05.06.1985
Efri deild: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5937 í B-deild Alþingistíðinda. (5331)
74. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Hér er um að ræða frv. sem er komið til okkar frá hv. Nd., þmfrv. sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir flutti þar. Í nefnd þar voru gerðar nokkrar breytingar á málinu til samkomulags þannig að um það var samstaða.
Fjh.- og viðskn. fjallaði um þetta mál á fundi sínum í morgun og mælir með samþykkt frv. eins og það kom frá Nd. Hv. þm. Stefán Benediktsson, sem nú situr í forsetastól, sat fund nefndarinnar og er samþykkur þessu áliti.
Þess skal getið að fram komu efasemdir í nefndinni um það hvort rétt væri að þetta frv. tæki þegar gildi. Ég hef kannað þær athugasemdir sem gerðar voru við gildistöku frv. og fékk þær upplýsingar að það er í fullu samráði við ríkisskattstjóra og embætti hans að þessi háttur er hafður á, að lögin skuli þegar taka gildi. Það er sem sagt ekkert talið í vegi þess að það megi gerast og það var að höfðu fullu samráði við þá embættismenn sem gerst þekkja til málsins. Því leggur nefndin til að frv. verði samþykkt.