05.06.1985
Neðri deild: 83. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5933 í B-deild Alþingistíðinda. (5312)
Um þingsköp
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Mig langaði aðeins til að taka til máls vegna tilmæla sem komu frá hæstv. forseta í fundarbyrjun um þinghaldið í dag. Það hefur ekki farið fram neitt eðlilegt samráð um þetta mál. Að mati talsmanna stjórnarandstöðuþingflokkanna teljum við eðlilegt að þingflokksfundir verði milli 4 og 6 í dag eins og venja er. Oft var þörf en nú er nauðsyn á því að hafa þingflokksfundi á eðlilegum fundartíma. Það er hins vegar fullkomlega í lagi, að okkar mati, að hafa fund milli 6 og 7. Það hefur oft verið gert og við skulum reyna að halda þeim skikk. Hann er ágætur. Um kvöldfund hefur ekkert verið rætt og ekkert samkomulag verið gert. Við leggjum til eðlilegan vinnutíma í þinginu eins og verið hefur. Það er góður gangur á málum hér núna, þau þjóta áfram, og sýnist ekki nein ástæða til að gera neinar sérstakar neyðarráðstafanir. Við því verður að sjálfsögðu orðið, ef ósk er um það að hafa þingflokksfundi milli 4 og 6 eins og venjulega, að halda þeim sið.