10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6155 í B-deild Alþingistíðinda. (5608)

456. mál, Byggðastofnun

Kjartan Ólafsson:

Herra forseti. Það frv. sem hér er til umræðu fjallar um Byggðastofnun sem ætlað er að koma í staðinn fyrir Byggðasjóð. Byggðasjóður var settur á stofn í byrjun áttunda áratugarins, það er liðið nokkuð á annan tug ára síðan, og hefur hann gegnt miklu hlutverki á því tímaskeiði. Ég held að það sé ákaflega margt líkt með ástandi okkar þjóðfélagsmála nú og var um það leyti sem ráðist var í að koma upp Byggðasjóði. Þá, í lok sjöunda áratugarins og byrjun þess áttunda, kringum 1970, hafði um langt skeið verið um að ræða ákaflega mikla flutninga fólks af landsbyggðinni hingað á Reykjavíkursvæðið og atvinnulíf úti um landið víða í niðurníðslu, ekki síst sjávarútvegurinn. Stofnun Byggðasjóðs var ein af ráðstöfunum ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar, sem Alþb. átti aðild að, til þess að vinna gegn þeirri óheillaþróun sem verið hafði á hinum svokölluðu viðreisnarárum og snúa henni við.

Á sjöunda áratugnum munu um sjö þúsund einstaklingar hafa flutt frá kjördæmunum sex úti um landið hingað á suðvesturhornið umfram þá sem fluttu inn í kjördæmin sex úti um land. Það var mikil blóðtaka. En það sem hefur nú gerst er það að á síðasta ári hafa öll fyrri met varðandi þessa mannflutninga verið slegin. Á einu ári eru það á annað þúsund manns sem flytja frá landsbyggðinni og hingað á höfuðborgarsvæðið og er það hæsta tala á öllu því tímaskeiði sem tölur liggja fyrir um í þeim efnum, eða í aldarfjórðung. Þessi tala ein segir mjög mikla sögu. Ég hefði viljað vænta þess að frv., sem flutt er um Byggðastofnun einmitt við þessar aðstæður, bæri þess meiri merki en þetta frv. gerir, að hæstv. ríkisstj. ætlaði sér að hafa uppi alvarlega viðleitni til að snúa þessari þróun við.

Það er ekki aðeins að fólksstraumurinn hafi orðið jafnvel enn meiri en á sjöunda áratugnum heldur er einnig svo komið nú að sjávarútvegurinn. sem ber uppi allt atvinnulíf að heita má í byggðarlögum hringinn í kringum landið, og reyndar allan okkar þjóðarbúskap, er að mörgu leyti að verða jafn illa settur og hann var um það leyti sem Byggðasjóður var settur á stofn í byrjun áttunda áratugarins. Það er að vísu ekki með nákvæmlega sama hætti því að þá höfðu atvinnutækin einfaldlega drabbast niður á löngu valdaskeiði Sjálfstfl. og Alþfl., flotinn hafði ekki verið endurnýjaður og lítil uppbygging átt sér stað í fiskiðnaði. En nú er það hins vegar fyrst og fremst rekstrargrundvöllur þessarar frumatvinnugreinar okkar sem má heita að sé brostinn.

Ég vil vekja athygli á því að ef fólksstraumurinn frá landsbyggðinni á suðvesturhornið verður á næstu árum álíka mikill og hann hefur verið síðustu tvö árin, frá því að núverandi ríkisstj. kom til valda, þá verður komið svo fyrir aldamót, sem eru ekki ýkjalangt undan, að meira en 2/3 af íbúum landsins verða komnir hingað á höfuðborgarsvæðið, þ. e. Reykjavík og Reykjaneskjördæmi, en innan við þriðjungur búsettur annars staðar á landinu. Ég held að slík framtíðarsýn ætti að vera áhyggjuefni fyrir fólk hvar sem það er búsett á landinu og einnig fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins því að það getur varla verið hagsmunamál eða fagnaðarefni á nokkurn veg að slík þróun verði að veruleika.

