07.06.1985
Efri deild: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6044 í B-deild Alþingistíðinda. (5484)

480. mál, greiðslujöfnun fasteignaveðlána

Ragnar Arnalds:

Virðulegi forseti. Vissulega er það spor í rétta átt að tekin sé upp sú greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga sem þetta frv. gerir ráð fyrir, en það hefur komið skýrt fram í málflutningi okkar Alþb.-manna og í málflutningi stjórnarandstöðunnar í heild að þessi ákveðna tilhögun, sem hér er gerð tillaga um, er að okkar dómi alls ófullnægjandi.

Við höfum lagt á það áherslu að þessi greiðslujöfnun nái einnig til banka og lífeyrissjóða en ekki aðeins til byggingarsjóða ríkisins. Við höfum lagt á það áherslu að réttur lántakenda verði skilgreindur og viðurkenndur án tillits til vanskila eða einhvers óskilgreinds mats embættismanna. Við höfum lagt á það áherslu að útreikningur greiðslumarksins skv. þessu frv. eigi að miðast við kauptaxtavísitölu. Við höfum lagt á það mjög þunga áherslu að vextir af lánum húsnæðismálastjórnar verði lækkaðir. Og við höfum lagt það til að veittur verði sérstakur skattafsláttur skv. nánari reglum.

Í þessu sambandi vil ég vekja athygli á því að það vandamál sem upp hefur komið hjá húsbyggjendum stafar fyrst og fremst af gerðum núv. ríkisstj. Ég er ekki sammála því, sem ýmsir hafa sagt og þ. á m. ýmsir í stjórnarandstöðu, að vandamál húsbyggjenda megi rekja langt aftur í tímann og sé að kenna mörgum fyrri ríkisstjórnum. Ég held að ef sama fyrirkomulag hefði verið á þessum málum og var hér áður fyrr hefði þessi vandi alls ekki komið upp, ef horfið hefði verið að því ráði, sem við lögðum mjög þunga áherslu á, Alþb.menn, á árinu 1982–1983, að miðað yrði við kauptaxtavísitölu í staðinn fyrir lánskjaravísitölu, en um þetta efni fluttum við ýmsar tillögur m. a. í ríkisstj. sem við sátum í, tillögur sem voru reyndar samhljóða tillögum sem hv. þm. Alþfl. fluttu hér á Alþingi. Ef þessar tillögur hefðu náð fram að ganga hefði aldrei skapast það misræmi milli vísitalna sem síðar varð. Og ef vextir hefðu ekki verið gefnir frjálsir og það vaxtabrjálæði upphafist sem við höfum horft upp á seinustu tvö árin væri vandi húsbyggjenda sem nú er mjög til umræðu ekki ýkjastór. Það eru þessi tvö atriði sem valda vandanum: annars vegar að leyft er misgengi tveggja vísitalna og hins vegar að vextirnir eru svona háir. Þetta eru tvær meginástæður þess hvernig komið er. Því er rangt að reyna að kasta ábyrgðinni á aðrar ríkisstjórnir en þá sem nú situr. Ábyrgðin er alfarið hennar. Þessi vandi mundi ekki vera fyrir hendi ef þetta misgengi vísitalna hefði ekki verið látið viðgangast. ef kjaraskerðingin hefði ekki gengið yfir, því að auðvitað er það meginþáttur vandans að kaupgjaldsvísitalan er tekin úr sambandi og að vextir eru gefnir frjálsir.

Sem sagt: við höfum lýst því yfir, við Alþb.-menn líkt og stjórnarandstæðingar allir, að við teljum þetta frv. ganga of skammt, en viðurkennum hins vegar að það stefnir í rétta átt.