05.06.1985
Neðri deild: 84. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5944 í B-deild Alþingistíðinda. (5359)
455. mál, nýsköpun í atvinnulífi
Frsm. meiri hl. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. sem leggur til að frv. verði samþykkt með brtt. sem hún flytur á þskj. 1055. Þar er um að ræða brtt. sem gerir ráð fyrir að inn komi nýtt ákvæði, bráðabirgðaákvæði sem er svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Fjöldi stofnenda hlutafélagsins og hluthafa í félaginu má vera óháður takmörkunum 2. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 17. gr. laga nr. 32/1978 um hlutafélög. Að öðru leyti fer um stofnun og stjórn félagsins skv. hlutafélagalögum.“
Með þessu móti er sett inn í lögin heimild til þess að hlutafélag þetta þurfi ekki að samanstanda af a. m. k. fimm aðilum. En það skal tekið skýrt fram að sú nefnd sem samdi þetta frv. gerði ráð fyrir því að hluthafar yrðu miklu fleiri og í raun og veru er vonast til þess að hluthafar aðrir en ríkissjóður, t. d. þeir sem nefndir eru í 3. gr. frv., eigi meiri hluta í þessu hlutafélagi.
Fjh.- og viðskn. klofnaði í afstöðu sinni til frv. Minni hl. skila sérálitum og munu framsögumenn þeirra gera grein fyrir þeim og brtt. minni hlutanna. Ég kemst þó ekki hjá því að gera örlitla athugasemd við nál. annars minni hluta fjh.- og viðskn., en þar segir í 1. tölul. B. orðrétt, með leyfi forseta: „Ríkið á að eiga, svo að segja eitt, nýtt hlutafélag með a. m. k. 200 millj. kr. í hlutafé.“ Þetta er auðvitað alrangt. Það er gert ráð fyrir því að aðrir en ríkissjóður eigi meiri hluta í þessu félagi eins og ég hef áður sagt.
Ég tel, herra forseti, að ástæðulaust sé að fjölyrða um þetta mál, um það var talsvert rætt við 1. umr. Nefndin hefur fjallað allítarlega um málið. Ljóst er að nokkrar vonir eru bundnar við það að þetta frv. geti orðið til þess að örva það sem kallað hefur verið nýsköpun í atvinnulífinu. Með stofnun félagsins gerist það sem á þarf að halda í íslensku atvinnulífi, að þeir aðilar, sem eru með nýjar ábatasamar hugmyndir og skortir eigið fjármagn, geti fengið það með framlagi félags á borð við þetta. Meiri hluti fjh.- og viðskn. leggur þess vegna til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem ég hef hér gert grein fyrir.