04.06.1985
Sameinað þing: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5872 í B-deild Alþingistíðinda. (5241)
444. mál, málefni aldraðra
Svar:
Að meðtalinni hækkun þann 1. júní 1983 hafa ellilífeyrir og tekjutrygging hækkað alls níu sinnum úr 6 095 kr. í 11 472 kr. þann 1. maí 1985. Þetta er 88% hækkun.
Þessar upphæðir hafa hækkað mismikið á tímabilinu þannig að tekjutrygging hefur hækkað úr 3285 kr. í 6819 kr., eða um 108%, en grunnlífeyrir úr 2810 kr. í 4653 kr. eða um 66%.
2. Hver hefur orðið hækkun á matvörum í framfærslugrundvelli á sama tíma og á landbúnaðarvörum sérstaklega?
Svar: Ráðherra telur að hér sé spurt um málefni á verksviði annarra ráðherra og mun því ekki svara þessu frekar.
3. Hvaða hækkun hefur orðið á gjöldum í íbúðum fyrir aldraða á sama tíma, til dæmis hjá Reykjavíkurborg?
Svar: Samkvæmt upplýsingum, sem ráðuneytið hefur aflað sér hjá Reykjavíkurborg, hafa húsaleigu- og þjónustugjöld í íbúðum fyrir aldraða hækkað um 60% frá 1. júní 1983 til 1. maí 1985.
4. Hver hefur á sama tíma orðið hækkun á: a. verði lyfja skv. lyfjaverðskrá I?
Svar: Með reglugerð nr. 78 frá 22. febr. 1983, um breyting á reglugerð um greiðslu almannatrygginga á lyfjakostnaði nr. 246/1982, voru greiðslur samlagsmanna, þ. e. elli- og örorkulífeyrisþega, ákvarðaðar 13 kr. fyrir hverja afgreiðslu og gilti sú greiðsla til 1. okt. 1983. Þá var hún hækkuð í 30 kr. Hinn 1. sept. 1984 hækkaði þessi greiðsla samlagsmanna í 60 kr. en 1. des. sama ár var hún lækkuð í 50 kr. og gildir sú upphæð nú.
Með breytingunni 1. des. 1984 var horfið frá þeirri reglu sem um nokkurt skeið hafði verið í gildi að elli- og örorkulífeyrisþegar greiddu hálft gjald fyrir lyf skv. lyfjaverðskrá I. Nú greiða þeir minna því að greiðslur annarra samlagsmanna eru nú 120 kr.
b. verði lyfja skv. lyfjaskrá II?
Svar:
Með sömu reglugerð og nefnd er í svari við lið a og á sömu dögum hafa greiðslur samlagsmanna, þ. e. elli- og örorkulífeyrisþega, hækkað úr 32 kr. í 50 kr. og síðan 120 kr. 1. sept. 1984. Hinn 1. des. 1984 lækkaði þessi greiðsla í 100 kr. og gildir sú upphæð nú.
Greiðslur annarra samlagsmanna eru nú 240 kr. þannig að það hlutfall, sem áður gilti milli samlagsmanna almennt og elli- og örorkulífeyrisþega, breyttist einnig hvað varðar ellilífeyrisþega og greiða þeir nú minna en hálft gjald móti öðrum samlagsmönnum.
Í sambandi við greiðslur fyrir lyf verður að geta þess að fjölmörg lyf eru greidd að fullu af almannatryggingum.
Hinn 1. apríl 1985 voru alls 938 sérlyf á sérlyfjaskrá í alls 2535 mismunandi stærðum af pakkningum, 1252 lyfjaformum og 1515 mismunandi styrkleikum. Þar af voru 213 sérlyf, þ. e. 702 mismunandi stærðir af pakkningum, sem ýmist voru greidd að fullu af almannatryggingum við tilteknum sjúkdómum, skv. reglugerð nr. 246/1982, eða greidd að fullu með samþykki trúnaðarlæknis og skiptast lyfin nokkurn veginn til helminga milli þessara flokka.
