05.06.1985
Neðri deild: 84. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5948 í B-deild Alþingistíðinda. (5361)

455. mál, nýsköpun í atvinnulífi

Frsm. 2. minni hl. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Hér er til meðferðar eitt af þremur málum sem ríkisstj. flytur í framhaldi af kröfum landsfundar Sjálfstfl. varðandi Framkvæmdastofnun ríkisins. Hér er Framsfl. að verða við vissum úrslitakröfum íhaldsins í sambandi við stjórnarsamstarfið og eins og fram hefur komið telur forsrh. það aðalefni þingsins þann tíma sem eftir er af því að afgreiða þessi mál.

Þessi frv. eru öll merki frjálshyggjuofstækinu sem einkennir þessa ríkisstj., tilraun til að froða markaðssjónarmiðunum alls staðar inn, hvort sem það er í atvinnumálum, félagsmálum, heilbrigðismálum eða skólamálum, og tilraun þannig til þess að draga úr hinum félagslegu, lýðræðislegu ákvörðunum og áhrifum þeirra í atvinnu- og efnahagslífinu á Íslandi. Hér er ríkisstj. Framsfl. að ómerkja það sem ríkisstj. Framsfl., Alþb. og Samtaka frjálslyndra og vinstri manna beitti sér fyrir á árunum 1971–1974. Það er athyglisvert að hugleiða þróun efnahags- og atvinnumála á þessum tíma, velta því fyrir sér hvað hefur verið að gerast, hvernig stjórnmálaflokkarnir hafa breyst í afstöðu sinni og þó einkum Framsfl.

Það var eins og kunnugt er þannig á viðreisnarárum Alþfl. og Sjálfstfl. að þá var það bannorð að opinberir aðilar kæmu neins staðar nálægt atvinnulífinu með frumkvæði og fjármagn þó að sú ríkisstj. gengi ekki svo langt að hún færi út í það að selja með kerfisbundnum hætti við lágu verði eignir almennings, þ. e. ríkisfyrirtækin, eins og núv. ríkisstj. hefur gert. Það urðu þess vegna afdrifamikil kaflaskipti í sögu atvinnumála á Íslandi árið 1971. Þá var horfið frá því að láta markaðinn um allar niðurstöður en í staðinn tekin upp sú stefna að efla atvinnulíf í landinu öllu í sjávarútvegi, iðnaði og landbúnaði og einnig í nýjum greinum. Lögð var áhersla á að landsmenn réðu sjálfir auðlindum þjóðarinnar. þ. e. landhelginni, og hefðu úrslitavald þar um.

Vinstri stjórnin 1971–1974, ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar, hafnaði þannig þeirri markaðsforsjá á öllum sviðum í atvinnulífinu sem viðreisnarstjórnin hafði beitt sér fyrir. Sú stefna, sem tekin var upp 1971 og skilaði milljörðum og aftur milljörðum króna í þjóðarbúið, stórbættum lífskjörum, bættri félagslegri þjónustu, hækkandi kaupmætti launa og tryggði byggð um allt land, olli kaflaskilum í íslenskum efnahags- og atvinnumálum. Stefna markaðshyggjunnar var í rauninni utangarðs í íslenska stjórnkerfinu á árunum 1971–1983. Þó að áhrifamiklar stofnanir eins og Seðlabankinn færu vissulega sínu fram réðu félagsleg sjónarmið mjög miklu um alla atvinnuþróun og uppbyggingu í efnahagslífinu á þessum tíma.

Núverandi ríkisstj. Steingríms Hermannssonar hæstv. forsrh. hefur hins vegar haldið áfram þar sem viðreisnarstjórnin hvarf frá verkum árið 1971. Þessi stjórn er pólitískt, efnahagslegt rökrétt framhald af viðreisnarstjórninni. Hún ryður markaðsöflunum til rúms hvarvetna í atvinnulífinu, í efnahags- og atvinnumálum. Hún ýtir til hliðar félagslegum sjónarmiðum. Hún hrekur á burt lýðræðislega hlutdeild Alþingis í stjórn þýðingarmikilla stofnana eins og fjárfestingarsjóða. Þetta kemur mjög glöggt fram í frv. þremur sem hér eru á dagskrá, þskj. 455, 456 og 457.

