04.06.1985
Sameinað þing: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5869 í B-deild Alþingistíðinda. (5232)
272. mál, námskeið fyrir fatlaða í tölvufræðum
Forseti (Helgi Seljan):
Ég hafði nú ekki hugsað mér að halda þessari umræðu mikið lengur áfram eða þessum fundi yfirleitt því að mér virðist svo sem hv. þm. Nd. hafi uppgötvað að þeir eigi fund eftir núna. Þingflokksmenn hafa greinilega ókyrrst og ekki skal ég hafa á móti því að deildarstörf gangi með eðlilegum hætti hér á eftir, en ég hafði hugsað mér að reyna, ef menn gætu orðið nokkuð stuttorðir um 8. og 9. dagskrármálið, að taka þau með. Hv. 5. þm. Vestf. hefur kvatt sér hljóðs um þetta mál.