05.06.1985
Neðri deild: 83. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5934 í B-deild Alþingistíðinda. (5318)
Um þingsköp
Forseti (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Forseti mun verða við því að fresta þessari umr. um Byggðastofnun hér í dag. Ef önnur mál, sem ræða þarf, ganga fram í dag, þá mun það verða fyrsta mál á kvöldfundi. sem mundi þá hefjast kl. 9, því þess er óskað að málið komi ekki á dagskrá fyrir kvöldmat úr því sem komið er.