Varðandi þingmál 455 vil ég taka það fram að við Alþb.-menn höfum verið þeirrar skoðunar að ef Alþingi tekur ákvörðun um að stofna til þess fyrirtækis sem hér er rætt um þá sé að mörgu leyti eðlilegt að því verði valinn staður utan Reykjavíkur. Ég hef hins vegar náð samkomulagi í hv. fjh.- og viðskn. Nd. við hv. 2. þm. Norðurl. e. Halldór Blöndal um það að flytja við frv. um Byggðastofnun brtt. sem gengur út á það að Byggðastofnunin verði staðsett á Akureyri. Þess vegna vil ég taka það fram, herra forseti, varðandi brtt. á þskj. 806, að ég óska eftir því að atkvæðagreiðsla um frv. um Byggðastofnun fari fram áður en atkvæðagreiðsla fer fram um frv. um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til að örva nýsköpun í atvinnulífi o. s. frv.

Verði till. okkar hv. þm. Halldórs Blöndals um staðsetningu Byggðastofnunar á Akureyri samþykkt munum við Alþb.-menn draga til baka brtt. þá sem við flytjum hér á þskj. 806. Á þskj. 1091 geri ég grein fyrir nál. mínu varðandi frv. á þskj. 774. Í nál. 2. minni hl. fjh.- og viðskn., sem ég skrifa undir, segir svo, með leyfi forseta:

„Nál. um frv. til l. um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til að örva nýsköpun í atvinnulífi og um heimildir annarra aðila til þátttöku í félaginu.

Fyrir Nd. liggja nú þrjú þingmál, mál 455, 456 og 457, sem eru náskyld. Þau fjalla um að skipta Framkvæmdastofnun ríkisins upp í þrjár stofnanir. Í staðinn fyrir eitt höfuð verða þau nú þrjú. Tilgangur frumvarpanna er að fullnægja kröfum landsfundar markaðshyggjuflokksins um að leggja Framkvæmdastofnunina niður. Hér er því um nafnbreytingu að ræða annars vegar, hins vegar er hér á ferðinni enn ein tilraunin til þess að láta markaðssjónarmiðin fá yfirhöndina á öllum sviðum efnahagslífsins.

2. minni hl. fjh.- og viðskn. Nd. hefur þegar skilað álitum um Framkvæmdasjóð og Byggðastofnun og flutt við þau frv. brtt. Verður nú í þessu nál. farið nokkrum orðum um málið í heild og sérstaklega um 455. mál.

1. Fullyrt er að þessi frv. eigi að stuðla að því að draga úr ríkisafskiptum. Hvað er hæft í því? Í rauninni er að sumu leyti verið að auka miðstýringarvald embættismanna. Rök:

A) Framkvæmdasjóður er settur undir embættismenn á vegum þriggja ráðh. Vald Alþingis, þingræðisins, verður að engu.

B) Ríkið á að eiga, svo að segja eitt, nýtt hlutafélag með a. m. k. 200 millj. kr. í hlutafé.

C) Í lögum um Framkvæmdastofnun er gert ráð fyrir því að hún heyri undir ríkisstj. í heild. Í frv. ríkisstj. nú eiga allar stofnanirnar að heyra undir forsrh. einan. Forsrh. á þannig einn að fara með allt vald ríkisins yfir þróunarfélaginu sem getur þýtt það að hann hafi úrslitavald um ráðstöfun 500–600 millj. kr.

Niðurstaðan er því þessi: Það er verið að styrkja embættismannavaldið, verið að auka vald eins ráðh., hvort tveggja á kostnað Alþingis.

2. Skv. frumvörpunum er beinlínis dregið úr áherslu löggjafans á byggðasjónarmið og í staðinn lögð áhersla á vald markaðarins, fjármagnsins. Þetta gerist á sama tíma og landsbyggðin stendur álíka höllum fæti og á viðreisnarárum Alþfl. og Sjálfstfl. Þannig segir Framsfl. sig frá byggðastefnunni sem er sérstaklega athyglisvert miðað við aðild hans að ríkisstjórn 1971–1974.

3. Í frumvörpunum er hvergi tekið á heildarvandamálum atvinnulífsins en framleiðslugreinarnar búa nú við stórfellda erfiðleika eins og kunnugt er.

4. Í frumvörpunum er ekkert sem tryggir raunverulega nýsköpun í atvinnulífinu. En það er athyglisvert að Framsfl. skuli nú ætla að stela orðinu „nýsköpun“ eftir áratuga baráttu gegn hvers konar nýsköpun í atvinnulífinu, enda er „nýsköpun“ Framsfl. nafnið tómt.

