04.06.1985
Sameinað þing: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5840 í B-deild Alþingistíðinda. (5189)
220. mál, beinar greiðslur til bænda
Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir svör hans. Það er alveg rétt að það var kannske ekki efni til að þau yrðu öllu ítarlegri. Það er verið að fjalla um öll þessi mál nú og verða þau væntanlega afgreidd í næstu viku, eins og ég sagði hér áðan.
Þegar þessi barátta hófst fyrir því að tryggja bændum þá fjármuni sem þeim bar og þeim ber var kerfið auðvitað margslungið, eins og ég vék aðeins að áðan, og allir hv. þm. þekkja þessa sögu og hvernig um hnútana var búið. Það var þess vegna varla hægt að krefjast á því stigi fullrar staðgreiðslu við innlegg vara í afurðasölufyrirtækin sem er þó eina rétta aðferðin. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að svo skuli vera í framtíðinni. Ég vænti þess að hæstv. landbrh. hafi rétt fyrir sér þegar hann segir úr þessum ræðustól að með þessu muni því lokið að bændur fái ekki greiðslu fyrir afurðir sínar eins og aðrir menn fá greitt fyrir sína framleiðslu og sín vinnuafköst og þess vegna þurfi ekki oftar að flytja fsp. af því tagi sem hér eru á dagskrá.
Ég skal ekki fara að efna til deilna um þetta mál. Þetta er meira og minna liðin tíð og við bætum okkur ekkert á því að vera að rífast um það sem búið er. En ég kemst þó ekki hjá að þakka hv. þm. Agli Jónssyni fyrir þau orð sem hann mælti áðan.