04.06.1985
Sameinað þing: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5853 í B-deild Alþingistíðinda. (5205)

490. mál, fóstureyðingar

Fyrirspyrjandi (Kristín S. Kvaran):

Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. heilbr.- og trmrh. á þskj. 914 varðandi störf úrskurðar- og eftirlitsnefndar um fóstureyðingar.

Ég vil hafa örlítinn formála að þessum spurningum vegna þess að mér finnst að öll umræða um þessi mál sé afar viðkvæm og það varði miklu að sú umræða geti farið fram án öfga og af þeirri varfærni sem nauðsynleg er.

Mér finnst tímabært nú, tíu árum eftir að þessi lög voru sett og jafnvel þótt fyrr hefði verið, að átta sig á ýmsum staðreyndum varðandi þetta mál og athuga hvort lögunum hefur verið framfylgt í hvívetna. Einnig hvort það geti verið að lögin séu e. t. v. þess eðlis að einhverju leyti að það verði ætíð að meira eða minna leyti mats- eða túlkunaratriði hvort þeim verði framfylgt, en slíkt á auðvitað ekki að geta átt sér stað. Það verður að vera alveg ljóst og menn verða að átta sig á því að þau lög sem hér um ræðir heita lög um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Það segir sig því sjálft að hér er gert ráð fyrir að það fari fram mjög mikil fræðsla og ráðgjöf um þessi mál. En þar er víða pottur brotinn eins og komið hefur fram. Ég vil þar með segja að heilbrigðis- og skólayfirvöld hafa að verulegu leyti vanrækt þennan þátt laganna, þ. e. að uppfylla ákvæði þeirra um fyrirbyggjandi aðgerðir í formi fræðslu og ráðgjafar.

Áður en lengra er haldið vil ég gjarnan fá að heyra þau svör sem fyrir hendi eru við þeim fimm spurningum sem ég hef lagt fyrir heilbrrh. um störf úrskurðar- og eftirlitsnefndarinnar. Ég tel ekki þörf að lesa upp þessar spurningar því að þær eru á þskj. 914.