt er hún í einhverra hugum eitthvert gildi, statustákn. En allt þetta þarf að skoða og ég fagna því að hæstv. menntmrh. ætlar að gera þm. sem sæti eiga í menntamálanefndum tækifæri til að kynna sér þetta frv. nú á meðan það er á umræðustigi.
Ég get ekki tekið undir þá röksemd að eitt af því sem valdi því að rök hnígi að því að gera þarna nafnbreytingu sé að það auðveldi að skapa kennurum við tónlistarskóla sömu kjör og háskólakennurum. Ég held að það hljóti að vera unnt að skapa tónlistarkennurum viðunandi kjör án þess að til slíkrar nafnbreytingar komi. Ég þykist nú vita að við séum alveg sammála um það, hæstv. menntmrh., að slíkt á ekki að vera neitt ákvörðunaratriði í þessu máli. — En ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þær upplýsingar sem hún greindi frá og boð hennar um að menntmn. — menn fengju að kynna sér þessi mál.