06.11.1984
Sameinað þing: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (527)

65. mál, sala á íslenskum frímerkjum erlendis

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir hans svör. Hins vegar hélt ég að það þyrfti ekki að koma honum á óvart að fyrirspyrjandi vissi e.t.v. örlítið um það efni sem gerð er fsp. um. Það er ekki mikil ástæða til að standa hér upp og spyrja hæstv. ráðh. landsins: Hvernig er að vera ráðh.? Svarið væri eflaust: Gaman. Fsp. á hinu háa Alþingi eru ekki þess eðlis. Fsp. eru til komnar vegna þess að fyrirspyrjandi hefur ástæðu til að ætla að einhverju.sé ábótavant sem e.t.v. megi lagfæra. Og þess vegna búast hv. þm. auðvitað ekki við að fá bara blönk svör um nákvæmlega það sem spurt er bókstaflega um, heldur auðvitað einhver stefnumið ráðh. í viðkomandi málaflokki.

Ég þakka svörin sem sagt, en vil aðeins fá að gera aths. við þau og skal ekki tala lengi, herra forseti.

Sú hækkun sem hæstv. ráðh. talar um á upphæðum fyrir sölu frímerkja fylgir að mestu leyti verðbólgu, a.m.k. milli áranna 1980, 1981 og 1982 pg er þess vegna engin umtalsverð aukning. Tvímælalaust mætti selja þarna miklu meira og afla miklu meiri tekna með sölu frímerkja.

Síðan gat hæstv. ráðh. ýmislegs þess sem um var spurt, svo sem hvað væri gert til að kynna íslensk frímerki. Þeir upplýsingabæklingar sem hann nefndi eru tvímælalaust ófullnægjandi — og ég vildi reyndar að ég hefði ekki skilið þá eftir úti í skrifstofu minni heldur komið með þá svo að hægt væri að bera saman hina íslensku útgáfu og hina erlendu. Sem dæmi má taka að þegar vinir okkar, Færeyingar, gefa út ný frímerki og svokallaðar ársmöppur, þá útbúa þeir afskaplega skemmtilega hannaða litmyndabæklinga með landslagsmyndum og atvinnulífsmyndum frá landi sínu, þannig að þetta er aðgengileg og skemmtileg vinargjöf eða hlutur fyrir ferðamenn til að taka með sér heim. Þeir hafa t.d. samstarf við atvinnufyrirtæki þjóðarinnar á þann veg að þegar þeir gefa út frímerki með myndum úr atvinnulífinu, þá sjá þeir til þess að þeir sem þann atvinnuveg stunda noti þessi frímerki sérstaklega og annað slíkt. Þessir bæklingar, ef bæklinga skyldi kalla, þessi blöðungur sem um árabil hefur verið sendur frá íslensku póststjórninni er í fyrsta lagi ekki í litum og satt að segja afskaplega dapurlegt plagg sem lítt er líklegur til þess að vekja áhuga á íslenskum frímerkjum.

Ráðh. gat þess eftir því sem ég best heyrði að sölusýningum færi hreinlega fækkandi. Ég vil enn ítreka það að ég var ekki að ýja að því að frú Svana Karlsson hefði ekki rækt starf sitt af mestu prýði. Ráðh. gat þess einnig að á þeim sýningum sem starfsmenn Pósts og síma hefðu annast sjálfir hefði orðið minni ágóði. Það er ekkert óeðlilegt, hæstv. ráðh., vegna þess að hér hefur ekki verið um nóg samstarf að ræða. Sölustarfsemi af þessu tagi krefst mikilla persónulegra sambanda, þekkingar á áhugasviðum og áhugamálum hinna ýmsu safnara víða um heim. Auðvitað hafa starfsmenn Pósts og síma ekki haft minnsta tækifæri til að komast í þessi sambönd. Ég vil eindregið taka undir það með hæstv. ráðh. að auðvitað er alveg sjálfsagt að frú Svana Karlsson gegni þessu starfi á meðan hún það kýs og vill, en vitaskuld í nánu samstarfi við starfsmenn Pósts og síma sem hvenær sem er væru síðan tilbúnir til að taka við. Þess eru dæmi að um sölu hefur verið að ræða gjörsamlega fram hjá Pósti og síma á frímerkjum sem e.t.v. voru uppseld hér heima. Slíkt á auðvitað ekki að geta átt sér stað.

Ég var áður búin að segja að auglýsing í blöðum og tímaritum, sem hæstv. ráðh. minntist á, hefði nú ekki verið merkilegri en svo, að það var engin auglýsing í frímerkjatímaritum á Norðurlöndum árið 1983.

Hæstv. ráðh. minntist á að að sínu mati þyrfti 1–2 ársverk til að annast kynningu og þátttöku í sölusýningum. Mér er mjög til efs að það sé nægilegt, án þess að ég vilji nú hafa um það alveg heimasaumaðar meiningar, en trúa mín er sú að þar þyrfti til að koma meiri starfskraftur og ekki síst kannske samhæfing innan stofnunarinnar á þessum verkefnum. Auðvitað ættu þeir hinir sömu og sölustarfsemina annast að hafa hönd í bagga með kynningu. Ég held því að hér sé fyrst og fremst um skipulagningu að ræða. (Forseti hringir.)

Ég skal ljúka máli mínu, herra forseti. Ég hefði kosið að víkja örlítið að tillögum starfshópsins sem falið var að gera tillögur til úrbóta, en ég skal ekki eyða tíma í það, enda forseti þegar búinn að hringja. En ég vil mælast til þess að hæstv. ráðh. kynni sér þær vandlega og athugi hvort ekki megi þarna úr bæta svo nokkru meiri sómi sé að.

Síðast en ekki síst held ég að það sé tvímælalaust orðið brýnt að þessi tvö stórveldi, Póstur og sími, verði að nokkru aðskilin hvað stjórnun varðar. Ég held að það sé óvenjuleg sparsemi af hálfu hins íslenska ríkis að ætla einum manni að stýra bæði pósti og síma. Sú tíð er liðin að það sé verkefni fyrir einn mann.