31.05.1985
Neðri deild: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5784 í B-deild Alþingistíðinda. (5118)
29. mál, endurmenntun vegna tæknivæðingar
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Því miður varð ég að falla frá orðinu í lokaumræðu sem fram fór um þetta mál þar sem ég var ekki staddur í bænum og gat því ekki verið á fundi þegar umræðu um það lauk. En þar sem mér gefst hér tækifæri til að segja nokkur orð við atkvgr. vil ég láta það koma fram að yfirlýsing hefur komið frá hæstv. menntmrh. um að að þessum málum sé unnið og á næsta hausti liggi fyrir skýrsla um málið. Af þeim ástæðum tel ég eðlilegt að beðið sé með að setja sérstaka löggjöf um þetta mál og segi því já við fram kominni tillögu.