07.06.1985
Efri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6021 í B-deild Alþingistíðinda. (5452)
492. mál, Iðnþróunarsjóður
Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Iðnn. hefur tekið frv. til meðferðar og samþykkir einróma að leggja til að frv. verði samþykkt.
Með frv. þessu er lagt til að ríkisstj. verði veitt heimild til að staðfesta af Íslands hálfu nýjan viðbótarsamning við samning frá 12. des. 1969 sem felur í sér eftirfarandi þrjár meginbreytingar: 1. að verksvið Iðnþróunarsjóðs verði víkkað, 2. að möguleikar í lánskjörum verði sveigjanlegri og 3. að auknir verði möguleikar sjóðsins til þátttöku í áhættufjármögnun.
Þetta frv. er einfalt í sniðum, en þýðingarmikið að því leyti að það þykir nauðsynlegt að fá formlega staðfestingu á þessum samningi sem um getur frá 12. des. 1969. Það eru allir sammála um þetta mál í hv. iðnn. þessarar deildar. Það voru allir sammála í hv. iðnn. Nd. um málið. Málið er ágreiningslaust. Allir sem að því hafa komið leggja til að frv. verði samþykkt.