10.06.1985
Neðri deild: 91. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6172 í B-deild Alþingistíðinda. (5613)

Um þingsköp

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil sérstaklega mótmæla ósmekklegum aðdróttunum hv. 5. þm. Norðurl. v. í sambandi við þær umr. sem hér hafa farið fram um Byggðastofnun, þar sem hann talar um það að einstakir þm. hafi verið með málæði þó að þeir hafi rætt þetta eitt af mikilvægustu málum þingsins. Ég vona að hv. þm. geri sér grein fyrir því að á bak við þær umr. sem hér hafa farið fram liggur full alvara og ég vil mótmæla þessu, herra forseti.

Ég kvaddi mér hljóðs vegna þess að hér er á dagskrá 210. mál Nd., þskj. 249, nál. á þskj. 649 og 652 og brtt. á þskj. 653, frh. 2. umr. um selveiðar. Þetta frv. er búið að vera lengi hér á dagskrá og ég man ekki betur en það hafi verið rætt mjög ítarlega, m. a. af hv. 5. þm. Austurl. og hv. 4. landsk. þm. Ég vil spyrja hverju það sætir að þetta frv. fær ekki framhaldsmeðferð hér í hv. deild. Er kannske hv. 4. landsk. þm. þar um að kenna? Hefur hann gert tilraun til að stöðva þetta mál? Eða er það hæstv. forseti sem hefur lagst á málið? Eða hefur hæstv. ráðh. sem með málið fer, þ. e. forsrh. í fjarveru sjútvrh., ákveðið að leggjast á mál þetta?

Ég held að það sé óhjákvæmilegt, úr því að það er ætlun hæstv. forseta að halda hér fundum áfram inn í nóttina, að fá um það upplýsingar hvaða mál er meiningin að taka hér fyrir. Er meiningin að taka hér fyrir frv. um selveiðar? Er meiningin að taka hér fyrir frv. um getraunir Öryrkjabandalags Íslands? Er meiningin að taka hér fyrir frv. um dýralækna, frv. um flutningsjöfnunarsjóð og innkaupajöfnun olíu og bensíns? Frv. um húsnæðissparnaðarreikninga mun hafa verið afgreitt í dag. Hvaða mál eru það yfir höfuð. herra forseti, sem þú ætlar að taka fyrir hér á þessum næturfundi og hversu lengi hyggst stjórnarliðið halda þessum fundi áfram? Ég spyr vegna þess að það liggur fyrir, herra forseti, að þm. eru á launum í allt heila sumar. Það er auðvitað sjálfsagt að ætlast til þess að þeir gegni störfum sínum eftir því sem verkefnin liggja hér fram eftir sumri. Og það er engin ástæða til þess að vera að pína menn á kvöldfundum um mál lengi nætur þegar fyrir liggur að þingið hefur að því er virðist nógan tíma.

Þessar spurningar vil ég leggja fyrir forsetann og þó sérstaklega hverju það sætir að frv. um selveiðar hefur ekki verið tekið enn fyrir á þessum langa fundi. Ég vil spyrja sérstaklega að því hvort það sé hv. 4. landsk. þm. sem hefur beitt sér fyrir því að leggjast á það mál.