Nú gildir sú meginregla að samkvæmt sama lyfseðli má ávísa allt að 120 daga skammti, miðað við fyrirmæli læknis.
c. almennri læknisþjónustu?
Svar:
Greiðslur fyrir almenna læknisþjónustu voru hinn 1. júní 1983 þannig:
Viðtal á stofu 15 kr.
Vitjun 30 kr.
Þessar sömu greiðslur voru hinn 1. maí 1985:
Viðtal á stofu 75 kr.
Vitjun 110 kr.
d. sérfræðilæknishjálp?
Svar:
Greiðslur lífeyrisþega fyrir sérfræðilæknisþjónustu voru hinn 1. júní 1983 32 kr. en hinn 1. maí 1985 100 kr. Aðrir greiddu fyrir þessa þjónustu hinn 1. júní 1983 64 kr. en hinn 1. maí 1985 270 kr.
Frá 1. desember 1984 má aðeins krefja sjúkling um eina greiðslu fyrir hverja komu, hve margar tegundir rannsókna, ásamt viðtali eða aðgerð, sem um er að ræða. Áður greiddu samlagsmenn fyrir viðtal sérstaklega, fyrir röntgenrannsókn sérstaklega eða rannsókn á rannsóknastofu.
Sem dæmi má nefna að hinn 1. júní 1983 greiddi ellilífeyrisþegi 96 kr. fyrir viðtal við sérfræðing, röntgengreiningu og rannsókn á rannsóknastofu; hinn 1. október 1983 150 kr. og hinn 1. júní 1984 405 kr. Nú greiðir hann 100 kr. fyrir þessa þjónustu. Þar að auki greiðir hann aðeins 12 sinnum á ári, þ. e. mest 1200 kr. á ári, en eftir það er sérfræðilæknishjálpin ókeypis fyrir hann á því almanaksári.
Fyrir aðra en ellilífeyrisþega og öryrkja hafa þessar greiðslur breyst þannig: Hinn 1. júní 1983 var greiðslan 192 kr., hinn 1. okt. 1983 300 kr., hinn 1. júní 1984 810 kr. en síðan hinn 1. des. 1984 270 kr. Í reynd hafa því greiðslur allra sjúklinga lækkað fyrir meiri háttar viðtöl við sérfræðinga og rannsóknir sem gerðar eru í beinu framhaldi af þeim.
5. Hve margir aðilar njóta nú heimilishjálpar samkvæmt lögum um málefni aldraðra?
Nákvæmar upplýsingar um þetta atriði liggja ekki fyrir. Skv. upplýsingum Sambands ísl. sveitarfélaga var heimilishjálp rekin í 22 kaupstöðum á árinu 1980, sbr. fylgiskjal 1.
Í heilbrigðisráðuneytinu liggja fyrir upplýsingar um heimilishjálp aldraðra í a. m. k. 38 sveitarfélögum á árinu 1983 og voru notendur rétt rúmlega 2000 sé miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja frá sveitarfélögum, sbr. fylgiskjal II. Upplýsingar þessar eru settar fram með þeim fyrirvara að hér er ekki um tæmandi upptalningu að ræða.
6. Hve margir aldraðir eru á hjúkrunarheimilum?
7. Hve margir aldraðir eru á dvalarheimilum?
Í fylgiskjali III eru teknar saman tölur um vistrými annars vegar á dvalarheimilum fyrir aldraða og hins vegar á hjúkrunarheimilum. Kemur þar í ljós að 1. júní n. k. verður vistrými á dvalarheimilum fyrir 1289 vistmenn en 1095 á hjúkrunardeildum.
Athyglisvert er að bera þetta saman við þær tölur sem fyrir liggja um vistrými í ársbyrjun 1984. Þá voru vistrými á dvalarheimilum 1319 og á hjúkrunarheimilum 927.
Dvalarheimilisrýmum hefur því fækkað um 30 þó svo að eitt nýtt dvalarheimili hafi tekið til starfa á tímabilinu og plássum fjölgað örlítið á nokkrum hinna eldri. Á sama tíma hefur rýmum á hjúkrunardeildum fjölgað um 168.
