07.06.1985
Neðri deild: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6060 í B-deild Alþingistíðinda. (5515)
475. mál, ríkislögmaður
Frsm. meiri hl. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Það var auðheyrt á hv. síðasta ræðumanni að það hefur verið erfitt að koma sér saman jafnvel um hin einstöku mál í þeim ríkisstjórnum sem hann hefur átt sæti í. Ég held að maður verði að búast við því að ríkislögmaður verði við beiðni ráðh. um það að annar lögmaður hafi með höndum sókn eða vörn af hálfu ríkissjóðs eða ríkisstj. ef hugur ráðh. stendur til þess. Ég held satt að segja að engum embættismanni muni detta í hug að standa gegn vilja ráðh. um slíka hluti. Ég hef því ekki áhuga á því efnisatriði og ég hygg að hitt sé miklu algengara að hæstv. ráðh. gangi yfir embættismenn en embættismenn gangi yfir ráðh. í slíkum málum. Ég er því ekki hræddur við þetta ákvæði. Var ég þó um skeið í vafa um réttmæti þess en ég hef íhugað það síðan og komist að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að hafa frv. afdráttarlaust til þess að embætti ríkislögmanns standi undir nafni og til þess að það þjóni því sem til er ætlast.
Varðandi einstök atriði, sem fram komu í ræðum þeirra þm. sem hér hafa talað, vil ég í fyrsta lagi aðeins segja það að varðandi þær bótakröfur sem hér er talað um þá er það meginregla hjá ríkissjóði að ríkissjóður eða stofnanir ríkisins vátryggi ekki sínar eignir þannig að undir embætti ríkislögmanns hljóta að falla ýmsar bótakröfur svo sem er hjá öllum þeim málflytjendum eða lögfræðiskrifstofum sem starfa á sviði tryggingaréttar. Umboð ríkislögmanns til þess að semja um bótakröfur er hvorki meira né minna en almennt gerist um málflytjendur, um lögmenn sem semja um slíkar kröfur fyrir tryggingafélögin.
Ég held að sá ótti sé ástæðulaus að halda að ríkislögmaðurinn muni bæði vera í sókn og vörn í sama málinu. Ég skil ekki þennan hugsunarhátt en ég er ekki jafn kunnugur og hv. síðasti ræðumaður í ýmsum þeim löndum sem hafa fullkomnasta stjórnarskrá, svo að ég taki ríkin austan járntjalds sem dæmi. Má vera að þar sé löghelguðum ríkislögmönnum ekki aðeins ætlað að verja ríkið gagnvart sjálfu sér heldur muni sami maðurinn þar vera í sókn og vörn þegar ríkið yfirgengur einstaklingana. En það er mjög fjarri lagi að við séum hér að tala um þá hluti. En ég lít á þetta sem útúrsnúning. Auðvitað var þm. að gera að gamni sínu, auðvitað veit hann að ef tveimur rn. lýstur saman þá muni báðir ráðh. kjósa það og ríkislögmaður einnig að lögmenn utan rn. verði látnir fjalla um það mál ef ráðh. geta ekki komið sér saman. Það er sú venja sem ég hygg að verði tekin upp varðandi það. (Gripið fram í: Það væri lögbrot.) Það væri ekki lögbrot. Ég held að hv. þm. ætti að lesa frv.
Því er slegið föstu í 3. gr. að lögfræðingar skuli vera allt að þrír. Þetta er ekki nýtt í löggjöf, það eru áreiðanlega einhvers staðar til hliðstæð ákvæði, þau eru til t. d. varðandi dómstóla. Þar er slegið föstu hversu margir borgardómarar megi vera o. s. frv., hversu margir hæstaréttardómarar megi vera o. s. frv. Ég tel alveg sjálfsagt að binda með þessum hætti hversu margir lögfræðingar skuli starfa við embætti ríkislögmanns. Ég gæti vel hugsað mér að þessi tala væri jafnvel tveir. Ég tel nauðsynlegt að hafa aðhald í þessu efni og að því verði ekki gefið undir fótinn að þarna sé hægt að fjölga lögfræðingum taumlaust heldur sé nauðsynlegt að hafa þarna nokkurt aðhald.
Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta. En ítreka að ég legg til að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir.