06.11.1984
Sameinað þing: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í B-deild Alþingistíðinda. (541)

78. mál, löggæsla á Reyðarfirði

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég held að ég hafi ekki talað nægilega skýrt í svari mínu áðan til þess að það hafi komist til skila þar sem hv. þm. telur að á bak við liggi að draga eigi úr þessari löggæslu. Í svarinu var einmitt lögð áhersla á að henni yrði þarna haldið uppi ekki síður en hingað til og með samvinnu þessara tveggja manna væri þá alltaf einhver til taks, einhver á vakt sem er vitanlega útilokað ef aðeins er einn maður. Ég talaði um skýrslugerð og sagði að aðstæða væri á Reyðarfirði til þeirra hluta þannig að þeir sem væru svo óheppnir að þurfa að gefa lögreglunni skýrslu þyrfti ekki að fara til Eskifjarðar þrátt fyrir þessa breytingu. Það er, eins og í svarinu kom fram einnig, búið að útvega húsnæði fyrir lögregluna á Reyðarfirði líka.

En ég vil ítreka að rn. hefur ekki möguleika á að setja skilyrði um hvar menn búa ef menn mæta til starfa þar sem þeim er það skylt. Hins vegar get ég tekið undir það með hv. fyrirspyrjanda að heppilegra hefði verið að þessi lögregluþjónn hefði ekki flutt sína búsetu núna því að það er óskylt þessari skipulagsbreytingu og hann hefði búið áfram á Reyðarfirði. En þar munu persónulegar ástæður hafa legið á bak við sem rn. hefur ekki í sínu valdi að hafa áhrif á.