06.11.1984
Sameinað þing: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 783 í B-deild Alþingistíðinda. (529)

65. mál, sala á íslenskum frímerkjum erlendis

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þá yfirlýsingu sem ég vil hér leggja sérstaka áherslu á. Hann sagði að nú væri verið að vinna að úrbótum í málefnum Frímerkjasölunnar. Ég fagna því að sjálfsögðu og vil leggja áherslu á það svar svo það fari ekki fram hjá neinum.