10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6124 í B-deild Alþingistíðinda. (5582)

247. mál, flutningsjöfnunarsjóður olíu og bensíns

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Eins og hv. 5. þm. Austurl. sagði urðu hér umræður um olíuverð varðandi þá till. sem hv. 3. þm. Reykn. flutti. Þær tölur sem ég þar nefndi voru byggðar á gögnum sem lögð voru fyrir Ed., þ. e. fjh.- og viðskn. Ed., þó nokkuð löngu áður en þær upplýsingar sem hv. þm. hafði og kom hér fram með á eftir. Ég mun að sjálfsögðu gera ráðstafanir til þess að fjh.- og viðskn. og að sjálfsögðu þá þm. allir fái nýjustu upplýsingar í slíkum samanburði, hvort heldur er samanburður sem gerður er af hálfu viðskrn. og olíufélaganna eða, eins og hann hafði, upplýsingar frá Landssambandi ísl. útvegsmanna. Ég mun gera mitt til að stuðla að því að allar þessar upplýsingar komi fram til fjh.- og viðskn. og til þm. þannig að það liggi alveg ljóst fyrir hvernig þessi mál standa nú. En á þessu er ansi mikil hreyfing eins og við vitum frá einum mánuði til annars, einnar árstíðar til annarrar, og þess vegna kannske tölur í júnímánuði ekki sambærilegar til viðmiðunar við tölur sem gefnar voru upp í janúar. Eðlilegast er að þær tölur verði fengnar núna og við verðum með samanburð á verði í þessum mánuði og frá þessum aðilum öllum saman.