Orsakir fjölgunarinnar eru tvíþættar, annars vegar nýjar stofnanir sem hafið hafa rekstur á þessu tímabili og hins vegar breytingar dvalarheimilisrýma í hjúkrunarrými vegna síhækkandi meðalaldurs vistmanna á þessum stofnunum. Jafnframt hafa hin eldri dvalarheimili neyðst til að fækka og breyta tvíbýlisherbergjum í einbýli.
Á árinu 1984 og fram til 1. júní 1985 hefur bæst við hjúkrunarrými á eftirfarandi stöðum: Í B-álmu Borgarspítala hefur ein deild með 26 rúmum bæst við, á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri er að bætast við hjúkrunardeild með 19 rúmum með fækkun á vistinni, á Selfossi hófst á s. l. ári rekstur hjúkrunardeildar með 26 rúmum og nýhafinn er rekstur nýrrar deildar með 20 rúmum við Garðvang í Garði.
Á fylgiskjali IV er tekið saman yfirlit um þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Upplýsingar um þetta hafa ekki legið fyrir áður í heild sinni og kemur á óvart hin geysilega uppbygging sem verið hefur á undanförnum árum í þessari tegund húsnæðis.
Hafa verður í huga við athugun þessara talna að annars vegar er heildarfjöldi íbúa í húsnæði af þessu tagi óviss en tala sú, sem hér er gefin upp, er lágmarkstala. Hins vegar verður að minnast þess að margt af þessu húsnæði er í raun í engu frábrugðið öðru íbúðarhúsnæði þar sem íbúðirnar tengjast engum þjónustukjarna.
8. Hve margir aldraðir eru á biðlistum vegna elli- og hjúkrunarheimila um þessar mundir?
Haft var símasamband við öll dvalar- og hjúkrunarheimili aldraðra í landinu til að afla upplýsinga um biðlista. Verður hér á eftir rakin niðurstaða þeirrar athugunar.
Elliheimilin Grund í Reykjavík og Ás í Hveragerði:
Eftir dvöl á þessum tveimur elliheimilum munu bíða u. þ. b. 290 manns. Biðlistinn hefur ekki verið metinn með hliðsjón af nauðsyn á vistun.
Hrafnista, dvalarheimili aldraðra sjómanna, Reykjavík: Á biðlista eru tæplega 500 einstaklingar. Biðlistinn hefur ekki verið metinn með hliðsjón af nauðsyn á vistun.
Droplaugarstaðir, dvalar- og hjúkrunarheimili, Reykjavík: Á biðlista eru 241 einstaklingur og 26 hjón. Af þessum 293 hefur 130 verið raðað í forgangsröð á dvalarheimilið og 94 á hjúkrunardeildina.
B-álma Borgarspítala í Reykjavík: Á biðlista eru samtals 58, þar af 22 í heimahúsum, 20 á öðrum deildum Borgarspítala og 16 á öðrum sjúkrastofnunum. Af þeim 22 í heimahúsum munu 5 vera í brýnni þörf fyrir vistun.
Öldrunarlækningadeildin Hátúni 10B: Á biðlista eru 15 (allir í heimahúsum) sem bíða dvalar á sjúkrahúsi til endurhæfingar, 11 eru á biðlista vegna sumarleyfisinnlagna, á Landspítala eru 8 sem bíða eftir flutningi og 16 bíða eftir endurhæfingu á dagspítala (af þeim eru 12 nú þegar á Landspítalanum).
Dvalarheimilið Höfði á Akranesi: Á biðlista eru u. þ. b. 60 manns. Þjónustuhópur aldraðra telur 25–30 manns úr þessum hópi vera í brýnni þörf fyrir vistun.
Dvalarheimilið Borgarnesi: Á biðlista eru 12. Þörf þeirra fyrir vistun hefur ekki verið metin.
Dvalarheimilið Stykkishólmi: Einn bíður eftir vist.
Öldrunarstofnun Önfirðinga á Flateyri: Á biðlista eru nokkrir úr hreppunum í kring.
