04.06.1985
Sameinað þing: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5841 í B-deild Alþingistíðinda. (5192)

434. mál, atvinnumál í Hafnarfirði

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Það er rétt, eins og fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda. að það hefur mikið breyst frá því að þessi fsp. var lögð fram og reyndar allmikið síðan hann var reiðubúinn að reifa hana hér og ég reiðubúinn að svara. Ýmislegt hefur tafið þetta mál.

Það er ákaflega eðlilegt að hv. þm. Reykn. hafi áhyggjur af því ástandi sem hefur skapast. Í fljótu bragði vil ég segja að ríkisstj. hefur fjallað um atvinnuleysi í Hafnarfirði og ég fékk að sjálfsögðu í hendur ályktun verkalýðsfélaganna og sömuleiðis skömmu síðar ályktun fulltrúa verkalýðsfélaganna. Hún er dags. 10. apríl og fékk ég hana mjög fljótlega eftir það. Sömuleiðis fékk ég svar bæjarstjórnar Hafnarfjarðar sem dagsett er 18. apríl.

Ég átti sérstakan fund með fulltrúum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fáeinum dögum eftir að ég fékk þetta bréf dagsett 18. apríl. Svar eða rökstuðning fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna dagsett 3. maí fékk ég einnig. Og reyndar í millitíðinni fékk ég bréflega staðfestingu á samtali mínu við fulltrúa bæjarstjórnarinnar, og er það bréf dagsett 26. apríl, þar sem þessi mál eru öll ítarlega rakin. Það yrði allt of langt mál að fara yfir þetta allt saman. en ég skal þó reyna að drepa á fáein meginatriði.

Eins og fram kemur í þessu hefur ríkisstj. haft til umfjöllunar atvinnumál í Hafnarfirði og sérstaklega hafa þau verið á mínu borði. Auk þess hefur sú deild við félmrn. sem um þessi mál fjallar fylgst vandlega með þeim og ég hef fengið upplýsingar frá þeirri stofnun.

Við annarri spurningu er einnig játandi svar. Það hafa málaumleitanir komið til okkar í formi þeirra ályktana sem ég hef nefnt.

Við þriðju spurningunni er það að segja að í bréfi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 26. apríl er farið fram á að ríkisstj. aðstoði við uppgjör hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og hef ég heitið að sú aðstoð verði veitt eins og frekast er unnt.

Ég vil svo til nánari upplýsingar vekja athygli á því að ákaflega mikið ber á milli þess sem fullyrt er í bréfi fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. ályktana sem þar koma fram, bæði ályktun sem beint er til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og til ríkisstj., og svo upplýsinga sem fram koma í bréfi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 18. apríl s. l.

Í bréfi fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna er talið að atvinnuleysingjar í Hafnarfirði séu um 2110 manns þegar sú ályktun er gerð 10. apríl. Hins vegar kemur fram í bréfi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að það muni vera allt of há tala. Ég lét kanna það hjá skrifstofu þeirri í Hafnarfirði sem hefur með atvinnuleysistalningu að gera og kemur sama fram í þeim upplýsingum.

Ég lét einnig kanna þetta fyrir viku og skv. upplýsingum sem ég fékk frá vinnumáladeild félmrn. voru föstudaginn 24. maí 42 á atvinnuleysisskrá í Hafnarfirði. Það eru 0.7–11.8% mannafla sem er raunar nákvæmlega það sama og er yfir landið allt. Þeim hefur þá fækkað frá 30. apríl úr 62 sem voru þá á atvinnuleysisskrá.

Upplýst er að þessir 42 skiptast þannig að 28 voru konur, þar af 17 verkakonur og 10 konur sem unnið hafa verslunarstörf. Karlar voru 14 talsins, þar af 9 verkamenn. Sex úr hópi atvinnulausra. 1 kona og 5 karlar, skiptust á ýmsar greinar. Af 17 atvinnulausum verkakonum höfðu 12 áður unnið hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, en 6 af 9 atvinnulausum verkamönnum.

