04.06.1985
Sameinað þing: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5871 í B-deild Alþingistíðinda. (5239)
172. mál, kennslugögn í öllum fræðsluumdæmum
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég fagna því fyrir hönd flm. þessarar till. að hún skuli nú komin úr hv. allshn. Sþ. Að vísu gerir nefndin brtt. bæði um tillgr. sjálfa svo og fyrirsögn. Úr tillgr. hefur það verið numið brott að komið verði á fót kennslugagnamiðstöðvum í tengslum við fræðsluskrifstofur í öllum landshlutum, en í staðinn sett að kanna hvernig hagkvæmast sé að auðvelda skólum aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum. Á þessu er í reynd talsverður munur, einkum ef sú hugsun felst í brtt. að kennslugagnamiðstöðvum í Reykjavík verði einnig gert að standa undir slíkri miðlun til allrar landsbyggðarinnar. Slíkt væri aldrei gerlegt og auk þess andstætt hugmyndinni um kennslugagnamiðstöðvar í öllum fræðsluumdæmum. Enn fremur væri það andstætt hugmyndum um aukið sjálfstæði sveitarfélaga sem nýlega hafa verið mikið til umræðu. Það kann þó að vera að slík hugsun búi ekki að baki þessari brtt. og tel ég mikilsvert að viðurkennd séu þau mannréttindi sem tekin eru fram bæði í upphaflegu till. og einnig látin halda sér merkingarlega í brtt. og eru með þessu orðalagi, með leyfi forseta: „að tryggt verði að allir nemendur, hvar sem þeir búa á landinu, geti hagnýtt sér fjölbreytt kennslugögn í námi.“ Þetta er í stuttu máli einn af meginhornsteinum fyrir framtíð íslenskrar þjóðar og hann verðum við að hafa vit á að leggja. Ég vona því að þessi till. verði samþykkt þó í breyttu formi sé.