Elliheimilið á Ísafirði: Sex manns eru á biðlista. Þörf þeirra fyrir vistun hefur ekki verið metin.
Héraðshæli A-Húnvetninga á Blönduósi: Um 10 manns bíða eftir rými í þeim hluta héraðshælisins sem er dvalarheimili. Þörf fyrir vistun hefur verið metin af lækni.
Sjúkrahúsið á Siglufirði: Biðlisti hefur ekki verið gerður heldur tekið eftir þörfum inn á langlegudeildina.
Dvalarheimilið Dalbær á Dalvík. Á biðlista eru 33. Þörf á vistun hefur ekki verið metin.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hornbrekka á Ólafsfirði: Á biðlista eru 22. Talið er af lækni að u. þ. b. helmingur þeirra sem bíða sé í brýnni þörf fyrir að fá inni.
Dvalarheimilin Skjaldarvík og Hlíð, Akureyri: Á biðlista munu vera tæplega 300 manns. Þörf á vistun hefur ekki verið metin.
Hjúkrunardeildin Sel, Akureyri: Biðlista er haldið í lágmarki en samráð höfð við heimahjúkrunina á staðnum um hverja eigi að leggja inn. Vitað er um milli 10 og 15 manns sem þyrftu á hjúkrunarrými að halda.
Hjúkrunarheimilið; Kristnesi: Á biðlista eru tæplega 20.
Dvalarheimilið Hvammur, Húsavík: Á biðlista eru kringum 80. Þörf á vistun hefur ekki formlega verið metin en vitað er að þörf á vistun er mjög misjafnlega brýn.
Hjúkrunarheimilið Sundabúð, Vopnafirði: Biðlisti er ekki haldinn.
Elliheimilið á Eskifirði: Vitað er um einn aðila sem bíður eftir plássi.
Ellideildin í Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað: Biðlisti ekki haldinn.
Elli- og, hjúkrunarheimilið Höfn, Hornafirði: Þrír bíða vistunar á hjúkrunardeild. Þörf fyrir vistun hefur ekki verið metin.
Dvalarheimilið Kirkjubæjarklaustri: Á biðlista eru 6 en þörf fyrir vistun hefur ekki verið metin.
Dvalarheimilið Suður-Vík, Vík í Mýrdal: Enginn bíður eftir dvalarheimilisplássi.
Dvalarheimilið Hvolsvelli: Á biðlista eru 25. Þörf á vistun hefur ekki verið metin.
Dvalarheimilið Lundur, Hellu: 6–8 bíða vistar en þörf fyrir vistun hefur ekki verið metin.
Hjúkrunarheimilið Ljósheimar, Selfossi: Á biðlista eru 29 og þörf þeirra allra fyrir vistun hefur verið metin af læknum.
Elli- og hjúkrunarheimilið Kumbaravogur, Stokkseyri: Biðlisti er ekki haldinn.
Dvalarheimilið Hlévangur, Keflavík: Upplýsingar vantar.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Garðvangur, Garði: Á biðlista eru um 20 en þörf á vistun hefur ekki verið metin.
Hrafnista, dvalarheimili aldraðra sjómanna, Hafnarfirði: Á biðlista eru 570 en þörf á vistun hefur ekki verið metin.
Hjúkrunarheimilið Sólvangur: Á biðlista eru 98 og hefur þörf þeirra allra fyrir vistun verið metin af læknum.
Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, Kópavogi: Á biðlista eru 55, þar af 11 til langdvalar. Þörf á vistun hefur verið metin.
Í fylgiskjali V hafa upplýsingar þessar verið settar fram í töflu. Skv. því er vitað um rúmlega 2500 einstaklinga sem bíða vistunar annaðhvort á dvalarheimili eða hjúkrunardeild fyrir aldraða.
Við mat á þessum upplýsingum verður að hafa í huga að biðlistar veita lélegar upplýsingar um þörf á vistun nema mat hafi farið fram. Í þeim tilvikum, þar sem mat hefur ekki verið framkvæmt, segir biðlistinn eingöngu til um það hversu margir hafa gefið sig fram og óskað eftir plássi. Í mjög mörgum tilfellum er um tryggingarráðstöfun að ræða.