Hátt á annað hundrað manns voru í vinnu hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og hefur þorri þess fólks fengið vinnu ýmist hjá Sjólastöðinni, Íshúsi Hafnarfjarðar eða Norðurstjörnunni. Með þessu er ég vissulega ekki að gera lítið úr því ástandi sem þarna skapaðist, en þó vil ég leyfa mér að halda því fram að furðu vel hafi tekist að leysa úr atvinnuleysismálum í Hafnarfirði.

Hins vegar þykir mér jafnframt rétt að láta koma fram upplýsingar úr bréfi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar frá 27. apríl. Þar segir, með leyfi forseta:

„Á síðasta ári var tap bæjarútgerðarinnar 112.6 millj. kr. og skuldir útgerðarinnar voru um síðustu áramót áætlaðar 477.7 millj. kr. Þá eru gjaldfallnar afborganir, vextir og dráttarvextir af langtímalánum um 60.4 millj. kr. Langtímaskuldir voru þá að höfuðstól tæpar 290 millj. kr., en afborganir og vextir af þeim á árinu 1985 eru áætlaðar tæpar 70 millj. kr. Um áramótin námu skammtímaskuldir við þjónustuaðila og fleiri a. m. k. 50 millj. kr. Að óbreyttu hefði því orðið greiðsluskylt hjá fyrirtækinu á þessu ári a. m. k. 180 millj. kr., en til samanburðar má nefna að tekjur útgerðarinnar á síðasta ári voru 187.5 millj. kr.“

Ég hygg að þessi stutti kafli úr þessu bréfi hljóti að nægja til að lýsa þeirri mjög alvarlegu stöðu sem var orðin hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og hljóti að bera með sér að svo gat ekki fram haldið. Ég er ekki í stöðu til að meta til hvaða ráða bar að grípa og ég veit að það eru skiptar skoðanir um það innan bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, en ég undirstrika aftur að það gat ekki svona áfram haldið.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur tekið sínar ákvarðanir og er það að sjálfsögðu án afskipta stjórnvalda. Það er vissulega von mín að takist að endurreisa Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, en það mun að sjálfsögðu verða mjög kostnaðarsamt fyrir bæjarsjóð.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar fer þess á leit í bréfi sínu frá 26. apríl að ríkisstj. veiti aðstoð við þær skuldbreytingar sem óhjákvæmilegar eru og ég hef tjáð bæjarstjórn að ríkisstj. muni reiðubúin til þess. Við höfum hins vegar ekki talið kleift að heimila erlenda lántöku í þessu skyni. Ég hygg að hv. þm. sé ljóst að þar er ekkert borð fyrir báru. Mín skoðun er að fram úr þessu verði að ráða í gegnum opinbera sjóði, gegnum Framkvæmdasjóð, Byggðasjóð, Fiskveiðasjóð og aðra þar sem skuldirnar fyrst og fremst hvíla. Ég veit að sumir þessara sjóða hafa tekið málaleitun bæjarstjórnarinnar allvel, en hjá öðrum eru þessi mál enn þá til meðferðar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þess má geta að ríkisstj. kemur að málum Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Um áramótin 1982–1983 leituðu bæjaryfirvöld í Hafnarfirði t. d. til þáverandi ríkisstj. um aðstoð vegna fjárhagserfiðleika. Þá voru fallnar í gjalddaga um 53 millj. kr. Af hálfu þáverandi ríkisstj. var fengið lán hjá Framkvæmdastofnun ríkisins og sömuleiðis breytti ríkisábyrgðasjóður gjaldföllnum afborgunum hjá sjóðnum vegna Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Sú skuldbreyting nam 12 millj. kr. Ég hygg að svipaða leið verði að fara nú. Hins vegar tel ég að Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og ráðstöfun eigna þar, endurreisn bæjarútgerðarinnar í einhverju formi, hljóti að vera á ábyrgð bæjarstjórnarinnar sjálfrar.