06.06.1985
Neðri deild: 85. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5974 í B-deild Alþingistíðinda. (5385)
Um þingsköp
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til þess að bera af mér sakir. Það er rétt hjá hv. 10. landsk. þm. að konur hér í þingi eru venjulega stuttorðar og þær eru líka venjulega sannorðar. Undantekning var frá því nú í ræðu hv. 10. landsk. þm.
Hv. þm. hélt því fram að engar upplýsingar hefðu verið gefnar um framkvæmd lagaákvæðisins um starfsáætlun dagvistarstofnana hér í umræðum á þingi vegna fsp. hennar nú á dögunum. Hv. þm. getur flett því upp í þingtíðindum að frá því var nákvæmlega skýrt hvernig væri verið að vinna að framkvæmd þessa lagaákvæðis með því að láta vinna úr því í dagvistarstofnunum sjálfum nú í sumar. Valborg Sigurðardóttir fyrrum skólastjóri Fóstruskólans hefur verið ráðin til þess á síðasta ári eða nú í vetur að starfa við þessi mál í menntmrn. Hún hefur m. a. fengið það verkefni að kynna þessa áætlun í stofnunum og ég hef orðið þess vör í viðbrögðum frá fóstrum að einmitt þetta skref er talið vera mjög til góðs og skipta máli í starfi dagvistarstofnana. Þetta tel ég að hafi verið svör við því sem hv. þm. spurði þá um, hvernig ætti að framfylgja þessu lagaákvæði, og því var nákvæmlega lýst hvernig ætti að gera það nú í sumar, hvernig ætti að standa að því að halda málinu áfram. Þetta vildi ég leiðrétta, hæstv. forseti, af því að ég sé að hér er margt fólk á pöllum sem e. t. v. hafði ekki hugmynd um það sem rétt var í þessu máli, en þetta liggur fyrir bæði í skjölum rn. og í þingtíðindum.
Ég legg það svo í vald hæstv. forseta hvort hann telur þessa umræðu eða áframhald hennar heyra undir þingsköp og hvað hann úrskurðar að gert sé í þessu efni. En ef efnislegri spurningu væri til mín beint, sem ekki hefur verið gert, þá er að sjálfsögðu gert það sem hægt er af hálfu míns rn. til þess að afla svara við því, en á þeim tíma að sjálfsögðu sem til þess þarf.