06.06.1985
Efri deild: 90. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5964 í B-deild Alþingistíðinda. (5368)

216. mál, stjórn efnahagsmála

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Við umr. hér í gær drap ég aðeins á þetta mál sem er um hreingerningu á lögum nr. 13/1979, svokölluðum Ólafslögum. Það hefur nú þegar verið ákveðið að mæla með því hér og samþykkt hér í deildinni að afnema VIII. kafla laganna, það var gert með sérstöku frv., og síðan í gær var gengið út frá því við afgreiðslu frv. um fjárlagagerð o. fl. að III. og IV. kafli laganna yrðu numdir úr gildi.

Ég hafði flutt snemma á þinginu till. um að lögin í heild yrðu afnumin, en þau einstöku ákvæði sem þar er að finna og kynnu að þurfa að vera áfram í lögum yrðu felld inn í lög á réttum stöðum. Þetta hefur síðan verið í athugun í nefndinni. Öll þessi þrjú mál um þessi gömlu lög hafa verið þar rædd og niðurstaðan hefur orðið sú að nefndin sameinast um að vísa máli þessu til ríkisstj.

Hæstv. forsrh. hefur tjáð mér að þegar sé ákveðið að undirbúa slíka hreinsun á þessari lagasmíð og hugmyndin sé að leggja það mál fyrir Alþingi á komandi hausti. Hann hafði að vísu talað um það að hugsanlega yrði hann við þessa umr. og mundi þá gefa þessa yfirlýsingu, en ég tel það út af fyrir sig ekki skipta meginmáli úr því að hæstv. ráðh. er ekki hér. Hann hefur sagt þetta við mig og ég efast ekki um að svo sé. Og í trausti þess er nefndin sammála um að leggja til að málinu verði vísað til ríkisstj.