07.06.1985
Efri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6027 í B-deild Alþingistíðinda. (5465)

526. mál, Seðlabanki Íslands

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Í sambandi við það frv. sem hér er til umr. er tekið fram í grg., með leyfi forseta:

„Fram hefur komið opinberlega að í frv. til l. um seðlabanka Íslands, sem bankamálaráðherra hefur boðað að flutt verði, séu ákvæði um 15% bindiskyldu. Bindiskyldan er nú í raun 18%, en með því að lækka hana í 15 mundu losna tæpar 800 millj. kr.“

Í fyrsta lagi vildi ég segja að það er blaðaviðtal sem hér er vitnað til og kom það fram í ræðu frsm. meiri hl. Þar er aðeins sögð hálf sagan einfaldlega vegna þess að það geta allir þm. séð og borið saman að 15% bindiskylda er ætluð, en það fylgir þeim texta annar texti, sem ekki er í því frv. sem hér er verið að ræða, þannig að hér er ekki um að ræða sambærilegar hugmyndir og þm. hafa séð og þess vegna geta þeir ekki borið það saman.

Í öðru lagi furða ég mig á því þegar menn tala um að með lækkun bindiskyldu losni svo og svo mörg hundruð millj. kr., eins og að hér sé fjármagn sett inn í skáp, seðlar geymdir og hægt sé að taka þá þar út. Það sé bara vegna þess að það séu vondir menn sem standi að því að í Seðlabanka sé geymdur nokkur varasjóður af því sparifé sem landsmenn hafa safnað saman. Ég er sannfærður um að sá sem fyrstur talaði fyrir bindiskyldu á Alþingi Íslendinga 1961, fyrrv. formaður Alþfl., fyrrv. viðskrh. Gylfi Þ. Gíslason, hefði tekið 1. flm. þessa frv. í læri til að kenna honum og segja honum hvers konar tæki í efnahagsstjórn hér sé um að ræða.