05.06.1985
Neðri deild: 83. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5931 í B-deild Alþingistíðinda. (5306)
284. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. Nd. á þskj. 1077. um frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar, en það mál hefur þegar verið afgreitt frá Ed. N. hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt með einni breytingu sem n. flytur á sérstöku þskj. Hér er um það að ræða að við bætist eitt nafn, þess er getið á þskj. 1078, Hafdell, Jeanette Ann, kennari í Kópavogi, fædd 29. jan. 1944 í Bandaríkjunum. Undir þetta nál. skrifa Gunnar G. Schram, Guðrún Helgadóttir, Friðjón Þórðarson, Páll Dagbjartsson, Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmundur Einarsson og Stefán Guðmundsson.