05.06.1985
Neðri deild: 83. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5928 í B-deild Alþingistíðinda. (5296)

250. mál, réttur verkafólks til uppsagnarfrests

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það er einn galli við frv. sem verið er að greiða atkv. um. Hann er sá að það eru ekki tekin í þá réttarbót sem er ættast til að verði með samþykkt þess nokkur þúsund manna sem búa við sömu eða miklu lakari kjör hvað varðar uppsagnarfrest í þessu landi. Við verðum þess greinilega vör að þegar ákveðinn hópur þjóðarinnar fer fram á betri kjör, betri laun, er vitnað til launa á hinum svokallaða frjálsa vinnumarkaði. Það er aldrei minnst á þrjú meginatriði sem fylgja þeim hinum sama markaði. Þau eru vinnuaðstaða, uppsagnarfrestur og lífeyristryggingar. Tvennt af þessu a. m. k. á rót sína að rekja til aðgerða ríkisvalds og löggjafar. Fram til skamms tíma verð ég að segja að ég hef ekki haft mikla trú á því að hæstv. ríkisstj. réði fram úr launa- og kjaramálum nú frekar en áður. En ég hef öðlast nýja trú á síðustu mánuðum á því að þar hafi verið breytt um stefnu. Og í trausti þess að svo verði og þessi atriði verði tekin upp að löggjafarleiðum, einfaldlega vegna þess að það er ekki hægt að gera það öðruvísi, segi ég já.