Jafnframt verður að athuga að á Reykjavíkursvæðinu eru samtals 1617 á biðlista hjá 4 dvalarheimilum. Mjög er líklegt að um sömu einstaklinga sé að ræða í a. m. k. einhverjum tilvikum.
Lög um málefni aldraðra gera ráð fyrir að enginn skuli vistast á öldrunarstofnun nema að undangengnu mati þjónustuhóps aldraðra. Stjórn stofnunar ræður síðan vistun en lögin gera ráð fyrir að inn á stofnun séu ekki aðrir vistaðir en þeir sem raunverulega þurfa á slíkri vistun að halda.
Þessi ákvæði eru að mjög litlu leyti komin til framkvæmda, m. a. vegna þess að enn hafa ekki verið settar samræmdar reglur um vistunarmat. Má telja að slíkt vistunarmat sé nauðsynleg forsenda þess að þau rými, sem fyrir hendi eru, verði nýtt á sem bestan hátt.
9. Hefur ráðuneytið látið kanna hve margir aldraðir bera merki um næringarskort, sbr. ummæli Þóris Guðbergssonar ellimálafulltrúa í sjónvarpsfréttum 20. apríl?
Svar: Ummæli Þóris Guðbergssonar ellimálafulltrúa í sjónvarpsfréttum 20. apríl voru á þann veg að margir aldraðir í Reykjavík bæru merki um næringarskort sem rekja mætti til þess að fjárhagsleg afkoma aldraðra væri lakari nú en áður hefur verið.
Ráðuneytið ritaði landlækni hinn 26. apríl og óskaði eftir að hann kannaði þetta mál ásamt héraðslækninum í Reykjavíkurlæknishéraði og niðurstaða þeirrar athugunar varð eftirfarandi:
1. Á bráðasjúkrahús borgarinnar koma öðru hverju sjúklingar sem þjást af næringarskorti. Hvorki landlækni né borgarlækni er hins vegar kunnugt um að næringarskortur þessara sjúklinga hafi stafað af svelti vegna fátæktar.
Orsakanna er að leita í:
a. veikindum, oftast geðrænum eða andlegri hrörnun, minnis- og sinnuleysi einstæðinga,
b. einhæfu fæði, fákunnáttu í matargerð og þekkingarskorti um næringargildi fæðutegunda,
c. óreglu.
Rannsókn, sem gerð var á úrtaki 106 einstaklinga í Reykjavík 80 ára og eldri, á vegum landlæknis og Hjartaverndar af Ársæll Jónssyni lækni og Þórhannesi Axelssyni félagsfræðingi á árunum 1982–1983, benti ekki til þess að aldrað fólk í Reykjavík þjáðist af næringarskorti.
Sérstakar rannsóknir á heilsufari aldraðra með hliðsjón af þessu hafa ekki farið fram.
Þórir Guðbergsson taldi sjálfur nauðsynlegt að gera frekari grein fyrir þeim ummælum hans sem vitnað var til og birtist sú athugasemd í Þjóðviljanum 25. apríl 1985 og er svohljóðandi:
„Um aldraða, næringarskort og vistheimilisgjöld. Vegna misskilnings í hita og þunga dagsins um næringarskort hjá öldruðum og gjöld á vistheimilum aldraðra langar mig til þess að taka fram eftirfarandi:
1. Á bráðasjúkrahús hefur alltaf komið fólk öðru hverju sem þjáist af næringarskorti. Óhætt er að segja með nokkurri vissu að varla séu þess dæmi að fólk beinlínis svelti vegna fátæktar eða líði næringarskort af þeim orsökum. Ég þekki engin slík dæmi.
Orsakanna er miklu fremur að leita í veikindum, hvers kyns fötlun, sinnuleysi af ýmsu tagi, skorti á upplýsingum og fræðslu um næringargildi fæðutegunda o. s. frv.
Ekki er unnt að benda á eða styðjast við rannsóknir á þessu sviði eða kannanir á neysluvenjum aldraðra og því ómögulegt að fullyrða nokkuð um þessi mál og því síður að láta í það skina að aldraðir þjáist almennt af næringarskorti.
