04.06.1985
Sameinað þing: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5860 í B-deild Alþingistíðinda. (5218)

458. mál, almannafriður

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Hv. 8. þm. Reykv. hefur borið fram fsp. til mín. Hún er á þessa leið:

„Hvers vegna er 7. gr. laga nr. 45 frá 15. júní 1926, um almannafrið á helgidögum þjóðkirkjunnar, ekki framfylgt gagnvart starfsemi Ríkisútvarps — sjónvarps með sama hætti og gagnvart starfsemi kvikmyndahúsa?“

Lög um almannafrið á helgidögum þjóðkirkjunnar takmarka ýmsa starfsemi í þjóðfélaginu, svo sem ýmsa vinnu, kaupsýslu, samkomuhald, mannfundi og skemmtanir.

Í 7. gr. laganna er sérstaklega fjallað um föstudaginn langa, fyrra helgidag stórhátíðanna og aðfangadagskvöld. Er sú starfsemi sem að öðru leyti er takmörkuð af helgidögum þjóðkirkjunnar bönnuð þessa daga. Jafnframt eru almennar skemmtanir bannaðar eftir kl. sex kvöldið fyrir páskadag og hvítasunnudag.

Starfsemi kvikmyndahúsa, þ. e. opinberar kvikmyndasýningar, hefur almennt verið flokkuð undir almennar skemmtanir. Því hafa almennar kvikmyndasýningar ekki verið taldar heimilar þessa tilteknu daga. Þar með er ekki sagt að allar opinberar kvikmyndasýningar séu skemmtun, en það fer þá eftir efni kvikmynda. Starfsemi Ríkisútvarps — hljóðvarps frá upphafi eða sjónvarps, þ. e. útsending efnis, hefur sem slík ekki verið talin almenn skemmtun. Verður að telja að með almennri skemmtun sé átt við það þegar fólk safnast saman til að hlýða eða horfa á flutning efnis eða taka á einhvern hátt þátt í slíkri starfsemi. Því skilyrði verður ekki talið fullnægt við sendingu útvarpsefnis. Notkun útvarpsefnis fer að jafnaði fram á heimilum eða annars staðar, sem eigi mundi talin almenn skemmtun, en hugsanlegt er að sjálfsögðu að flutningur þess við tilteknar aðstæður yrði flokkaður undir það.

Lögin um almannafrið á helgidögum þjóðkirkjunnar eru frá árinu 1926. Ég tel tímabært að lögin verði endurskoðuð þar sem svo margt hefur breyst í okkar þjóðfélagi á þeim tíma sem síðan er liðinn. Sú endurskoðun er þegar hafin. Ég vænti þess að hægt sé að leggja fram frv. til breytinga á þessum lögum á næsta Alþingi í samræmi við það sem eðlilegt má telja og í samráði við yfirstjórn þjóðkirkjunnar.