31.05.1985
Neðri deild: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5797 í B-deild Alþingistíðinda. (5138)

416. mál, þingsköp Alþingis

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil mæla hér fyrir brtt. við frv. til l. um þingsköp Alþingis sem er á þskj. 1036 og er svohljóðandi:

„Við 8. gr. 1. mgr. orðist svo:

Kosning forseta, varaforseta og skrifara í Sþ. og báðum deildum er fyrir allt það þing. Svo er og um kosningu til Ed. Kosning kjörbréfanefndar skv. 4. gr. er fyrir allt kjörtímabilið.“

Þessi brtt. var flutt í Ed. við umræðu málsins þar af hv. þm. Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur. Meginhugsunin að baki þessari brtt. er sú að skapa sveigjanleika fyrir þingflokkana til að aðlaga sig þeim breytingum sem kunna að verða á kjörtímabilinu og sem kunna að vera ófyrirsjáanlegar í upphafi þess. Sá sveigjanleiki, sem hér um ræðir, er einkum mjög mikilvægur fyrir litla þingflokka sem hafa fáum þm. á að skipa og eiga því meira undir því komið en stórir þingflokkar að hægt sé að hnika til mönnum þannig að þeir nýtist sem best í þingstarfinu á hverjum tíma. Þetta fyrirkomulag var í gildi allt fram til ársins 1972, að kosið var til Ed. í upphafi hvers þings, og það má segja að sama fyrirkomulag hefur gilt og gildir enn um kosningu til nefnda þingsins fyrir hvert þing og það hafa engar tillögur komið fram um það að breyta því fyrirkomulagi.

Ég legg til með þessari brtt. að þarna verði skapað svigrúm og aukinn sveigjanleiki. Það hlýtur ævinlega að vera þingflokkum í sjálfsvald sett hvernig þeir haga þingstörfum sínum á hverjum tíma og ég tel nauðsynlegt að þarna skapist aukið svigrúm.