2. Daggjöld á vistheimilum, vistgjöld, eru ákveðin hverju sinni af daggjaldanefnd ríkisins hvort sem um opinber vistheimili er að ræða eða vistheimili sem eru rekin af einkaaðilum.
Hafi vistmaðurinn ekki tök á að greiða þennan kostnað tekur Tryggingastofnun ríkisins þátt í kostnaði að fullu fyrir viðkomandi heimilismann og fær hann þá alla þjónustu, umönnun, fæði, lyf, lækniskostnað o. fl. á vistheimilinu en heldur a. m. k. rúmum tvö þúsund krónum í eigið ráðstöfunarfé.
Verndaðar leiguíbúðir aldraðra og verndaðar þjónustuíbúðir aldraðra eru hins vegar ekki vistheimili og hlíta allt öðrum reglum en þau. Þessar íbúðir eru leigðar af fólkinu sjálfu og greiðir það sína húsateigu í hverjum mánuði og eða þjónustugjald og er að öllu jöfnu ekki eins lasburða og þeir sem þurfa á þjónustu og umönnun að halda á vist- og hjúkrunarheimilum.“
10. Hvaða áform hefur ráðuneytið um úrbætur í málefnum aldraðra?
Þann 1. janúar 1983 gengu í gildi lög um málefni aldraðra. Var þar lagður grunnur að samræmdri skipulagningu þessa málaflokks og lögð mikil áhersla á samvinnu um félagslega þjónustu og heilbrigðisþjónustu. Jafnframt var þar sett fram það markmið að allir aldraðir skyldu geta lifað eðlilegu heimilislífi svo lengi sem þeir geta og vilja en að völ væri á þjónustu á stofnunum þegar hennar væri þörf.
Til skamms tíma hefur minni áhersla verið lögð á vel skipulagða heimaþjónustu fyrir aldraða, þ. e. heimilishjálp og heimahjúkrun.
Uppbygging stofnana sat lengi í fyrirrúmi hér á landi. Þannig jókst rými bæði á hjúkrunardeildum og dvalarheimilum aldraðra kringum 60% á árunum 1974 til 1984. Á sama tíma minnkaði stofnanarými á stofnunum fyrir þennan aldurshóp í grannlöndum okkar.
Lög um málefni aldraðra leggja áherslu á að uppbygging allra þátta þjónustu fyrir aldraða haldist í hendur og myndi eina samfellda heild. Í lögunum er m. a. að finna ákvæði um endurgreiðslu ríkissjóðs vegna rekstúrs heimilishjálpar í sveitarfélögum. Hefur það endurgreiðsluákvæði án efa orðið ýmsum sveitarfélögum hvati til að taka upp þessa þjónustu. Heimahjúkrun hefur aukist mjög verulega á undanförnum árum og raunar haldist í hendur við uppbyggingu heilsugæslustöðva um allt land.
Heilbrigðisráðuneytið hefur allt frá gildistöku laga um málefni aldraðra unnið ötullega að því að hrinda þeim lögum í framkvæmd í samvinnu við samstarfsnefnd um málefni aldraðra. Eins og kunnugt er hafa lög þessi að geyma sólarlagsákvæði og munu þau renna sjálfkrafa úr gildi 31. desember 1987 hafi þau ekki verið endurskoðuð og framlengd fyrir þann tíma.
Tilgangurinn með lagasetningunni var sá að færa þjónustu við aldraða á sama stig og þjónustu við aðra aldurshópa. Allar upplýsingar sem til eru um málefni þessa aldurshóps sýna að mikið er að gerast á þessu sviði. Augljóst virðist þó að til að ná upphaflegu markmiði þurfi að framlengja gildistíma laga um málefni aldraðra. Flest bendir hins vegar til að um eða eftir 1990 muni þjónusta við aldraða hér á landi verða komin á það stig sem best þekkist í heiminum.
FYLGISKJAL I.