Varðandi Byggðasjóð, sem hér er talað um að breyta í Byggðastofnun, horfa mál þannig á þessu ári að í stað þess að honum voru upphaflega tryggðar tekjur af framlagi ríkisins sem námu 2% af ríkisútgjöldum þá er þetta framlag nú komið niður í örlítið brot úr prósenti, örlítinn hluta af því sem vera átti skv. upphaflegum lögum. Allt ráðstöfunarfé Byggðasjóðs að lántökum meðtöldum er langt frá því að ná þessum 2% af útgjöldum fjárlaga.

Í frv. sem hér er til umræðu um Byggðastofnun heitir það að vísu svo að tekjur hennar eigi að nema upphæð sem er sögð svara til u. þ. b. 2% af ríkisútgjöldum. En hætt er við að því sé valt að treysta eins og framkvæmdin í þeim efnum hefur verið og er á þessu ári í höndum hæstv. núverandi ríkisstj.

Það segir einnig í 2. gr. frv. að hlutverk Byggðastofnunar eigi að vera að stuðla að þjóðhagslega hagkvæmri þróun byggðar í landinu. En það segir ekkert um það hvaða skoðun ríkisstj. hafi á því hvað sé þjóðhagslega hagkvæm þróun. Á því eru sjálfsagt mismunandi skoðanir hvað skuli teljast þjóðhagslega hagkvæm þróun byggðar og hvað ekki. Í reynd þá hafa afleiðingarnar af stefnu núverandi ríkisstj. verið þær að beina fólkinu í stórlega vaxandi mæli á höfuðborgarsvæðið. Þar liggja niðurstöðurnar fyrir og varla er hægt annað en gera ráð fyrir því að ríkisstj. sé eftir atvikum sátt við þá þróun svo óheillavænleg sem hún þó er, a. m. k. sjást ekki merki þess að gegn þessari þróun sé unnið af hálfu stjórnvalda.

Ég vil koma hér aðeins inn á brtt. sem fluttar hafa verið við frv. af hv. 3. þm. Reykv. Svavari Gestssyni. Þar er í fyrsta lagi að nefna till. um það að stofnunin skuli staðsett á Akureyri. Ég hef ekki heyrt hæstv. ráðh. tjá sína skoðun í þeim efnum hér úr ræðustól á Alþingi, en hins vegar séð það haft eftir hæstv. forsrh. í fjölmiðlum að hann teldi að Alþingi ætti ekki að taka af skarið í þessum efnum. Mér finnst sú afstaða hjá forsrh. ekki stórmannleg af hans hálfu.

Hvað sem öðru líður held ég að það sé ekki margt brýnna en að efla samstöðu þeirra þm. sem bera hag byggðarlaganna úti um landið fyrir brjósti, hvort svo sem þeir eru þm. fyrir þetta kjördæmið í landinu eða hitt, samstöðu um það að leitast við að snúa þróuninni við og tryggja vaxandi hlut landsbyggðarinnar m. a. hvað varðar staðsetningu opinberra stofnana. Ég verð að líta svo á að það ætti að vera sjálfsagt mál með stofnun eins og Byggðastofnun að hún sé ekki staðsett hér á höfuðborgarsvæðinu heldur í einhverju kjördæmanna úti um land. Mér finnst ekki óeðlilegt að það sé ákveðið hér að hún fái sinn vettvang á Akureyri sem er fjölmennasti staðurinn utan Reykjavíkursvæðisins. Ég held að þeir sem hér eru fulltrúar fyrir kjördæmi utan Reykjavíkur og Reykjaness ættu að geta sameinast um slíka afstöðu og það ætti að auðvelda málflutning fyrir því að færa aðrar stofnanir eða útibú frá öðrum stofnunum eftir atvikum í hin ýmsu önnur byggðarlög vítt og breitt um landið. Ég tel það reyndar mjög virðingarvert af þm. höfuðborgarinnar að flytja þessa till. um staðsetningu Byggðastofnunar á Akureyri og vil gera mér vonir um að till. verði samþykki.

