31.05.1985
Neðri deild: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5798 í B-deild Alþingistíðinda. (5140)
416. mál, þingsköp Alþingis
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það hefur heyrst á Alþingi Íslendinga af og til að æskilegt sé að þingið starfi í einni málstofu. Þær breytingar, sem hér eru lagðar til á þingsköpum, benda aftur á móti til þess að það sé ekki æskilegt að þingið starfi í einni málstofu. Þær eru allar á þann veg að það er þrengdur réttur manna til tjáningar í þinginu, en ef þing starfaði í einni málstofu má leiða að því gild rök að það yrði til að lengja umfjöllun þingsins um hin ýmsu mál.
Ég hygg að það sé eitt og annað í þessu frv. sem horfir til bóta en engu að síður vekur það líka ýmsar spurningar. Nú er það svo að ef menn una illa þeim tíma sem fæst til efnislegrar umræðu þá þrýstir það mjög á að þm. biðji um orðið og vilji ræða þingsköp. Mér er ekki ljóst hvort við bætum umræðuna mjög mikið með því að auka þá hættu að menn vilji ræða þingsköp. Ég tel þess vegna að það sé gengið á ystu nöf varðandi það atriði að skerða málfrelsi hér í þinginu og það sé gengið óþarflega langt.
Það er einnig eitt atriði sem mér hefur fundist að skapi þó nokkurn veikleika í öllum störfum þingsins og það er sú staðreynd að þáltill., sem fara til nefnda, eiga í sumum nefndum jafnframt flesta flm. að viðkomandi þáltill. Það er mikil spurning hvort sú nefnd sé raunverulega hæf til að fjalla um þáltill. þegar flm. eru jafnframt flestir meðlimir í nefndinni. Þeir eru sem sagt umsagnaraðilar um eigin málatilbúnað. Kannske er það líka gallinn við þetta frv. að umsagnaraðilarnir með eigin málatilbúnaði eru e. t. v. sömu mennirnir að mestu leyti og sömdu frv. eða hafa haft veruleg áhrif á samningu þess þó ekki sé meira sagt.
Mér finnst að hugleiðingar um þessi mál hljóti að eiga rétt á sér því að það blasir við að eftir að mál koma úr nefndum og hingað til atkvæðagreiðslu er það meginregla að mæli meiri hl. nefndar með máli þá fer það í gegnum þingið og miklu minna á hitt horft hvort umsagnaraðilarnir eru þeir sömu og voru flutningsaðilar að málinu.
Ég tel að það sé mjög til bóta að taka það upp að það sjáist í hverju tilfelli hvernig menn greiða atkvæði. Það er ekki neitt nýtt í sögu þingræðis að þannig sé að málum staðið. Á þingi Sameinuðu þjóðanna sést það í hverju einstöku máli hvernig fulltrúarnir hafa greitt atkvæði og einnig hverjir hafa verið fjarverandi. Það er einnig að mínu viti skynsamlegt að menn geti gert grein fyrir atkvæði sínu bæði á undan atkvæðagreiðslu og einnig eftir að atkvæðagreiðsla hefur farið fram.
En það sem mér finnst mesti veikleikinn í þessu frv. um þingsköp Alþingis er það að ég tel að gengið sé lengra í skerðingu á málfrelsinu en æskilegt er. Ég vil spyrja frsm., hv. 1. þm. Norðurl. e., hvaða rök séu fyrir því að sá sem flytur mál eigi að hafa helmingi lengri ræðutíma en sá aðili sem snýst gegn málinu og vill fella það. Nú er það svo að sækjandi og verjandi hafa sama rétt í málsmeðferð fyrir dómstólum. Á hvaða forsendum skyldi sá sem sækir mál og vill koma því á framfæri hafa meiri rétt en sá sem vill snúast gegn málinu og fella það? Er ekki rökrétt að gera ráð fyrir því að það geti þurft ekki minni tíma til að útskýra það hvers vegna maður er á móti máli en hvers vegna maður er með máli?
Hitt er svo tvímælalaust rétt og við höfum oft orðið vitni að því að umræður geta dregist úr hófi, orðið óeðlilega langar vegna þess að við höfum haft mjög rúm þingsköp allt til þessa. En spurningin er: Göngum við ekki of langt á hinn veginn eins og þetta hefur nú verið lagt fyrir þingið?