10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6130 í B-deild Alþingistíðinda. (5597)

487. mál, þörungavinnsla við Breiðafjörð

Kjartan Ólafsson:

Herra forseti. Það fyrirtæki sem fjallað er um í þessu frv. hefur átt við býsna mikla rekstrarörðugleika að etja á undanförnum árum og að mínum dómi er enn engan veginn sýnt hvort það getur staðið á eigin fótum. Ég er ekki andvígur því að heimamenn fái tækifæri til að stýra rekstri fyrirtækisins á komandi árum. Hins vegar er það mín skoðun að það sé ekki tímabært meðan svo mikil óvissa ríkir um rekstur fyrirtækisins að ríkisstj. setji í málinu úrslitakosti sem ég tel að mönnum hafi verið settir með þessu frv., þ. e. annaðhvort taki heimamenn við því með þeim skilmálum sem frv. fylgja ellegar fyrirtækinu verði lokað. Ég óttast að það felist of mikil bjartsýni í því að gera ráð fyrir að heimamenn nái að halda fyrirtækinu gangandi án stuðnings frá ríkisvaldinu á næstu árum, en hingað til hefur slíkur árlegur stuðningur komið til í meira eða minna mæli.

Ég vek athygli á því að í byggðarlagi þar sem íbúafjöldinn er í kringum 200 manns er 60 einstaklingum skv. grg. frv., eða u. þ. b. þriðja hverjum manni að börnum og gamalmennum meðtöldum, ætlað að leggja fram ýmist 20 eða 30 þús. kr. árlega í fimm ár til að þetta geti gengið. Ég vil lýsa ábyrgð á hendur ríkisstj. varðandi þá áhættu sem með þessu er tekin hvað varðar rekstur fyrirtækisins og hvað varðar byggð í Austur-Barðastrandarsýslu sem mjög er því háð að þetta fyrirtæki geti starfað. Ég lýsi ábyrgð á málinu á hendur ríkisstj. og greiði ekki atkv.