Ég sé að hér er einnig á þskj. till. frá hv. 3. þm. Reykv., 2. minni hl. fjh.- og viðskn., sem kveður á um það að Byggðastofnun skuli hafa samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, sveitarstjórnir, þróunarfélög og aðra heimaaðila eftir atvikum. Ég held að þetta sé ákaflega mikilvæg till. og mjög æskilegt að hún fengi stuðning. Mér er kunnugt um það að landshlutasamtök sveitarfélaganna, sem hafa mörg hver haldið uppi ákaflega gagnlegri rannsóknarstarfsemi fyrir sveitarfélögin í sínum kjördæmum og varðandi þróun byggðar og atvinnulífs, hafa haft nokkurn stuðning frá Byggðasjóði til að standa undir þessum þýðingarmiklu verkefnum.

Mér er einnig kunnugt um að í hópi forsvarsmanna landshlutasamtakanna hafa menn haft miklar áhyggjur út af því að nú kunni þessi stuðningur að falla niður þar sem ekki mun vera ráð fyrir honum gert í frv. hæstv. ríkisstj. um Byggðastofnun sem hér er til umræðu. Brtt. á þskj. 1079 frá 2. minni hl. fjh.- og viðskn. ætti hins vegar að tryggja það að þessi stuðningur haldi áfram og er það lágmarkskrafa.

Ég ætla ekki að orðlengja svo mjög um þessi efni hér í kvöld, enda þunnskipað hér á bekkjum. En það hefði vissulega verið full ástæða til að taka hér upp mjög alvarlega umræðu um byggðamálin í heild, ekki eingöngu þennan þátt þeirra sem að vísu er mikilvægur varðandi lagasetningu um Byggðastofnun, heldur þau önnur efni sem þar eru skyldust og tengjast hinni alvarlegu óheillaþróun í byggðamálum sem hér hefur verið komið inn á í umr. í kvöld. Ég held að meginatriði þeirra mála sé að stjórnvöld leitist við að stýra fjármagninu í landinu til þeirra atvinnugreina sem bera þjóðfélagið uppi, til þeirra atvinnugreina sem eru undirstaða mannlífs hringinn í kringum landið, og nefni ég þá sjávarútveginn sem helsta dæmið, en hæstv. núverandi ríkisstj. hefur því miður farið þveröfugt að og beint fjármagninu í meira mæli en nokkru sinni fyrr frá þessum atvinnugreinum, frá þeim sem afla verðmætanna og til hinna sem eyða þeim. Því er nú komið sem komið er.

Hér standa fyrir dyrum kjarasamningar í landinu og menn spyrja: Hvað verður um kjör fiskvinnslufólksins? Mál eru þannig vaxin að talsvert mörg einkafyrirtækjanna í landinu hafa slíkt fjármagn undir höndum, miklu meira en þau hafa haft nokkru sinni áður, að þau hafa bolmagn til að kaupa vinnuaflið upp. Hvergi á þeim vettvangi er spurt um kauptaxtana heldur er fólkið yfirborgað og í mörgum tilvikum kaupið tvöfaldað með yfirborgunum.

En á sama tíma er búið þannig að fyrirtækjum í sjávarútvegi að kjör þeirra sem við fiskvinnsluna starfa fara sífellt versnandi miðað við þá samanburðarhópa sem helst koma til greina. Afleiðingin getur ekki orðið önnur en fólksflótti úr þessum undirstöðuatvinnugreinum. Sá flótti er þegar farinn að koma fram í mjög stórum stíl. Slíkt er auðvitað ekki eingöngu áhyggjuefni fyrir það fólk sem finnur eldinn brenna heitast á sjálfu sér, heldur fyrir alla landsmenn, allan okkar þjóðarbúskap, því að afleiðingin er nú þegar orðin sú að verðmæti framleiðslunnar er mun minna en það gæti orðið ef fyrirtækin væru fullmönnuð. Það eru þessi efni sem hefðu átt heima í frv. af því tagi sem hér er til umræðu um Byggðastofnun.

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri að sinni, en má vera að tækifæri gefist hér fyrir þinglok til að ræða þessi efni nánar.