31.05.1985
Neðri deild: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5783 í B-deild Alþingistíðinda. (5116)
Tilhögun þingfunda
Forseti (Ingvar Gíslason):
Ég vil geta þess, og þarf varla á það að minna, að dagskrá þessa fundar er býsna löng. Það eru 17 mál á dagskrá og vafalaust harla margt mála sem þarf ítarlega umfjöllun. Forseti vill nú mælast til þess að hv. þdm. sýni þingstörfunum sérstakan sóma nú er við höldum hér fund á föstudegi og reyni að ljúka sem allra flestum málum. Ætlunin er sú að þingfundir standi frá því um kl. 2 og fram undir kvöldmatarleyti, en að ekki verði kvöldfundur. Ég vil einnig geta þess að ráðgert er að haldnir verði tveir fundir í Nd.