05.06.1985
Efri deild: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5910 í B-deild Alþingistíðinda. (5263)

Afgreiðsla þingmála í efri deild

Davíð Aðalsteinsson:

Herra forseti. Ég ætla í sjálfu sér ekki að hafa uppi ávirðingar á hendur hæstv. forsrh. fyrir það að tugta okkur þm. svolítið til, segja okkur til syndanna, þ. e. að við vinnum bæði seint og jafnvel illa. Hæstv. forsrh. átti einkum við okkur stjórnarþm., það var greinilegt, því að hann tók það rækilega fram að við stjórnarandstöðuþm. ætti hann ekkert sökótt í þessum efnum. Við stjórnarþm. hljótum því að sitja eftir.

Það er ekki á hverjum degi sem maður neyðist til að stíga í þennan ræðustól til þess eins að bera af sér sakir. Hæstv. forsrh. gat um heilbr.- og trn. eins og aðrar nefndir sem starfa hér í Ed. Þar eru fjögur mál. Það er rétt. Það er ekkert stjfrv. í þeirri n. Nú hlýtur mér að verða hugsað til þess hvort það er raunverulega fyrirskipun frá hæstv. forsrh. að ég sem nefndarformaður ryðji öllum málum út, láti þau koma hingað til deildar og ljái þeim jafnvel fylgi mitt. Ég hygg að það kæmi svipur á suma ef svo færi um einstök mál sem þar eru og vil ég ekki nefna þau.

Varðandi hina nefndina sem ég er í forsvari fyrir, þ. e. félmn., þá eru þar ekki heldur stjfrv., einvörðungu þmfrv. Ég segi þetta ekki vegna þess að ég telji þmfrv. lítilsigldari en stjfrv., síður en svo. Hins vegar hlýtur þetta að leiða huga manns að því hvort virkilega á að fara út í að ryðja öllum málum fram. Ég skal viðurkenna að margir þingreyndir menn hafa bent á að það sé eðlilegastur gangur að öll mál komi hér til atkv. Það má vel vera rétt. En ég hygg nú þegar á allt er litið, að hæstv. forsrh. hafi meiri áhuga fyrir stjfrv. en frv. frá almennum þm. Mér finnast orð hans því ekki í takt við það vinnulag sem lengi hefur viðgengist og ég hygg að hann sem almennur þm. fyrr á tíð hafi sjálfur tekið þátt í.

Herra forseti. Ég komst ekki hjá því að leitast við, í vanmætti að sjálfsögðu, að bera af mér þótt ekki væri nema að litlu leyti sakir.