07.06.1985
Efri deild: 92. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6046 í B-deild Alþingistíðinda. (5486)

480. mál, greiðslujöfnun fasteignaveðlána

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég vil fyrst segja það í sambandi við ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v. að þegar hann talar um vexti af húsnæðislánum er rétt að taka það fram og menn mega ekki gleyma því að vextir í húsnæðissjóðunum eru niðurgreiddir og hafa alltaf verið niðurgreiddir, hafa ekki hækkað í samanburði við aðra vexti. Vextir af almennum lánum eru 3.5% umfram vísitölu, en 1% í Byggingarsjóði verkamanna sem er mjög veruleg niðurgreiðsla miðað við þá vaxtaþróun sem er í landinu.

Hann minntist á skattafslátt og vaxtafrádrátt. Þetta er eitt af þeim atriðum sem hafa verið til umræðu og hafa komið til álita í umræðum um að leysa þessi mál. Þetta var rætt við fulltrúa Alþýðusambandsins og er áherslupunktur sem er verið að vinna að. Það liggja þegar fyrir ákveðnar hugmyndir um breytingar á núgildandi vaxtafrádrætti í skattalögum, en þau eru ófullnægjandi að því er varðar húsnæðismálin. Menn eru búnir að átta sig á því að það verður að breyta þeim ákvæðum. Það er hins vegar ekki búið að taka ákvörðun um hvernig það verður gert. Það getur komið til greina að hafa þar sérstakan skattaafslátt eins og þegar hefur verið gert frv. um. Þetta er mál sem stjórnarflokkarnir eru með á prjónunum og kemur raunar fram í fskj. með því frv. sem verður hér til umræðu á eftir.

Ég ætla ekki að fara út í umræðu um hverjum eru að kenna þau vandamál sem hafa komið upp hjá mörgum húsbyggjendum eða húskaupendum í landinu, því miður. Það skiptir e. t. v. ekki máli héðan af að fara að rökstyðja það, en ég vil aðeins minna á að þetta misgengi hófst fyrst og fremst 1981 og var fyrirferðarmest á árunum 1982 og 1983. Um þetta er ekki deilt. Ég tel, og það viðurkenna allir, að verðbólgan hafi verið aðalþátturinn, sú mikla verðbólguskriða sem var komin upp í 130%. Það sýnir sig best að sú ákvörðun að reyna að ná niður verðbólgunni skilaði strax árangri hvað þetta varðar á árinu 1984 því að á fyrri hluta árs 1984 og eiginlega fram undir lok ársins var misgengi sáralítið eða ekkert á milli lánskjaravísitölu og launa. Það sýnir því að hverju við þurfum að stefna í framtíðinni um þessi mál.

Í sambandi við það sem hv. 6. landsk. þm. Karl Steinar Guðnason sagði vil ég undirstrika að ég verð alltaf sannfærðari og sannfærðari um mikilvægi þeirrar ákvörðunar að taka upp ráðgjafarþjónustu við Húsnæðisstofnunina og það á eftir að koma betur fram í opinberum skýrslum sem verða birtar um þessa starfsemi. Ég vil segja frá því hér að það er þegar búið að ákveða að ráðgjafarþjónustan verði fastur þáttur í starfsemi Húsnæðisstofnunarinnar með nýju sniði sem einmitt snertir það sem hv. þm. Karl Steinar Guðnason minntist á. Ráðgjöf verður veitt bæði á tæknilega og fjármálalega sviðinu. Það hefur sýnt sig og sannast á þeirri ráðgjafarþjónustu sem fram hefur farið að fjöldi fólks þarf sannarlega á henni að halda. Það eru einmitt fyrirbyggjandi ráðstafanir með slíkri ráðgjöf sem mundu koma í veg fyrir mikið af þeim vandamálum sem fólk á við að stríða.

Ég fagna því mjög að þessi áfangi skyldi nást á Suðurnesjum sem er til fyrirmyndar. Allar peningastofnanir, verkalýðsfélögin og fleiri aðilar hafa tekið höndum saman um að gera þetta algilt á þessu svæði.

Þetta verður mjög mikilvægt fyrir svæðið í heild.

Hv. þm. spurði hvers vegna ekki væri hægt að lögfesta þetta um banka, sparisjóði og aðrar peningastofnanir í landinu. Það var talið ófært af þeim sérfræðingum sem um þetta fjölluðu. Ég vil minna á að fulltrúar Alþýðusambandsins í viðræðunum töldu þetta ekki fært heldur. Þeir vildu heldur að það yrði samkomulagsatriði t. d. við lífeyrissjóðina að nota þessa aðferð frekar en fara að lögþvinga þá til þess. En sem betur fer, eins og ég sagði áðan og vil undirstrika hér, hafa lífeyrissjóðirnir þegar tekið þá ákvörðun að nota greiðslujöfnun á sín lán, sem er ákaflega mikilvægt atriði, og ég hef þá skoðun að bankakerfið muni smátt og smátt gera það einnig. Hér er að vísu opnað fyrir heimild til að ná slíkum samningum og ég held að bankar muni semja um það vegna þess að það verða miklu öruggari og traustari viðskipti fyrir fólk. Ríkisstj. mun að sjálfsögðu ganga í að reyna að ná samningum fyrir fólk um að þetta verði gert, a. m. k. við aðalviðskiptabanka landsins. Það get ég fullyrt að er þegar búið að ákveða.

Ég hef ekki meira að segja, herra forseti, en vona að þetta mál fái skjóta og greiða leið í gegnum hv. Ed.