05.06.1985
Efri deild: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5914 í B-deild Alþingistíðinda. (5268)

Afgreiðsla þingmála í efri deild

Helgi Seljan:

Herra forseti. Hér eru rædd vinnubrögð þingsins á þeim dögum sem venjulegt er að Alþingi sé komið í leyfi og menn farnir til síns heima. Ég hlýt að harma mjög að hæstv. forsrh. skuli hafa gefið þá yfirlýsingu sem hann hefur gefið með það tilefnisleysi, sem hann rakti áðan, til þeirrar yfirlýsingar. Ég man nefnilega mætavel hvernig að þessum málum var staðið þegar ég var forseti Ed., hvernig hæstv. þáv. forsrh., Gunnar heitinn Thoroddsen, stóð að málum og átti með forsetum og forsvarsmönnum þingflokka marga og langa fundi um það á hvern hátt væri best að ljúka þingstörfum. Það mætti sjálfsagt rifja upp fyrir núv. hæstv. forsrh. ýmislegt af þeim góðu vinnubrögðum sem þar voru viðhöfð. Þessi vinnubrögð hafa greinilega farið fram hjá núv. hæstv. forsrh.

Hann talar um vinnubrögð í þinginu á sama tíma sem hann upplýsir okkur um það að vinnubrögðin á ríkisstjórnarheimilinu séu þau að þar séu mál rædd í þaula, farið yfir þau aftur og aftur og síðan, þegar þau hafi verið lögð fram í fullu umboði þeirra beggja flokka sem að ríkisstj. standa, fari allt í háaloft og upphefjist argaþras og rifrildi þeirra á milli um hvort eigi að afgreiða mál eða hvernig eigi að afgreiða mál. Það er auðvitað víst og satt. Það er ákveðinn aðili í þjóðfélaginu sem hefur unnið seint og illa. Það er hæstv. ríkisstj. (EgJ: Það er nú ofsagt.) Já, ég veit að nú vill hv. 11. landsk. þm. berja í brestina og finnst tími til kominn að skjóta skildi fyrir einkavin sinn, hæstv. forsrh., og skil ég það mætavel. Hann hefur löngum verið iðinn við það upp á síðkastið að skjóta skildi fyrir þá framsóknarmenn og ekkert við því að segja. En það er ljóst að sá aðili sem hér er verið að tala um að illa hafi staðið sig er hæstv. núv. ríkisstj.

Ég heyrði á hæstv. forsrh. áðan að hann hvessti sig mjög og sagðist ekki hlusta á bændur. Það höfum við heyrt áður og að menn sem vildu hugsa um þau mál væru menn sem engu vildu breyta í þeirri löggjöf sem snertir bændur og bændasamtökin. Ekki er ég einn í þeirra hópi sem ekki vilja ýmsu breyta í þeirri löggjöf. En hæstv. forsrh. lætur sér vonandi ekki til hugar koma að allir séu sammála þeim óskapnaði sem hefur verið lagður fram um Framleiðsluráð landbúnaðarins sem hv. þm. Stefán Valgeirsson telur að þurfi að gera yfir 20 brtt. við áður en það geti orðið að sómasamlegum lögum.

Ég vil svo taka það fram að formenn þeirra nefnda sem ég hef setið í í vetur hafa leitað góðs samráðs við okkur í stjórnarandstöðunni. Við höfum tekið því samráði vel. Ég verð hins vegar að viðurkenna að í sumum nefndunum höfum við haldið uppi fundunum á þann hátt að stjórnarliðar hafa ekki séð ástæðu til þess að mæta á nefndafundum. Nefndaformenn hafa því oft verið í mestu vandræðum. Vísa ég þar t. d. til hv. formanns heilbr.- og trn. sem hefði oft átt í erfiðleikum ef við hv. þm. Björn Dagbjartsson og hv. þm. Kolbrún Jónsdóttir hefðum ekki setið þar slímusetu, svo að notað sé frægt orðalag hæstv. iðnrh., og komið málum í gegn. Sama er að segja um félmn. Hv. formaður allshn. er ekki hér staddur. Eina málið sem við höfum ekki greitt fyrir þar eru umferðarlögin sem eiga ekki að fara í gegn. Það má alveg rétt vera, sem hæstv. forsrh. var í raun og veru að ögra stjórnarandstöðunni með hér áðan, að við höfum unnið allt of vel varðandi það að greiða fyrir málum ríkisstj. Hann var í raun og veru að ögra okkur með því að við skyldum hætta þessu og taka upp hætti stjórnarsinna sem tefðu fyrir hverju máli. Það er sjálfsagt að verða við þessum tilmælum hæstv. forsrh.