5. Í frumvarpinu er opnað fyrir það að fyrirtæki geti keypt sig inn í þróunarfélagið og þannig keypt sér aðgang að niðurgreiddu fjármagni, m. ö. o. gjafafé úr ríkissjóði. Þó er bersýnilegt að ríkisstj. hefur mjög takmarkaða trú á félaginu því að meiri hl. fjh.- og viðskn. flytur nú till. um undantekningarákvæði frá hlutafélagalögum þannig að hluthafar í þróunarfélaginu geti verið færri en þar er gert ráð fyrir.

6. Í frv. um þróunarfélag er hvergi um að ræða stefnubreytingu í atvinnumálum sem raunverulega gæti stuðlað að nýsköpun í atvinnulífinu. Þar er ekki minnst á nauðsyn þess að efla smáfyrirtæki né heldur gjaldeyrissparandi fyrirtæki. Frv. er svo opið að það er augljós hætta á því að ríkisfjármunir verði hér notaðir í stórum stíl í fyrirgreiðslupólitík helmingaskiptaflokkanna.

Af þessum ástæðum telur 2. minni hl. fjh.- og viðskn. ekki ástæðu til þess að afgreiða frv. þetta á yfirstandandi þingi.“

Hv. þm. Friðrik Sophusson, frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn., taldi ástæðu til að mótmæla einu atriði í nál. 2. minni hl. á þskj. 1091, þ. e. því atriði að ríkið eigi að eiga svo að segja eitt þetta nýja hlutafélag. Það er vafalaust rétt, sem hv. þm. Friðrik Sophusson sagði, að þeir sem sömdu frv. þetta hafa gert sér vonir um að fleiri aðilar kæmu til liðs við uppbyggingu í atvinnulífinu en ríkið eitt. Það er vafalaust rétt hjá þeim að þær frómu óskir hafa verið til staðar í þeirra huga. Hins vegar er bersýnilegt að meiri hl. hefur sjálfur vantrú á þessu. Það er þess vegna sem hann flytur brtt. um ákvæði til bráðabirgða varðandi fjölda stofnenda hlutafélagsins og hluthafa ífélaginu, að hvort tveggja verði óháð takmörkunum 2. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 17. gr. laga nr. 32/1978, um hlutafélög.

Þessi litla brtt. á þskj. 1055 er brtt. frá meiri hl. sem staðfestir að hann hefur sjálfur enga trú á að áhugi verði á að ganga til liðs við ríkið í verulegum mæli í þessu fyrirtæki. Þessi brtt. er þess vegna staðfesting á því sem ég segi hér í nál. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. Þess vegna eru mótmæli hv. 2. þm. Reykv. ekki gild vegna þess að með eigin brtt. gerir hann þau að engu.

Í dagskrá þessa fundar er talað um að á dagskrá sé frv. til l. um nýsköpun í atvinnulífinu. Mig minnir að efnið heiti það í þingdagskrám þessa dagana. Hvaðan er þetta orð, „nýsköpun“, komið í íslenska stjórnmálaumræðu? Það var 1944 að nýsköpunarstjórnin, sem í áttu sæti fulltrúar Sjálfstfl., Sósíalistaflokksins og Alþfl., beitti sér fyrir stórfelldri nýsköpun í atvinnulífinu, uppbyggingu atvinnuveganna um allt land, sem hafði í för með sér lífskjarabyltingu fyrir fólkið í landinu, skapaði grundvöll fyrir hærra kaup, betri félagslega þjónustu, nýtt almannatryggingakerfi, ný fræðslulög, annars konar heilbrigðisþjónustu og þannig mætti lengi telja.

Á árunum 1944–1946 var einn flokkur í stjórnarandstöðu, Framsfl. Hann lagði ofurkapp á það að berjast gegn nýsköpuninni og hefur í rauninni æ síðan lagt á það mikla áherslu í söguritun Framsfl. — en framsóknarmenn gefa út sagnfræðirit um sjálfa sig af og til — að þessi nýsköpun 1944–1946 hafi verið sóun, hún hafi verð slæm meðferð á almannafé og hafi farið illa með þau tækifæri sem þjóðin átti í stríðslok. Í ævisögu Eysteins Jónssonar, fyrrv. formanns Framsfl., eru ítarlegir kaflar þar sem sérstaklega er fjallað um það hvað nýsköpunin og nýsköpunarstjórnin hafi í rauninni verið fráleit og þar er allt reynt sem hægt er til þess að sverta nýsköpunarstjórnina.