Samband íslenskra sveitarfélaga
Yfirlit yfir kostnað kaupstaðanna árið 1980 vegna rekstrar heimilishjálpar:
Íbúar pr.
Brúttó
Endurgr.
Nettó
Nettó pr.
Sveitarfélag:
1/12 80:
gkr.:
gkr.:
gkr.:
íb. gkr.:
Reykjavík
83 766
971 628 511
81 264 373
890 364 138
10 629
Kópavogur
13 819
94 197 171
20 267 332
73 929 839
5 350
Seltjarnarnes
3 100
8 805 227
807 176
7 998 051
2 580
Garðabær
4 909
5 236 727
389 978
4 846 749
987
Hafnarfjörður
12 205
62 549 540
10 347 476
52 202 064
4 277
Grindavík
1 929
715 377
244 793
470 584
244
Keflavík
6 622
8 320 919
2 072 980
6 247 939
944
Njarðvík
2 008
3 009 159
–
3 009 159
1 499
Akranes
5 200
2 126 372
–
2 126 372
409
Bolungarvík
1 266
1 050 477
–
1 050 477
830
Ísafjörður
3 352
3 599 493
–
3 599 493
1 074
Sauðárkrókur
2 188
4 974 294
308 402
4 665 892
2 132
Siglufjörður
2 003
510 052
51 660
458 392
229
Ólafsfjörður
1 195
4 274 988
105 165
4 169 823
3 489
Dalvík
1 269
2 198 418
583 082
1 615 336
1 273
Akureyri
13 420
39 469 405
1 207 312
38 262 093
2 851
Húsavík
2 414
6 893 770
231 860
6 661 910
2 760
seyðisfjörður
998
*)
Neskaupstaður
1 683
3 700 613
-
3 700 613
2 199
Eskifjörður
1 043
*)
Vestmannaeyjar
4 727
*)
Selfoss
3 409
19 045 683
2 045 173
17 000 510
4 987
1 242 306 196
119 926 762
1 122 379 434
FYLGISKJAL II.
Heimilishjálp aldraðra 1983.
1983
Reykjavík
u.þ.b. 1500
Akranes
27
Borgarnes
10–15
Ólafsvík
9
Eyrarsveit
?
Stykkishólmur
4-6
Búðardalur
1-2
Patreksfjörður
13
Bolungarvík
?
Ísafjörður
?
Hvammstangi
a.m.k. 15
Blönduóshreppur
6
Sauðárkrókur
24
Siglufjörður
?
Ólafsfjörður
?
Dalvík
?
Akureyri
u.þ.b. 160
Húsavík
18
Þórshöfn
6
Vopnafjörður
?
Fellahreppur
2
Seyðisfjörður
?
Skriðdalshreppur
3
Neskaupstaður
15–20
Eskifjörður
?
Búðahreppur
9
Höfn, Hornafirði
9
Kirkjubæjarhreppur
12
Vestmannaeyjar
?
selfoss
66
Stokkseyrarhreppur
5
Kópavogur
175
Seltjarnarnes
?
Garðabær
19
Hafnarfjörður
?
Grindavík
11
Keflavík
u.þ.b. 50
Njarðvík
?
Samtals
a.m.k.2169
FYLGISKJAL HI.
Vistrými fyrir aldraða 1. júní 1985.
Vist-
Hjúkr.-
Dvalar- og hjúkrunarheimili.
