05.06.1985
Efri deild: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5937 í B-deild Alþingistíðinda. (5328)

523. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég vildi bara taka það fram af því að mér láðist það í framsöguræðu minni að að sjálfsögðu tökum við þetta frv. til athugunar með frv. um húsnæðissparnaðarreikninga milli 2. og 3. umr. og lítum á það sem betur mætti fara því að lengi má laga og betrumbæta. Ég vil nú undirstrika það hér í þessum ræðustól að þó að menn hafi rætt frumvörpin í stjórnarflokkunum þá eru menn ekki skuldbundnir til þess að þegja hér í ræðustól þegar þau koma til umr. þó að stundum hafi menn heyrt dálítið svæsnar hótanir, mönnum hafi verið hótað að snýta rauðu út af einstökum frv. Ég lít svo á að stjórnarliðum sé ekki bannað að skoða þau atriði sem betur mættu fara jafnvel þó að þeir hafi gefið heimild til þess í sínum þingflokki að leggja frumvörpin fram.