Nú á seinni árum gerist það hins vegar að Alþýðusamband Íslands og BSRB óska eftir því í samþykkt, sem birt var í fjölmiðlum í maí 1983, að gripið verði til ráðstafana til að stuðla að nýsköpun í atvinnulífinu. Það er einnig ljóst að það er mikil þörf fyrir það hjá þjóðinni að þannig verði haldið á málum að atvinnulífið verði efld með raunhæfum aðgerðum. Þá bregða menn gjarnan fyrir sig þeim tíma sem talinn er happadrýgstur í íslenskri atvinnumálasögu á síðari áratugum, þ. e. menn nefna nýsköpunarstjórnina og vilja þannig gjarnan endurtaka það átak sem þar var gripið til.

Þess vegna er nú svo komið að Framsfl. hefur neyðst til þess eftir 40 ára hatramma baráttu gegn nýsköpun í atvinnulífinu að gera þetta orð að yfirskrift á því frv. sem hér liggur fyrir. En því miður, herra forseti, hugur fylgir ekki máli. Tilraunin er í rauninni eins og nýju fötin keisarans. Nafnið stendur eitt og þegar betur er að gáð kemur í ljós að keisarinn er ekki í neinu. Tilraunin er í skötulíki. Það er út af fyrir sig ekki að undra að tifraun Framsfl. til nýsköpunar í afvinnulífinu hafi þennan blæ þegar hann líka flytur þetta mál í tengslum við Sjálfstfl. í núverandi ríkisstj. — [Fundarhlé.]

Herra forseti. Ég hafði hér fyrir fundarhlé gert grein fyrir afstöðu 2. minni hl. fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar og fjallað nokkrum almennum orðum um þá stefnumótun í atvinnumálum sem hér er um að ræða. Ég ætta þá aðeins að víkja að lokum, herra forseti, að frv. sjálfu til ítrekunar á mínum sjónarmiðum varðandi einstakar efnisgreinar þess.

Hér er verið að gera ráð fyrir því að stofna hlutafélag með allt að 700 millj. kr. að láni og í framlögum frá ríkinu. Eins og ég benti á við 1. umr þessa máls er gert ráð fyrir því að forsrh. fari einn ráðh. með vald yfir þessu gífurlega fjármagni. Ég hygg að það sé fátítt að ráðh. fái heimild frá Alþingi til að sitja yfir fjármunum af því tagi sem hér er gerð till. um upp á mörg hundruð milljóna króna. Það hefur ekkert komið fram í umr. sem bendir til þess að það sé ætlun stjórnarflokkanna að fleiri aðilar komi þarna að en hæstv. forsrh.

Það liggur hérna fyrir í þinginu frv. til l. um Framleiðsluráð landbúnaðarins. Þar er gert ráð fyrir því að landbrh. fái sjóð upp á 250 millj. kr. að ráðskast með á ári hverju án þess að nokkur sérstök stjórn eða nefnd sé þar kölluð til. Þessi ríkisstj. hefur sem sé brotið í blað að því leyti að hún ætlar einstökum ráðh. að ráðskast með fjármuni í stærri stíl en nokkur dæmi eru til um. Það eru engin dæmi til í okkar stjórnkerfi um vald einstakra ráðh. yfir eins miklum fjármunum og þeim sem hér um ræðir.

Það er sérkennilegt ef Alþingi lætur sé lynda, ef Alþingi líður það að afhenda einstökum ráðh. jafnmikil völd yfir fjármunum og hér er gert ráð fyrir. Alþingi fjallar um fjárlög á ári hverju og þar er verið að togast á um upphæðir - oft nokkra tugi þúsunda króna, oft fáeinar milljónir — í brtt. sem eru lagðar hér fram af stjórn eða stjórnarandstöðu. En það er ekki verið að sýta svoleiðis smámuni í þessu plaggi, heldur á að hrúga til eins ráðh. allt að 700 millj. króna.

