05.06.1985
Efri deild: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5939 í B-deild Alþingistíðinda. (5334)

478. mál, tónlistarskólar

Frsm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Það er okkur andstæðingum þessarar ríkisstj. alveg sérstakt ánægjuefni að geta mælt fyrir og greitt fyrir góðum málum sem þessi ríkisstj. flytur. Þau eru kannske ekki svo mörg en þetta frv. er eitt af þeim og um það er samstaða hér í deildinni.

Nefndin hefur athugað þetta frv. og mælir með því að það verði samþykkt eins og það kom frá Nd. þar sem á því voru gerðar nokkrar breytingar. Hér í nál. er ítrekaður sá skilningur sem fram kemur í áliti menntmn. Nd. og varðar ákvæði l. tölul. 1. gr. frv.

Ég sé ekki ástæðu, herra forseti, til að fara um þetta fleiri orðum. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt.