07.06.1985
Neðri deild: 89. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6081 í B-deild Alþingistíðinda. (5536)

Umræður utan dagskrár

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir spurði hér um tiltekið atriði. Það hefur ekki verið hugleitt að undirbúa endurmat á störfum fóstra. Þegar endurmat fór fram á störfum kennara var það eftir eindreginni ósk þeirrar stéttar sjálfrar og um var að ræða starfsfólk í stofnunum menntmrn. Þessi ósk hefur ekki komið fram af hálfu fóstra, a. m. k. ekki gagnvart menntmrn. En eins og ég nefndi áðan starfa þær fyrst og fremst í stofnunum sem eru á vegum allt annarra aðila en menntmrn. Það má því vel vera að slíkt fari fram á vegum sveitarfélaga án þess að mér sé um það kunnugt. En hitt veit ég af fregnum frá borgarstjórnarfundi í gærkvöldi að það mun vera í uppsiglingu á vegum Reykjavíkurborgar nánari úttekt en gerð hefur verið á ástandinu í þessum málum, m. a. á ástæðunum fyrir því að hin mikla hreyfing er á starfsfólki í gegnum dagvistarkerfið.

Árið 1981 var gerð sams konar könnun og orðið hefur tilefni til þessa — m. a. á þessari umr. — en sú könnun leiddi í ljós að hreyfingin í gegnum kerfið þá var einnig mjög mikil, þó nokkru minni en nú. Þá var hún rúmlega 50% en núna rúmlega 60%. Þessi hreyfing stafar ekki öll af því að fólk fari úr störfum við dagvistunarstofnanir heldur flyst það sumt á milli stofnana. Ég hef ekki upplýsingar um að hve miklu leyti hreyfingin stafar af því en það verður kannað, a. m. k. að því er mér er kunnugt um, á vegum Reykjavíkurborgar.

Ég held, herra forseti, að það sé óþarft að ítreka það að inn í samningaviðræður milli fjmrn. og BSRB hefur menntmrn. ekki tök á að grípa fremur en t. d. einhver þeirra þm. sem hér hafa talað og vakið máls á brýnum vanda og krafist tillagna frá þeim sem þessi kjaramál heyra ekki undir en enginn þessara hv. þm. hefur þó komið með eina einustu till. til úrlausnar. Það þykir mér athyglisvert.