Í 1. gr. frv. segir: „Ríkisstj. skal beita sér fyrir stofnun hlutafélags er hafi það markmið að örva nýsköpun í atvinnulífi og efla arðsama atvinnustarfsemi. Hlutafé félagsins verði a. m. k. 200 millj. króna.“

Hér er sem sagt gert ráð fyrir því að hlutaféð verði a. m. k. 200 millj. króna sem þetta félag fær svo að segja í tannfé, gjafafé úr ríkissjóði, vegna þess að það er ríkissjóður sem auðvitað borgar allt þetta hlutafé upp á 200 millj. króna. Hlutafé félagsins verði a. m. k. 200 millj. króna. Meðan það liggur ekki fyrir að aðrir aðilar leggi hlutafé í þetta fyrirtæki, þróunarfélagið, er bersýnilega ætlunin að leggja þetta allt á ríkissjóð. Ég held að það væri nauðsynlegt að fá um það upplýsingar hvaða skilyrði ríkissjóður ætti að setja fyrir hlutafjárframlögum í fyrirtæki af þessu tagi.

Í 3. gr. frv. er gert ráð fyrir því að viðskiptabönkum, vátryggingafélögum, líftryggingafélögum og fjárfestingarlánasjóðum verði heimilt að kaupa hlut í þessu fyrirtæki. Í umr. um frv. til l. um viðskiptabanka hef ég lýst því yfir að ég sé andvígur því að viðskiptabönkum verði heimilað að fara inn í aðra óskylda atvinnustarfsemi. Þess vegna er ég þeirrar skoðunar að hvað sem fjárfestingarlánasjóðum líður sé óeðlilegt að viðskiptabankar hafi möguleika á því að kaupa hlutabréf í fyrirtæki af þessu tagi. Það er hættulegt fyrir viðskiptabanka að gauka sér í alls óskylda atvinnu- og þjónustustarfsemi eins og hér er gerð till. um.

Í 4. gr. í þessu frv. er fjallað um framlög og lán í þetta fyrirtæki. Þar segir að ríkisstj. er í fyrsta lagi heimilt að leggja fram í reiðufé 100 millj. kr. sem hlutafé í félagið skv. 1. gr. Síðan segir:

„Ef nauðsynlegt reynist til þess að ná því lágmarkshlutafé sem greinir í 1. gr. skal ríkisstj. heimilt að leggja fram sem hlutafé allt að 100 millj. kr. til viðbótar framangreindu 100 millj. kr. framlagi. Framlag ríkissjóðs skal tekið af fé ríkissjóðs eða af lánsfé sem ríkisstj. skal heimilt að afla ríkissjóði í því skyni.“

M. ö. o. er bersýnilega gert ráð fyrir þeim möguleika að ríkið geti lagt þarna fram 100 plús 100 millj. kr., 200 millj. króna, í þetta fyrirtæki. Það er óvenjuleg rausn af ríkissjóði að leggja fram slíkt fé í eitt hlutafélag sem auk þess eru engar líkur á að geti breytt einu eða neinu í atvinnulífi landsmanna. Hérna er verið að taka skattfé almennings, skattfé fólksins í landinu og troða því inn í svokallað þróunarfélag til að fullnægja ýtrustu kröfum landsfundar Sjálfstfl. Ég hygg að sjaldan hafi samþykktir stjórnarflokka verið keyptar jafndýru verði og lagt er til í þessu frv.

Í öðru lagi er hér gert ráð fyrir því að ríkisstj. verði heimilt að veita einstaklingum og félögum í atvinnurekstri lán til allt að fjögurra ára til kaupa á hlutabréfum í þessu félagi. Skal heimilt að lána af fé ríkissjóðs eða af lánsfé, sem ríkisstj. skal heimilt að afla ríkissjóði í því skyni, til greiðslu á allt að helmingi hlutafjárloforða þessara aðila enda séu boðnar fram fullnægjandi tryggingar. Lánin skulu vera verðtryggð og bera venjulega vexti.

Hérna er sem sagt opnað fyrir það að ríkissjóður geti lánað þeim aðilum, sem vilja verða hluthafar í þessu fyrirtæki, helminginn af andvirði hlutabréfa þeirra. Hérna er einnig mjög höfðinglega boðið. Þrátt fyrir þetta höfðinglega boð flytur ríkisstj. hér brtt. við frv. um að hluthafar geti verið færri en fimm vegna þess að hún hefur ekki trú á því að margir aðilar komi inn í þetta fyrirtæki þó að hún bjóði helminginn af hlutafénu á gjafverði handa þeim aðilum sem hugsanlega kunna að hafa áhuga á að ganga inn í þetta kompaní.

Í 3. tölul. 4. gr. segir síðan að þessu félagi má ríkisstj. útvega lán að fjárhæð samtals allt að 200 millj. króna og endurlána hlutafélaginu án sérstakra trygginga. Það má endurlána þessu fyrirtæki 200 millj. kr. í viðbót án sérstakra trygginga, auk þess að veita ríkisábyrgð fyrir láni eða lánum er hlutafélagið tekur til starfsemi sinnar að fjárhæð samtals allt að 300 millj. kr. eða jafnvirði þess í erlendri mynt.

Hér er verið að opna fyrir það að hérna gæti verið um að ræða fjárstreymi úr ríkissjóði af skattpeningum almennings og með erlendum lánum upp á 500–700 millj. króna. Nú gætu menn út af fyrir sig sjálfsagt samþykkt að standa að einhverju slíku ef hér væri á vísan að róa ef hér væru hugmyndir um stóreflingu atvinnulífs á Íslandi, ef hér væru ábendingar um það að efla mætti atvinnulífið og auka þjóðarframleiðsluna stórkostlega hér á komandi árum með þessum fjármunum. Það er ekki. Það stendur ekki neitt í þessu frv. sem bendir til þess að þessi aðferð, að stofna þróunarfélag, skili nokkrum hlut í okkar atvinnulífi. Það er alveg makalaust að þm. stjórnarflokkanna skuli sitja undir því gagnrýnislaust að taka við öðrum eins fjáraustri út í loftið því að þeir vita ekkert og hafa ekki bent á neitt sem bendir til þess að þetta muni skila einhverjum árangri í atvinnulífi landsmanna.

Það hefur lengi verið þannig og sagan sannar það best að íhaldsöflunum er aldrei treystandi fyrir skattpeningum almennings. Íhaldsöflin fara yfirleitt illa með skattpeninga almennings. Ríkissjóður er illa rekinn á þeirra tímum eins og dæmin sanna. Þeir hika ekki við að sóa hundruðum milljóna króna í fyrirtæki af því tagi sem hér er verið að tala um á sama tíma og þeir neita um örlitlar upphæðir til þeirra einstaklinga sem eru að sligast undir þeirri byrði sem stjórnarstefnan hefur lagt á fólk. Það má vera fróðlegt fyrir hæstv. félmrh. að íhuga að á sama tíma og hann getur ekki úthlutað húsnæðissamvinnufélögum 50 millj. kr. er verið að setja úf hálfan milljarð eða meira í þetta gæluverkefni landsfundar Sjálfstfl.

Herra forseti. Ég held að það sé ekki til dæmi um annan eins fjáraustur út í óvissuna og hér er gerð till. um. Menn vita ekki um og hafa ekki komið fram með neinar upplýsingar um að þessi fjáraustur skili árangri í atvinnu- og efnahagsmálum, þjóðarframleiðslu á Íslandi. Þetta gerist á sama tíma og verið er að skera við nögl framlög til einstaklinga, félaga og félagslegrar þjónustu í landinu.

Ég vil mótmæla þessum vinnubrögðum, þessu sukki með almannafé, sem núv. ríkisstj. er orðin fræg fyrir að endemum. Ég mótmæli þessum vinnubrögðum og ég skora á þm. stjórnarflokkanna að hafa rænu á því, ef þeir einhvern tíma rumska, að átta sig á því hvað hér er á ferðinni. Ég skora á þá að athuga hvað þeir eru hér að gera. Þeir eru með umboð kjósenda sinna til að hafa skoðun á því sem lagt er fram á Alþingi en sitja ekki eins og sofandi sauðir undir frv. sem lögð eru fram til þess að þjóna því ofstæki sem birtist í ályktunum landsfundar Sjálfstæðisflokksins.

Herra forseti. Ég hef farið hér í fáeinum orðum yfir álit 2. minni hl. fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar. Ég á kost á því skv. þingsköpum að kveðja mér á ný hljóðs um þetta mál ef ástæða verður til. En ég vænti þess að ég hafi gert það ljóst að í þessu frv. er hvergi bent á raunverulega nýsköpun í atvinnulífi. Hér er orðið „nýsköpun“ notað til að skreyta það sem í rauninni ekkert er þetta er nýsköpun í skötulíki. Þegar málið er skoðað kemur í ljós að keisarinn er í engu. Það er ekkert á bak við þetta annað en ýtrustu kröfur frjálshyggjuaflanna í Sjálfstfl. sem Framsfl. er hér að þjónusta.