05.06.1985
Neðri deild: 83. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5927 í B-deild Alþingistíðinda. (5291)

250. mál, réttur verkafólks til uppsagnarfrests

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég varð því miður að hverfa frá fundi í gær eftir að hafa lokið framsöguræðu minni fyrir meirihlutanefndaráliti en hér er verið að greiða atkv. um þá till. meiri hl. nefndarinnar að vísa þessu máli til ríkisstj.

Mér hefur verið sagt að út úr ummælum mínum hafi verið snúið í þeim umr. Það hefur verið sagt að ég hafi sagt í minni ræðu að ég hefði samúð með verkalýðnum í landinu, en sú samúð væri lítils virði. Ég leyfi mér þess vegna, herra forseti, að lesa hér úr útskrift úr ræðu minni orðrétt:

„Herra forseti. Ég hef hér gert grein fyrir áliti meiri hl. hv. félmn. sem leggur til að þessu máli verði vísað til ríkisstj. En eins og fram hefur komið í mínu máli ríkir samúð meðal meiri hl. n. með þeim efnisatriðum sem koma fram í frv. til laga á þskj. 428.“

Þetta vil ég að verði staðfest við þessa atkvæðagreiðslu. Jafnframt vísa ég til nál. meiri hl. nefndarinnar sem rökstyður mjög ítarlega að þessi efnisatriði eigi fremur heima í kjarasamningum. Ég vísa til ræðu Eðvarðs Sigurðssonar formanns Dagsbrúnar sem sat á sínum tíma á Alþingi og lýsti því að þegar þessi löggjöf, sem hér er verið að gera tilraun til að breyta, var sett kostaði það verkalýðinn í landinu 3%. Með tilvísan til alls þessa og þar sem þessi atriði eiga heima í kjarasamningum segi ég já við þeirri till. að frv. verði vísað til ríkisstj.

Herra forseti. Ég hef hér gert grein fyrir atkv. mínu. En ég vil vekja athygli á því að það var með fullum vilja og vitund forseta og frsm. minni hl. sem ég varð að hverfa af fundi og ég hef séð mig tilneyddan til að svara ásökunum í minn garð. Ég þakka þolinmæði hæstv. forseta í minn garð.