rými
rými
Reykjavík
B-álma
–
52
Hvítabandið
–
19
Heilsuverndarstöðin
–
30
Hafnarbúðir
–
25
Hátún 10B
–
66
Droplaugarstaðir
36
32
Hrafnista DAS
174
196
Elliheimilið Grund
125
180
Akranes
48
–
Borgarnes
57
–
Stykkishólmur
25
–
Búðardalur (Fellsendi)
–
16
Flateyri
7
–
Ísafjörður
20
–
Blönduós
4
17
Siglufjörður
–
15
Dalvík 1)
45
–
Ólafsfjörður
17
8
Akureyri
Hjúkrunardeildin Sel
–
20
Kristnesspítali
–
58
Dvalarheimilið Hlíð
90
19
Dvalarheimilið Skjaldarvík
75
–
Húsavík
47
–
Vopnafjörður
–
9
Eskifjörður2)
7
–
Neskaupstaður
6
6
Höfn, Hornafirði
25
25
Kirkjubæjarklaustur3)
6
–
Vík í Mýrdal
4
–
Hvolsvöllur 4)
20
–
Hella
24
–
Vestmannaeyjar
44
–
Selfoss
–
26
Stokkseyri
50
24
Hveragerði
190
–
Keflavík
17
–
Garður
22
20
Hafnarfjörður
106
Sólvangur
Hrafnista DAS
104
88
Kópavogur
–
38
Samtals
1289
1095
1)
Síðar á árinu mun heimilaður rekstur 14 rúma hjúkrunardeildar á Dalvík. Mun rýmum á vistinni fækka þá sem því nemur.
2)
Rekstrarleyfi til bráðabirgða.
3)
Rekstrarleyfi til bráðabirgða.
4)
Rekstrarleyfi til bráðabirgða.
FYLGISKJAL IV.
Vistrými fyrir aldraða 1. júní 1985.
Fjöldi
Fjöldi
Íbúðir fyrir aldraða.
íbúða
íbúða
Reykjavík
Austurbrún 6
40
–
Norðurbrún 1
60
68
Furugerði1
74
88
Langahlíð 3
32
32
D albraut25–27
64
82
Samtök aldraðra
14
–
Akranes
20
–
Ísafjörður
30
40
Hvammstangi
8
12
Ytri-Torfustaðahreppur
4
–
Blönduós
10
20
Skagaströnd
4
8
Þórshöfn
4
8
Vopnafjörður
14
18
Egilsstaðir
7
–
Neskaupstaður
12
16
Kirkjubæjarklaustur
8
16
Vík í Mýrdal
4
5
Hella
3
6
Biskupstungnahreppur
4
6
Hrunamannahreppur
4
6
Selfoss
16
24
Vestmannaeyjar
6
8
Keflavík
38
60
Garðabær
28
–
Seltjarnarnes
16
–
Mosfellssveit
2
4
Samtals
524
a.m.k.746
FYLGISKJAL V.
Biðlistar á dvalar- og hjúkrunarheimili jan.-maí 1985.
Vist-
Hjúkr.-
Bið-
rými
rými
listi
Mat
Reykjavík
B-álma
–
52
58
+
Hvítabandið
–
19
?
Heilsuverndarstöðin
–
30
?
Hafnarbúðir
–
25
?
Hátún 10B
–
66
50
+
Droplaugarstaðir
36
32
293
+
Hrafnista DAS
174
196
463
-
Elliheimilið Grund
125
180
291
-
Akranes
48
–
60
+
Borgarnes
57
–
12
-
Stykkishólmur
25
–
1
+
Búðardalur (Fellsendi)
–
16
?
Flateyri
7
–
?
Ísafjörður
20
–
6
-
Blönduós
4
17
10
+
Siglufjörður
–
15
-
Dalvík
45
–
33
-
Ólafsfjörður
17
8
22
+
Akureyri
Hjúkrunardeildin Sel.
-
20
10
+
Kristnesspítali
–
58
17
+
Dvalarheimilið Hlíð
90
19
300
-
Dvalarheimilið Skjaldarvík
75
-
Húsavík
47
–
80
-
Vopnafjörður
–
9
1
+
Eskifjörður
7
–
1
+
Neskaupstaður
6
6
~
Höfn, Hornafirði
25
25
3
-
Kirkjubæjarklaustur
6
–
6
-
Vík í Mýrdal
4
–
0
Hvolsvöllur
20
–
25
-
Hella
24
–
8
-
Vestmannaeyjar
44
–
8
-
Selfoss
–
26
29
+
stokkseyri
50
24
-
Hveragerði
190
-
Keflavík
17
–
Garður
22
20
20
-
Hafnarfjörður
Sólvangur
–
106
98
+
Hrafnista DAS
104
88
570
-
Kópavogur
–
38
55
+
Samtals
1289
1095
2528